Fréttablaðið - 30.04.2003, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 30.04.2003, Blaðsíða 26
 13.30 Hátíðarhöld verkalýðsfélaga í Reykjavík hefjast með því að safnast verður saman við Hallgrímskirkju. Kröfugangan leggur af stað þaðan klukkan tvö og útifundur á Ingólfstorgi hefst klukkan 14.35. Ræðumenn dags- ins eru Gunnar Páll Pálsson og Eiríkur Jónsson. Nína Kristjánsdóttir flytur ávarp, Anna Kristín Arngrímsdóttir les upp og Borgardætur syngja nokkur lög.  Vinstrihreyfingin – grænt framboð heldur baráttufund í Iðnó eftir kröfu- gönguna. Þar mun Atli Gíslason lög- maður flytja barátturæðu. Hrólfur Sæ- mundsson baritón syngur og Steinunn Birna Ragnarsdóttir leikur á píanó. Maíkórinn syngur.  20.00 Rauður 1. maí nefnist dag- skrá sem Sósíalistafélagið, Samtök her- stöðvaandstæðinga og Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvenna efna til á Hallveigarstöðum, Túngötu 14. Stein- unn Þóra Árnadóttir og Þorvaldur Þor- valdsson flytja ávörp. Bardukha, Hell- var og Sigvarður Ari Huldarsson flytja tónlist og skáldin Einar Ólafsson og Kristian Guttesen lesa upp. ■ ■ MESSA  11.00 Hin árlega lögreglumessa verður í Bústaðakirkju. Prestar verða séra Pálmi Matthíasson og séra Kjart- an Örn Sigurbjörnsson. Lögreglukórinn syngur ásamt barnakór. Barnastarf verð- ur á meðan messunni stendur. Kaffi og veitingar verða í boði Landssambands lögreglumanna og Lögreglukórs Reykja- víkur í lok messu. ■ ■ OPIÐ HÚS  14.00 Opið hús verður á Króki á Garðaholti á vegum menningar- og safnanefndar Garðabæjar. Krókur er lítill bárujárnsklæddur burstabær skammt frá samkomuhúsinu á Garðaholti. Bærinn er gott dæmi um húsakost og lifnaðar- hætti alþýðufólks á þessum landshluta á fyrri hluta 20. aldar.  Að venju verður opið hús í félags- heimili MÍR, Vatnsstíg 10, á baráttu- og hátíðisdegi verkalýðsins 1. maí. Kaffisala með hlaðborði verður frá kl. 14, efnt verður til lítillar hlutaveltu og sýndar teiknimyndasyrpur fyrir yngstu kynslóð- ina. ■ ■ TÓNLIST  17.00 Vortónleikar Skagfirsku söngsveitarinnar í Reykjavík verða haldnir í Langholtskirkju. Einsöngvarar eru Kristín R. Sigurðardóttir sópran og Óskar Pétursson tenór. Auk þeirra syngja þrír kórfélagar einsöng og dúetta. Stjórnandi Skagfirsku söngsveitarinnar er Björgvin Þ. Valdimarsson en undirleik- ari er Sigurður Marteinsson.  17.00 Tveir kórar eldri borgara í Hafnarfirði halda söngskemmtun í Víði- staðakirkju. Kórarnir eru Karlakór eldri Þrasta, söngstjóri Halldór Óskarsson, og Gaflarakórinn, kór Félags eldri borgara, söngstjóri Guðrún Ásbjörnsdóttir. Einnig mun syngja kór verðandi öldunga undir stjórn Guðrúnar Ásbjörnsdóttur. Söng- skráin er fjölbreytt og aðgangur ókeypis.  20.00 Karlakór Reykjavíkur syngur í Ými við Skógarhlíð, síðustu styrktarfé- lagstónleika sína þetta árið. Meðal ann- ars verða fluttar íslenskar söngperlur og verk eftir Franz Schubert. Einsöngvari með kórnum er Garðar Thor Cortes, Anna Guðný Guðmundsdóttir leikur á píanó og söngstjóri er Friðrik S. Krist- insson.  20.30 Gospelsystur Reykjavíkur halda vortónleika í Langholtskirkju í samvinnu við KK og Ellen Kristjáns- dóttur. Yfirskrift tónleikanna er Ferða- langar og eru þetta tónleikar á rólegri nótunum. Stjórnandi er Margrét J. Pálmadóttir og um hljómsveitarstjórn sér Stefán S. Stefánsson.  20.30 Vortónleikar Karlakórs Sel- foss verða í Selfosskirkju. Stjórnandi er Loftur Erlingsson og undirleikari Julian Edward Isaacs. Einsöngvarar með kórn- um eru tveir kórfélagar, Gunnar Þórðar- son og Jónas Lilliendahl, og einnig syngur Helga Kolbeinsdóttir einsöng með kórnum.  20.30 Kvennakór Suðurnesja heldur vortónleika í Ytri-Njarðvíkur- kirkju. ■ ■ SKEMMTANIR  Jamaísku hljómsveitirnar English- man og Shangoband koma fram á reggíhátíð á Grand Rokk. Einnig lætur DJ Kári í sér heyra.  Eyjólfur Kristjánsson skemmtir á Barnum, Sauðárkróki.  Santiago spilar í Höllinni, Vest- mannaeyjum. ■ ■ LEIKLIST  20.00 Farsinn Allir á Svið eftir Michael Frayn er sýndur á Stóra sviði Þjóðleikhússins, þýddur og leikstýrður af Gísla Rúnari Jónssyni.  20.00 Veislan eftir Thomas Vinter- berg og Mogens Rukov á Smíðaverk- stæði Þjóðleikhússins.  20.00 Breski farsinn Öfugu megin uppí með Eggert Þorleifsson í aðal- hlutverki verður sýndur á Stóra sviði Borgarleikhússins.  20.00 Maðurinn sem hélt að kon- an hans væri hattur eftir Peter Brook og Marie-Hélène Estienne á Nýja sviði Borgarleikhússins. ■ ■ SÝNINGAR  Nemendur Listaháskóla Íslands eru með myndlistarsýningu í Reykjavíkur- akademíunni, Hringbraut 121, undir yf- irskriftinni Fórn eða fífldirfska.  Ljóðmyndasýning Eyvindar P. Eiríkssonar í Lóuhreiðri, Laugavegi 61, stendur til 3. maí.  Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur valið verk eftir fjölmarga myndlistar- menn á sýninguna Þetta vil ég sjá í Gerðubergi. 22 30. apríl 2003 MIÐVIKUDAGUR hvað?hvar?hvenær? 28 29 30 1 2 3 4 MAÍ Fimmtudagur Ég held að þessi dagur hafi ekkisíst það gildi að minna okkur á það sem þeir sem á undan okkur fóru lögðu á sig til þess að búa í haginn fyrir þá sem búa í þessu þjóðfélagi í dag,“ segir Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasam- bands Íslands. „Þessi dagur á að minna okkur á gildi stéttarfélag- anna og hve margt af því sem kallað er sjálfsögð mannréttindi í dag hefði aldrei náðst í gegn án baráttu þeirra sem nú eru komnir á efri ár eða gengnir.“ Eiríkur er annar tveggja ræðu- manna dagsins á útifundi verka- lýðsfélaganna á Ingólfstorgi í Reykjavík. Ræðu flytur einnig Gunnar Páll Pálsson, formaður Verslunarmannafélags Reykja- víkur. Hátíðarhöld dagsins eru að mestu í svipuðum skorðum og verið hefur nokkuð lengi. Meiningin er að safnast saman við Hallgrímskirkju og halda það- an klukkan tvö í kröfugöngu niður á Ingólfstorg, þar sem útifundur hefst rúmlega hálftíma síðar. Auk ræðumannanna tveggja flytur Nína Kristjánsdóttir, formaður Iðnnemasambands Íslands, ávarp, Anna Kristín Arngrímsdóttir leik- kona les ljóð og Borgardætur syngja nokkur lög. Í beinu framhaldi af útifundin- um halda Vinstri grænir svo bar- áttufund í Iðnó þar sem Atli Gísla- son flytur barátturæðu. Listræna hliðin verður þar í höndum Hrólfs Sæmundssonar baritóns og Stein- unnar Birnu Ragnarsdóttur píanó- leikara. Einnig syngur Maíkórinn. Um kvöldið roðnar svo enn frekar yfir deginum, því þá efna Sósíalistafélagið, Samtök her- stöðvaandstæðinga og Menning- ar- og friðarsamtök íslenskra kvenna til dagskrár sem nefnist Rauður 1. maí og er beint sérstak- lega gegn heimsvaldastefnu og stríði. Þar flytja Steinunn Þóra Árnadóttir og Þorvaldur Þor- valdsson ávörp og skáldin Einar Ólafsson og Kristjan Guttesen lesa úr verkum sínum. Baldvin Halldórsson leikari verður fund- arstjóri en Hljómsveitirnar Bard- ukha og Hellvar sjá um tónlistar- flutning ásamt trúbadornum Sig- varði Ara Huldarssyni. gudsteinn@frettabladid.is ■ BARÁTTUDAGUR VERKALÝÐSINS Blásið í glæður baráttunnar FJÖR Á FYRSTA MAÍ Hátíðarhöld á baráttudegi verkalýðsins verða að mestu með hefðbundnu sniði í Reykjavík þetta árið. Ópólitískt á baráttudegi Við getum ekki beðið eftir því aðskólinn verði búinn svo við get- um farið að semja meira efni,“ seg- ir Kalli, helsti forsprakki hljóm- sveitarinnar Dáðadrengja. „Við erum ennþá að spila efni sem við sömdum í jólafríinu.“ Dáðadrengir koma fram ásamt hljómsveitinni Lokbrá á Gauk á Stöng annað kvöld áður en hljóm- sveitin Maus stígur á svið að kynna væntanlega plötu sína, „Musick“, sem kemur út 12. maí. Mausarar lofa því að þessir tónleikar verði al- gerlega ópólitískir, þrátt fyrir að vera tímasettir á baráttudegi verka- lýðsins. Dáðadrengir sigruðu með glæsi- brag í Músíktilraunum Tónabæjar í lok mars. Lag sveitarinnar, Allar stelpur úr að ofan, er töluvert spilað á útvarpsstöðvum þessa dagana. Lokbrá kom einnig skemmtilega á óvart á Músíktilraununum og er brátt á leiðinni í hljóðver til þess að vinna lag sitt „Nosirrah Egroeg“, sem er óður til Bítilsins George Harrison. ■ MAUS Hljómsveitirnar Dáðadrengir og Lokbrá koma fram með Maus á Gauk á Stöng að kvöldi 1. maí. ■ TÓNLIST Maðurinn semhélt að kon- an hans væri hattur. Það er málið,“ segir María Ellingsen leikkona. „Þetta er hugvíkkandi leikrit.“ Mittmat

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.