Fréttablaðið - 30.04.2003, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 30.04.2003, Blaðsíða 10
10 30. apríl 2003 MIÐVIKUDAGUR KÚVÆT Hinn tólf ára gamli Ali Is- mail Abbas gekkst undir um- fangsmikla aðgerð þar sem húð var grædd á brennd svæði á lík- ama hans. Ali missti báða hand- leggi og brenndist illa þegar flug- skeyti Bandaríkjamanna hæfði heimili hans í Bagdad. Aðgerðin gekk vel, að því er frá er greint á fréttavef BBC. Að sögn lækna tókst að þekja um 80 prósent af brunasárum Ali með húð af baki hans. Hann er þó enn á gjörgæslu og mun gangast und- ir fleiri aðgerðir á næstu dögum. Verið er að leita að bestu fáanlegu gervilimum fyrir drenginn. Ali var fluttur á sjúkrahús í Kúvæt þegar læknar í Írak lýstu því yfir að þeir gætu ekki veitt honum þá meðferð sem nauðsyn- leg væri. Fjöldi góðgerðarstofn- ana hefur sett sig í samband við yfirvöld í Kúvæt og boðist til þess að greiða sjúkrakostnað Alis. ■ Á BATAVEGI Ali Ismail Abbas fangaði hug margra þegar myndir af honum birtust í fjölmiðlum um allan heim. Ali gengst undir aðgerð: Húð grædd á brunasár Verð á hjólbörðum: Mikill verð- munur VERÐKÖNNUN Verð hjólbarða er mjög mismunandi eftir því hvar þeir eru keyptir. Að því er fram kemur í verðkönnun Samkeppnis- stofnunar á 27 hjólbarðaverk- stæðum á höfuðborgarsvæðinu getur munað allt að 262% á verði hjólbarða þar sem munurinn er mestur. Algengt er að hjólbarðar séu á bilinu tvöfalt til þrefalt dýrari þar sem þeir eru dýrastir heldur en þar sem þeir eru ódýrastir. Minnstur er munurinn á sóluðum hjólbörðum, sem eru mest fimmt- ungi dýrari á dýrasta staðnum en þeim ódýrasta. ■ KEIKÓ Keikó er kominn í sumarskap. Keikó: Í vorskapi NOREGUR Háhyrningurinn Keikó virðist kunna afar vel við sig í norsku vorblíðunni, að sögn norska dagblaðsins Dagsavisen. Haft er eftir sjávarlíffræð- ingnum Colin Baird að Keikó hafi á síðustu tveimur dögum synt lengri vegalengdir en hann hefur gert frá því hann tók sér bólfestu við Noregsstrendur í september. . Keikó leggur í vana sinn að liggja við kajann í Taknes-flóa og hefur aðeins farið í stuttar ferðir þaðan. Nú bregður hins vegar svo við að Baird og samverkakona hans, Þorbjörg Kristjánsdóttir, hafa þurft að eyða nóttinni í að miða háhyrninginn út í gegnum gervihnattasendi til að hafa uppi á honum. „Þetta þýðir dálítið meiri vinnu fyrir okkur en það er gleði- legt að Keikó skuli vera að hress- ast,“ segir Baird. ■ DUSAN MIHAJLOVIC Innanríkisráðherra Serbíu boðaði til blaða- mannafundar í Belgrad til þess að tilkynna að lagðar hefðu verið fram ákærur á hendur 45 mönnum vegna morðsins á Goran Djindjic. Morðið á Djindjic: Ákærur birtar BELGRAD, AP Serbneska lögreglan hefur lagt fram ákærur á hendur 45 mönnum vegna meintrar aðild- ar að morðinu á Goran Djindjic, forsætisráðherra Serba, 12. mars síðastliðinn. Í hópnum eru meðal annars leiðtogi þjóðernissinna, fyrrum yfirmaður leyniþjónustu hersins og meðlimir glæpa- gengja. Tíu hinna ákærðu ganga enn lausir. Lögreglan heldur því fram að undirheimagengi hafi skipulagt morðið á Djindjic með aðstoð al- ræmdrar lögreglusérsveitar. Er talið að það hafi verið liður í margþættri áætlun sem miðaði að því að koma þjóðernissinnum til valda á nýjan leik. ■ Svonaerum við 1997 229,8 1998 253,6 1999 272,4 2000 283,2 2001 274,1 2002 270,7 EINKANEYSLA ÍSLENSKRA HEIMILA Milljarðar BLÓÐUGIR BARDAGAR Sautján manns létu lífið þegar ind- verskar hersveitir gerðu áhlaup á bækistöðvar meintra ís- lamskra skæruliða í Kasmír. Eft- ir fimm stunda langan skotbar- daga kom lágu ellefu skæruliðar og sex stjórnarhermenn í valn- um. Skammt frá landamærum Indlands og Pakistans í Kasmír skutu vopnaðir Indverjar tvo meinta íslamska skæruliða til bana. ■ Asía Stjórn SA: Fimm nýir AÐALFUNDUR Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins samþykkti að fimm nýir menn tækju sæti í stjórn samtakanna. Þeir eru: Baldvin Valdemars- son, hjá Slippstöðinni, Eiríkur Tómasson, hjá Þorbirni-Fiskanesi, Jón Ásgeir Jóhannesson, hjá Baugi Group, Sigurður Á. Sigurðs- son hjá Búri og Þorsteinn Már Baldvinsson hjá Samherja. Úr stjórninni ganga: Brynjólf- ur Bjarnason, hjá Landssímanum, Guðlaugur Adolfsson, hjá Fagtaki, Ingimundur Sigurpálsson hjá Eimskipi, sem kjörinn var for- maður SA, Jón Helgi Guðmunds- son hjá BYKO og Tryggvi Jónsson hjá Heklu. ■ HRAÐAKSTUR Umferðarráð fjallar um hraðakstursmál í heild sinni og hefur margoft rætt um hraðakstur á sínum fundum,“ seg- ir Óli H. Þórðarson, fram- kvæmdastjóri Umferðarstofu, um þann mikla hraðakstur sem menn hafa verið teknir fyrir undanfar- ið. Óli segir að ýmsar leiðir hafi verið hugleiddar undanfarið til að stemma stigu við þessum hræðilega vágesti í umferð- inni. Hann segir tiltölulega fáa ein- staklinga haga sér svona. Lögregla víða um land hefur stöðvað ökumenn á ótrúlegum hraða síðustu daga. Óli H. Þórðar- son segist ekki vilja gefa upp töl- ur um ökuhraða þar sem það kalli á að ósvífnir ökumenn telji sig þurfa að bæta um betur og aka hraðar en þeir sem sagt er frá. Það segir hann ógna öryggi ann- arra. „Við lítum ekki á að þetta sé vandamál sem hrjáir einhvern meirihluta ökumanna, þvert á móti. Þetta er fámennur minni- hlutahópur sem er sífellt að láta á sér bera og í mörgum tilfellum að koma óorði á unga ökumenn. Það eru því miður oft þeir sem eiga hlut að máli. Við lítum svo á að það hafi orðið umtalsverður ár- angur undanfarin ár í fækkun slysa meðal ungra ökumanna af margvíslegum ástæðum. Þess vegna er það okkur enn meira áhyggjuefni þegar svona einstak- lingar gera sig seka um það víta- vera athæfi sem þetta er.“ Óli segir Umferðarráð sem slíkt ekki hafa tekið þessi mál upp eftir þessi nýjustu dæmi, sem setja enn ljótari blett á þessa til- tölulega fáu einstaklinga. „Ég hef ekki heyrt svona tölur áður eins og í þessum kappakstri í Ártúns- brekkunni daginn. Þetta er hræði- legur gjörningur sem hefur farið fram núna oftar en einu sinni og er það ekkert einsdæmi því verið er að taka menn á ofsahraða víða um land.“ Óli segir að ekki sé hægt að líkja þessu við vorkomu eða neitt því um líkt því þetta sé bara brjálsemi sem nái engri átt. hrs@frettabladid.is UMFERÐAREFTIRLIT Lögreglan hefur haft í nógu að snúast þar sem margir hafa verið teknir fyrir ofhraðan akstur. Hraðakstur er ekki vandi margra Fólki er brugðið við að heyra dæmi um hraðakstur sem hafa átt sér stað í umferðinni að undanförnu. ■ „Þess vegna er það okkur enn meira áhyggju- efni þegar svona einstak- lingar gera sig seka um það vítaverða athæfi sem þetta er.”

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.