Fréttablaðið - 30.04.2003, Blaðsíða 28
30. apríl 2003 MIÐVIKUDAGUR24
CONFESSIONS. bi 14 kl. 8 og 10.30
JUST MARRIED kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10
ABRAFAX m/ísl.tali kl. 4 og 6 SKÓGARLÍF 2 m/ísl.tali kl. 4
THE HUNTED b.i. 16 kl. 6 og 10.10
CRADLE b.i. 16 kl. 6 og 8
Sýnd kl. 5, 8 og 10.40
Sýnd í lúxus kl. 6 og 9
Sýnd kl. 10 b.i. 14
kl. 6 og 8NÓI ALBINÓI
kl. 68 FEMMES
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 b.i. 14 ára
Sýnd í lúxus kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10
THUNDERPANTS kl. 4
DREAMCATCHER kl. 6, 8 og 10
kl. 4DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINNNATIONAL SECURITY bi 12 kl. 4 og 6
RECRUIT bi 16 kl. 8 og 10.30
kl. 10THE PIANIST
kl. 8TWO WEEKS NOTICE
Sýnd kl. 6 og 8
KVIKMYNDIR Bíósumarið byrjar með
látum í dag með frumsýningu X-
Men 2. Myndin hefur fengið stór-
fína dóma og flestum erlendum
gagnrýnendum ber saman um að
þessi mynd sé mun betri en sú
fyrsta enda segir sagan að leik-
stjórinn Brian Synger hafi sett sér
það takmark að gera miklu betur
og horft til The Empire Strikes
Back á meðan á tökum stóð, en sú
mynd náði að toppa sjálfa Star
Wars á sínum tíma.
Það er miklu meiri hasar og
hamagangur í X2 en fyrri mynd-
inni. Sú nýja er 130 mínútur, góð-
um hálftíma lengri en forverinn,
og hver sekúnda er að sögn notuð
til hins ýtrasta og þrátt fyrir allar
tæknibrellurnar og djöfulganginn
fá persónurnar einnig svigrúm til
að þróast.
Myndin hefst á því að stökk-
breyttir sýna forseta Bandaríkj-
anna banatilræði og í kjölfarið
segir herinn hinum erfðabreyttu
stríð á hendur og einbeita sér þá
sérstaklega að ofurhetjunum
sem starfa í nafni leiðtoga síns
Prófessor X. Ofsóknirnar verða
til þess að vondu stökkbrigðin
sem hin bitri Magneto stjórnar
og hetjurnar okkar verða að snúa
bökum saman og berjast gegn
sameiginlegri ógn en herforing-
inn sem stjórnar aðgerðunum
veit sitthvað um hin stökkbreyttu
og stefnir leynt og ljóst að því að
ganga milli bols og höfuðs á
þeim.
Öll undrin úr fyrstu myndinni
mæta aftur til leiks auk þess sem
nýjar erfðabreytur bætast í hóp-
inn. Áherslan er sem fyrr mest á
Wolverine, sem hinn viðkunnan-
legi Ástrali Hugh Jackman leikur.
Þegar við skildum við úlfmanninn
í fyrri myndinni var hann með
áform um að rannsaka fortíð sína
frekar og kemst hér heldur betur
í feitt þar sem hann þarf að takast
á við kvenútgáfu af sjálfum sér
og kemur klónum í skapara sinn.
Gagnrýnandi breska kvik-
myndatímaritsins Empire er yfir
sig hrifinn af X2. Hann gefur
henni fjórar stjörnum af fimm
mögulegum og telur það ljóst að þó
Matrix muni bjóða upp á flottari
brellur og Hulk sé til alls líklegur
muni það síður en svo verða hægð-
arleikur að toppa X-Men, sem eru
á fleygiferð í þessari þéttu mynd
sem skilur allt eftir galopið fyrir
frekara framhald.
thorarinn@frettabladid.is
Hin stökkbreyttu
snúa bökum saman
Teiknimyndahetjurnar sem kenndar eru við X-Men byrja stórmyndasumarið með
látum í dag þegar önnur myndin um ofurhetjurnar verður frumsýnd. Nýja mynd-
in er töluvert lengri en fyrri myndin og þykir meira að segja líka betri.
WOLVERINE
Mun komast nær sannleikanum um sjálfan sig í X2 en hann fer sem fyrr fyrir X- fólkinu,
sem þarf að ganga til liðs við erkifjendur sína til þess að verjast ofsóknum mannfólks-
ins.
ALT OM MIN FAR SÝND KL. 8
MISSING ALLEN SÝND KL. 10
BURTUR - HUGUR SÝND KL. 8
BIGGIE & TUPAC SÝND KL. 10
HEIMILDA- OG STUTTMYNDAHÁTÍÐ
Kvarnast úr Prodigy:
Keith stofnar nýja hljómsveit
TÓNLIST Söngvarinn Keith Flint, sem
gerði lítið annað í fyrstu en að dansa
fyrir The Prodigy, er búinn að stofna
nýja hljómsveit. Hún heitir eftirnafni
söngvarans, Flint.
Ásamt Keith í sveitinni eru gítar-
leikarinn Jim Davies sem var áður í
Pitchshifter, Kieran Pepper og Tony
Howlett.
Keith hefur þó ekki sagt skilið við
Prodigy en Liam Howlett, höfuðpaur
hennar, hefur unnið að gerð nýrrar
breiðskífu í talsverðan tíma. Búist er
við því að hún komi út fyrir áramót.
Nýja hljómsveitin hans Keith á
víst að vera sprottinn af mánaðar-
löngum pirringi yfir því að hafa þurft
að sitja aðgerðarlaus á afturendan-
um. Hann hefur nú lokið við vinnslu
fyrsta smáskífulagsins og er nú við
tökur á myndbandi. Það vinnur hann
með Jonas Akerlund, sem gerði m.a.
hið fræga myndband „Smack My
Bitch Up“ með Prodigy. Sá hefur líka
gert myndbönd fyrir U2, Smashing
Pumpkins og Madonnu. ■
DÓMAR Í ERLENDUM
MIÐLUM:
Internet Movie Database - 8.1 /10
Rottentomatoes.com - 89% = Fresh
KEITH FLINT
Nennti ekki að bíða lengur eftir „væntanlegri“ Prodigy-plötu og ákvað að gera eitt stykki
breiðskífu upp á eigin spýtur.