Fréttablaðið - 30.04.2003, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 30.04.2003, Blaðsíða 24
■ ■ FUNDIR  16.30 María Luisa Vega, prófessor við Complutense Universidad í Madrid, flytur fyrirlestur um tvítyngi barna á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadótt- ur í Odda, stofu 101.  20.00 Biblíuskólinn við Holtaveg heldur fræðslukvöld í húsi KFUM og KFUK um spádómsbók Jesaja, eitt af rit- um Gamla testamentisins. Leiðbeinandi verður Skúli Svavarsson kristniboði. All- ir eru velkomnir og aðgangur ókeypis. ■ ■ KVIKMYNDIR  16.00 Stuttmyndahátíð grunn- skóla í Reykjavík, sem er uppskeruhá- tíð kvikmyndagerðarmanna í grunnskól- um borgarinnar, verður haldin í Austur- bæjarskóla. Bestu myndirnar keppa um klapptré þar sem árituð verða nöfn vinn- ingsmynda og vinningshafa. Alls bárust 24 myndir í keppnina að þessu sinni og verða þær bestu sýndar og brot úr öðr- um.  20.30 Á síðustu kvikmyndasýningu vorsins hjá Goethe-Zentrum, Laugavegi 18, verður að venju sýnd óvissumynd. Athugið að enskur neðanmálstexti er ekki með myndinni, en auk þýsku er drjúgur hluti myndarinnar á ítölsku og þá er þýskur texti. ■ ■ TÓNLIST  20.00 Karlakór Reykjavíkur syng- ur í tónlistarhúsinu Ými við Skógarhlíð. Fluttar verða íslenskar söngperlur, lög norrænna tónskálda, og verk eftir Franz Schubert, Rudolf Sieczynski og Leos Janacék. Einsöngvari með kórnum er Garðar Thor Cortes. Anna Guðný Guð- mundsdóttir leikur á píanó og söng- stjóri er Friðrik S. Kristinsson.  20.00 Gunnar Kvaran og Jónas Ingimundarson leika báðar sellósónöt- ur Brahms á tónleikum í Salnum, Kópa- vogi.  20.00 Hinir árlegu vortónleikar Valskórsins verða í Friðrikskapellu við Valsheimilið í Reykjavík. Sungin verða ís- lensk lög ásamt syrpu af negrasálmum við undirleik Helgu Laufeyjar Finnboga- dóttur. Stjórnandi er Guðjón Þorláksson.  20.00 Kammertónleikar á vegum Tónlistarskólans í Reykjavík verða haldnir í Fríkirkjunni í Reykjavík. Fram koma nemendur úr blásaradeild skól- ans, meðal annars trompetkór og klar- ínettukór. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og öllum heimill.  20.30 Mosfellskórinn heldur sína árlegu vortónleika í Íslensku óperunni. Eins og áður er dagskráin létt og fjörug, meðal annars lög og textar eftir Hljóma, Ríó Tríó, Stuðmenn, Elvis og Bee Gees. Einsöngvarar eru meðlimir kórsins og söngstjóri er Páll Helgason. ■ ■ LEIKLIST  20.00 Farsinn Allir á Svið eftir Michael Frayn er sýndur á Stóra sviði Þjóðleikhússins, þýddur og leikstýrður af Gísla Rúnari Jónssyni.  20.00 Leiklesin verða brot úr leik- ritum átta höfunda á uppskeruhátíð af leikritunarnámskeiði Þjóðleikhússins, sem Hlín Agnarsdóttir hefur haft umsjón með. Ókeypis aðgangur.  20.00 Veislan eftir Thomas Vinter- berg og Mogens Rukov á Smíðaverk- stæði Þjóðleikhússins.  20.00 Breski farsinn Öfugu megin uppí með Eggert Þorleifsson í aðal- hlutverki verður sýndur á Stóra sviði Borgarleikhússins.  20.00 Uppskeruhátíð af leikrit- unarnámskeiði Þjóðleikhússins verður haldin á Litla sviðinu. Leiklesin verða brot úr leikritum eftir átta höf- unda af leikritunarnámskeiði sem Þjóðleikhúsið hefur staðið fyrir í vetur undir stjórn Hlínar Agnarsdóttur.  Einleikurinn Sellófon eftir Björk Jak- obsdóttur í NASA við Austurvöll. Sýning- in hefur gengið í eitt ár og er þetta af- mælissýning. ■ ■ SKEMMTANIR  22.00 UVG blása til stórtónleika á Grand Rokk með Amos, Dóra DNA, Sign, Tveimur dónalegum haustum og pönksveitinni Ekkert kjaftæði.  Ingó, Moody-Company og gestir verða með tónleika á efri hæðinni á Laugavegi 11.  DJ Glömmi heldur uppi fjörinu á miðhæðinni á Laugavegi 22.  Hljómsveitin Spilafíklarnir leikur á Celtic Cross.  Skítamórall spilar á Broadway.  Dúettinn Acoustics spilar á Ara í Ögri.  Eyjólfur Kristjánsson verður á Pakkhúsinu, Selfossi. ■ ■ SÝNINGAR  Þrjár sýningar standa yfir Nýlista- safninu við Vatnsstíg. Á annarri hæð safnsins er Sólveig Aðalsteinsdóttir með sýninguna Úr möttulholinu en á þeirri þriðju eru Hanne Nielsen og Birgit Johnsen með Stað-hæfingar eða Territorial Statements í suðursal. Í norð- ursal á sömu hæð er landi þeirra Kaj Nyborg með sýninguna Nágranni eða Next door neighbour.  Þrjár myndlistarkonur eru með sýn- ingar í Hafnarborg, Menningar- og lista- stofnun Hafnarfjarðar. Björg Þorsteins- dóttir sýnir þar akrýlmálverk og vatns- litamyndir, sem unnar eru á tveimur síð- ustu árum. Auður Vésteinsdóttir er með tvær sýningar á listvefnaði og ljós- myndum. Loks sýnir Sigríður Ágústs- dóttir handmótuð, reykbrennd leirverk.  Í Listasafni Íslands stendur yfir yfir- litssýning á verkum Georgs Guðna. Einnig er í safninu sýning á landslagsmálverkum Ásgríms Jónsson- ar og vídeóinnsetning eftir Steinu Va- sulka.  Helgi Þorgils Friðjónsson er með einkasýningu á Kjarvalsstöðum. Hann sýnir þar eingöngu ný málverk. Á sama stað sýnir Ilmur Stefánsdóttir umbreytt farartæki, vídeómyndir og örsögur. Einnig er í safninu yfirlitssýning á verk- um Jóhannesar Kjarval.  Í Kúlunni í Ásmundarsafni við Sigtún er innsetning Eyglóar Harðardóttur. Í safninu stendur einnig yfir sýningin List- in meðal fólksins, þar sem listferill Ás- mundar Sveinssonar er settur í sam- hengi við veruleika þess samfélags sem hann bjó og starfaði í.  Jóna Þorvaldsdóttir sýnir átta svart- hvítar ljósmyndir á Mokka við Skóla- vörðustíg. Myndirnar eru teknar í Sló- veníu , Bandaríkjunum, Portúgal og á Kúbu á árunum 2000 til 2002. Jóna vinnur myndirnar allar í höndum, bæði framköllun og stækkun.  Í Borgarskjalasafni Reykjavíkur, Tryggvagötu 15, stendur yfir sýning á kosningaáróðri frá árunum 1880 til 1999. Á henni má fræðast um hvernig baráttumál flokkana fyrir Alþingiskosn- ingar í Reykjavík hafa breyst í gegnum tíðina.  Egill Örn Egilsson sýnir ljósmynd- ir í galleríinu Tukt í Hinu húsinu við Pósthússtræti. Heiti sýningarinnar er Til allra englabarna og hún stendur til 10. maí.  Sýningin Undir fíkjutré: Alþýðulistir og frásagnarhefðir Indlands stendur yfir í Listasafninu á Akureyri. Þetta er í fyrsta sinn sem indversk myndlist er kynnt með jafn víðfeðmum hætti hér á landi.  Í Gerðarsafni í Kópavogi stendur yfir yfirlitssýning á verkum Gerðar Helga- dóttur. Safnið er opið á skírdag og laug- ardag kl. 11-17, en lokað á föstudaginn langa, páskadag og annan í páskum.  Sari Maarit Cedergren sýnir um þessar mundir steyptar lágmyndir í Gall- erí Slunkaríki á Ísafirði. Sýningin er opin 20 30. apríl 2003 MIÐVIKUDAGUR hvað?hvar?hvenær? 27 28 29 30 1 2 3 APRÍL Miðvikudagur HELGA VALA HELGADÓTTIR Í kvöld ætla ég að sjálfsögðu ástórtónleika UVG á Grandrokk,“ segir Helga Vala Helgadóttir leikkona, „Þar verða meðal annars snillingurinn Dóri DNA rappari og pönkbandið Ekk- ert kjaftæði. Ekkert kjaftæði er glænýtt band skipað eðaltöffur- um og frambjóðendum VG. Þeir voru nú eitthvað að myndast við að fara úr að ofan á síðustu tón- leikum og ég hvet þá til að ganga enn lengra í kvöld. Fyrir tónleik- ana langar mig í leikhúsið að sjá Veisluna. Hilmar Jónsson er kom- inn inn í sýninguna og mig langar að sjá það. Það er verst að á sama tíma er Valskórinn að syngja og þar sem bóndi minn er mikill Valsari þá er leitt að við getum ekki verið þar. Á fimmtudaginn er það kröfu- ganga að venju. Svo ætla ég með fjölskylduna í kaffi niðri í Iðnó þar sem félagi Atli Gíslason ætlar að þruma yfir mannskapnum. Það er líka svo gott hvað tjörnin er ná- lægt fyrir blessaða ungana mína. Um kvöldið langar mig í Borgar- leikhúsið að sjá Manninn sem hélt að konan sín væri hattur.... þvílík- ur snilldartitill.“  Val Helgu Þetta lístmér á! ✓ STEFÁN PÁLSSON Milli klukkan sjö og tíu ámorgnana er allt sem er svart og flýtur besta kaffið í bæn- um. Það er svona upp úr hádeginu sem maður fer að þróa með sér al- vöru kaffismekk. Þá verður fyrir valinu einhver góð blanda frá Kaffitári. Besta kaffiðí bænum ✓ ✓ ✓ Afmælissýning Í NASA VIÐ AUSTURVÖLL Í KVÖLD, örfá sæti föst 2. maí, NASA, örfá sæti lau 3. maí, SJALLINN AKUREYRI sun 4. maí, SJALLINN AKUREYRI MIÐASALA Í NASA 511 13 18 OG SELLOFON@MMEDIA.IS FORSALA Á MIÐUM Í SJALLANN FER FRAM Í PENNANUM EYMUNDSSON GLERÁRTORGI. „TAKK FYRIR AÐ BÚA TIL LEIKRIT UM MIG. SELLÓFON ER ÓBORGANLEGT LEIKRIT.“ GUÐRÚN HELGA JÓNASDÓTTIR, FRAMAKONA, LEIKFIMIDÍS OG TVEGGJA BARNA MÓÐIR. „SALURINN LÁ Í HLÁTRI ALLAN TÍMANN ENDA TEXTINN STJÓRSNJALL OG DREPFYNDINN.“ KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR BLAÐAMAÐUR OG BÓKMENNTAGAGNRÝNANDI Á DV. „HUGMYNDIN ER BÆÐI SNJÖLL OG TÍMABÆR OG MAÐUR VELTIR ÞVÍ FYRIR SÉR HVERS VEGNA Í ÓSKÖPUNUM ENGINN HEFUR DOTTIÐ NIÐUR Á HANA FYRR.“ SOFFÍA AUÐUR BIRGISDÓTTIR LEIKLISTAR- GAGNRÝNANDI Á MORGUNBLAÐINU. SÝNINGARNAR Í NASA VIÐ AUSTURVÖLL OG Í SJALLANUM AKUREYRI VERÐA SEM HÉR SEGIR: 1. ÁRS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.