Fréttablaðið - 30.04.2003, Blaðsíða 18
18 30. apríl 2003 MIÐVIKUDAGURRuðningur
FÓTBOLTI Jari Litmanen leikur gegn
Íslandi í Vantaa í dag. Litmanen
lék síðast með landsliðinu í 0:2
tapi gegn Júgóslavíu (nú
Serbíu/Svartfjallalandi) um miðj-
an október.
Jari Litmanen er einn farsæl-
asti knattspyrnumaður Finna.
Hann hóf feril sinn með Reipas
Lahti og lék sinn fyrsta deildar-
leik með félaginu 16 ára gamall.
Litmanen hefur leikið með Ajax
frá Amsterdam stærstan hluta
ferils síns og tilkynnti nýlega að
hann muni framlengja samning
sinn við félagið eftir þessa leiktíð.
Litmanen lék sinn fyrsta A-
landsleik í október 1989 þegar
Finnar unnu Trínidad og Tóbagó
1:0. Hann skoraði loks í 12. lands-
leik sínum í 2:0 sigri á Möltu í maí
1991. Litmanen skoraði tvisvar í
4:1 sigri Finna í Portúgal fyrir
rúmu ári og jafnaði markamet Ari
Hjelm, sem skoraði 21 mark á ár-
unum 1983 til 1996. Hjelm lék 100
landsleiki á þessum árum og er
leikjahæstur Finna en Litmanen
vantar enn nítján leiki til að jafna
þetta met. ■
LITMANEN
Jari Litmanen leikur að nýju með finnska
landsliðinu. Hann vantar eitt mark til að
bæta markamet A-landsliðsins.
JARI OLAVI LITMANEN (F. 20.
FEBRÚAR 1971)
Deildarleikir og mörk
Reipas Lahti (1987-1990) 86 28
HJK Helsinki (1991) 27 16
MyPa 47 (1992) 18 7
Ajax (1992-1999) 159 91
Barcelona (1999-2000) 21 3
Liverpool (2000-2002) 26 5
Ajax (2003) 11 4
Samtals 348 154
A-landsleikir (1989-2002) 81 21
Finnska landsliðið:
Litmanen vantar eitt mark
Alan Shearer, fyrirliðiNewcastle, verður frá næstu
átta vikurnar vegna ökklameiðsl-
anna sem hann varð fyrir í leik
Newcastle gegn Sunderland á
laugardag. Shearer, sem var kos-
inn besti leikmaðurinn í 10 ára
sögu ensku úrvalsdeildarinnar
fyrir skömmu, missir því af
tveimur síðustu leikjum
Newcastle á leiktíðinni.
FÓTBOLTI Íslendingar og Finnar hafa
leikið níu A-landsleiki og hafa Finn-
ar sigraði í fimm leikjum og Íslend-
ingar í tveimur en tveimur hefur
lokið með jafntefli. Íslendingar
sigruðu í fyrsta leik þjóðanna árið
1948 og á Spáni árið 2000 þegar
þjóðirnar mættust síðast. Leikurinn
í dag verður í Vantaa og hefst kl. 15
að íslenskum tíma.
Þjálfarar beggja liða hafa þurft
að breyta upphaflegum leikmanna-
hópum. Heiðar Helguson og Guðni
Bergsson leika ekki gegn Finnum
en inn í hópinn koma Arnar Gunn-
laugsson, Ólafur Stígsson og Veigar
Páll Gunnarsson.
Petri Pasanen, varnarmaður
Ajax, dró sig út úr finnska hópnum
vegna leikjaálags í hollensku deild-
inni og Meistaradeildinni. Jussi Nu-
orela (Malmö FF) var valinn í hans
stað. Mika Väyrynen, miðjumaður
SC Heerenveen í Hollandi, hefur
ekki náð sér af meiðslum og tekur
nýliðinn Rami Hakanpää (HJK
Helsinki) sæti hans í hópnum.
Toni Kuivasto (Viking) tekur
stöðu Pasanen í miðri vörninni við
hlið Sami Hyypiä, fyrirliða Finn-
anna. Hyypiä sagði við
Hufvudstadsbladet að það ætti ekki
að verða vandamál. Þeir hafi
nokkrum sinnum leikið saman og
það sé auðvelt að leika með Kuiv-
asto. Hyypiä á að gæta Eiðs Smára
Guðjohnsen í leiknum og viður-
kenndi að það yrði ekki auðvelt
verkefni. “Hann er flinkur leikmað-
ur og öflugur markaskorari,” sagði
Hyypiä. Meira veit Hyypiä ekki um
íslenskan fótbolta en telur eins og
aðrir Norðurlandabúar að Íslend-
ingar spili fast. Eiður Smári
Guðjohnsen og Sami Hyypiä mæt-
ast öðru sinni eftir ellefu daga þeg-
ar Chelsea og Liverpool leika í loka-
umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Leikurinn gæti skorið úr um það
hvort félagið kemst í Meistara-
deildarinnar.
Jari Litmanen og Mikael Fors-
sell, fyrrum samherji Eiðs Smára
hjá Chelsea, verða í fremstu víglínu
Finna. Litmanen hefur skorað 21
mark fyrir landsliðið og Forssell
sjö. Þeir léku síðast saman í fram-
línunni þegar Finnar unnu Portú-
gali 4:1 í Porto fyrir rúmu ári en þá
skoraði Litmanan tvö mörk og
Forssell eitt. ■
Finnar og Íslendingar leika í Vantaa í dag.
Sami Hyypiä gætir Eiðs Smára Guðjohnsen en
þeir mætast aftur í lokaumferð ensku úrvals-
deildarinnar eftir ellefu daga.
= allt er framkvæmanlegt Umboðsmenn og söluaðilar um land allt. Nánari upplýsingar er að finna á www.ok.is eða í síma 570 1000
Það er ekki að ástæðulausu að mest seldu netþjónar í heimi eru hp proliant.
Sjálfvirkt eftirlit, stöðugleiki og auðveld uppfærsla er meðal þeirra kosta sem
gera hp proliant að fyrsta valkosti hjá fyrirtækjum um allan heim.
Þegar saman fara stærsti framleiðandi tölva í heiminum og reynsla og örugg
þjónusta Opinna kerfa er valið hp proliant.
Kynntu þér málið og tryggðu starfsemi þinni öryggi og afköst með mest selda
netþjóni í heimi.*
hljóðlátur sigurvegari
+++ hp proliant mest seldi netþjónn í heimi +++
*S
am
kv
æ
m
t I
D
C
e
ru
p
ro
lia
nt
m
es
t s
el
du
n
et
þj
ón
ar
í
he
im
i á
rið
2
00
0,
2
00
1
og
2
00
2.
stöðugleiki
afköst
= hp proliant
+
A
B
X
9
03
03
14
FYRRI LEIKIR ÍSLANDS
OG FINNLANDS
2000 Ísland - Finnland 1:0 (La Manga)
Ríkharður Daðason
1982 Finnland - Ísland 3:2 (Helsinki)
Marteinn Geirsson, Atli Eðvaldsson
1980 Ísland - Finnland 1:1 (Reykjavík)
Pétur Pétursson
1976 Finnland - Ísland 1:0 (Helsinki)
1974 Ísland - Finnland 2:2 (Reykjavík)
Teitur Þórðarson, Marteinn Geirsson
1969 Finnland - Ísland 3:1 (Helsinki)
Ellert B. Schram (vsp)
1964 Ísland - Finnland 0:2 (Reykjavík)
1956 Finnland - Ísland 2:1 (Helsinki)
Ríkharður Jónsson (vsp)
1948 Ísland - Finnland 2:0 (Reykjavík)
Ríkharður Jónsson 2
Hyypiä
gætir Eiðs
Smára
EIÐUR SMÁRI
Eiður Smári Guðjohnsen fagnar marki
í ensku úrvalsdeildinni. Eiður Smári
mætir Sami Hyypiä í landsleiknum við
Finna í dag og aftur eftir ellefu daga
þegar Chelsea og Liverpool mætast í
ensku úrvalsdeildinni.
HÁTT STOKKIÐ
Það er oft hart barist og hátt stokkið þegar
ruðningsíþróttin er annars vegar. Hattie
Louw, leikmaður Suður-Afríku, þurfti að
taka á öllu sem hann átti til að komast
fram hjá vörn Nýja-Sjálands í viðureign
þjóðanna í Cape Town í Suður-Afríku á
dögunum.