Fréttablaðið - 30.04.2003, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 30.04.2003, Blaðsíða 13
13MIÐVIKUDAGUR 30. apríl 2003 Nám á meistarastigi sem opnar þér ný tækifæri MBA „MBA námið í HR hefur verið mér einstök lífsreynsla. Kennarar í náminu eru fyrsta flokks og lærdómurinn sem ég hef fengið veitti mér það sjálfstraust sem til þarf í stofnun fyrirtækis.“ Magnús Orri Schram BA í sagnfræði, GeM Class of 2003, framkvæmdastjóri og stofnandi Birtu vefauglýsinga Umsóknarfrestur er 28. maí • Námið hefst í ágúst 2003 www.ru.is/mba Alþjóðlegt MBA nám Háskólans í Reykjavík er ætlað einstaklingum með háskólapróf sem vilja styrkja stjórnunar- og leiðtogahæfileika sína. Námið byggir á sterkum tengslum við virta háskóla í Evrópu og Bandaríkjunum og kemur um þriðjungur kennara frá samstarfsskólunum. Námið tekur 22 mánuði og hægt er að stunda það samhliða vinnu. Á seinna árinu gefst nemendum kostur á að sérhæfa sig í fjármálum, mannauðsstjórnun eða Global eManagement – eða blanda saman valnámskeiðum af þessum sviðum. Nánari upplýsingar veitir: Þórdís Sigurðardóttir MBA, forstöðumaður MBA náms, s. 510 6285, mba@ru.is Dagana 12.–16. maí verða opnir hádegis- fundir í Háskólanum í Reykjavík þar sem MBA útskriftarnemar kynna lokaverkefni sín. Sjá nánar á www.ru.is MBA útskriftarhópur HR 2002 í Mexíkó. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N E H F/ SI A .I S H IR 2 09 87 0 3. 20 03 ELDFLAUGAMAÐURINN Amir Rashid Muhammad al-Ubaydi, fyrrum olíumálaráðherra Íraka, gaf sig sjálfur fram við bandaríska hernámsliðið. Eldflaugamaðurinn gefur sig fram: Eiginkonan Dr. Sýkill gengur laus KATAR, AP Fyrrum olíumálaráð- herra Íraka hefur gefið sig fram við bandaríska innrásarliðið. Amir Rashid Muhammad al-Ubaydi, einnig þekktur sem „eldflauga- maðurinn“, var númer 47 á lista Bandaríkjamanna yfir eftirlýsta valdamenn í Írak. Rashid, sem var einhver helsti eldflaugasérfræðingur ríkis- stjórnar Saddams Husseins, dró sig í hlé á síðasta ári, 65 ára að aldri. Hann er giftur örveirufræð- ingnum Rihab Taha, sem gengur undir nafninu Dr. Sýkill. Rihab Taha hafði umsjón með sýkla- vopnaframleiðslu íraskra yfir- valda og er hún líka eftirlýst af Bandaríkjamönnum. Talið er víst að hjónin búi yfir vitneskju sem geti komið bandarískum vopnaeft- irlitsmönnum að miklu gagni. ■ Verkfall heilbrigðisstarfs- manna: Starfsemi sjúkrahúsa í lamasessi SVÍÞJÓÐ Loka hefur þurft deildum á sjö sjúkrahúsum og fresta fjölda aðgerða vegna verkfalls um 700 heilbrigðisstarfsmanna í Svíþjóð. Aðstoðarhjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og starfsfólk á rann- sóknarstofum ákváðu að leggja niður vinnu í eina viku þegar slitnaði upp úr samningaviðræð- um um kaup og kjör. Sama dag og verkfall heil- brigðisstarfsmannanna hófst lauk sjö daga verkfalli 9.000 opinberra starfsmanna í Svíþjóð. Starfs- mennirnir hafa boðað til annars verkfalls 5. maí ef ekki nást samn- ingar fyrir þann tíma. ■ Þátttakan í innrásinni í Írak skilar árangri: Dönsk fyrirtæki með í uppbyggingu Íraks KAUPMANNAHÖFN, DR Danska risa- fyrirtækið A.P. Möller hefur ver- ið beðið um að taka þátt í upp- byggingunni í Írak að stríðinu af- loknu. Fyrst og fremst hafa Bandaríkjamenn áhuga á reynslu A.P. Möller í birgðahaldi, flutn- ingum og olíuvinnslu. Jess Söderberg, stjórnandi A.P. Möller-samsteypunnar, segir fyrirtækið hafa góða reynslu í olíuvinnslu úr kalkríkum jarðlög- um eins og þeim sem séu í Írak. „Hvort við eigum að taka þátt sem ráðgjafar eða taka þátt í hinni eiginlegu olíuvinnslu er enn ekki ljóst,“ segir Söderberg. Danir tóku þátt í innrás Bandaríkjamanna og Breta í Írak með því að leggja til ýmis her- gögn. Fljótlega eftir að Saddam Hussein hafði verið steypt af stóli tilkynntu bandarísk stjórn- völd að áðurnefndar bandalags- þjóðir, ásamt Áströlum, sem líka tóku þátt í innrásinni, myndu sitja fyrir um uppbyggingar- verkefni í Írak. Danskir fjölmiðlar segja að enn fremur hafi verið haft sam- band við ýmis önnur dönsk verk- takafyrirtæki vegna Íraks. Þetta séu fyrirtæki sem sérhæfð séu í verkum á borð við vegagerð og skolplagnir. ■ Norskur ráðherra: Írakar verði sendir heim NOREGUR, AFTENPOSTEN Ráðherra sveitarstjórnarmála í Noregi vill að allt að 3.500 Írakar sem eru í land- inu án dvalarleyfis fari úr landi. „Nú þegar stríðinu er lokið geng ég út frá að allir Írakar án dvalar- leyfis yfirgefi landið tiltölulega skjótt. Annars munu norsk stjórn- völd hefja útflutning þeirra,“ segir Erna Solberg. Alls eru um 17 þúsund manns frá Írak í Noregi. Flestir eru Kúrdar. Solberg segir þá flesta vera efna- hagslega en ekki pólitíska flótta- menn. Öryggi þeirra í Kúrdahéruð- unum hafi verið nokkuð tryggt fyr- ir stríðið. Nú sé það enn betra. ■ ANDERS FOGH RASMUSSEN Forsætisráðherra Dana og stjórn hans út- deila nú verkefnum sem bandarísk stjórn- völd vilja að Danir vinni vegna uppbygg- ingar í Írak.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.