Fréttablaðið - 30.04.2003, Page 6
6 30. apríl 2003 MIÐVIKUDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 75.82 0,80%
Sterlingspund 120.66 0,52%
Dönsk króna 11.20 0,00%
Evr 83.16 0,17%
Gengisvístala krónu 119,35 -0,04%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 373
Velta 4.391 milljónir
ICEX-15 1.414 0,41%
Mestu viðskipti
Íslandsbanki hf.309.596.937
Landsbanki Íslands hf.270.405.281
Ker hf. 186.488.418
Mesta hækkun
Fiskmarkaður Íslands hf.14,29%
Baugur Group hf. 1,92%
Össur hf. 1,72%
Mesta lækkun
Hraðfrystistöð Þórshafnar hf. -11,11%
Þormóður rammi-Sæberg hf. -4,65%
Síldarvinnslan hf. -2,13%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8481,9 0,1%
Nasdaq*: 1468,8 0,5%
FTSE: 3927,8 -0,3%
DAX: 2941,6 -0,4%
NIKKEI: 7607,9 -1,2%
S&P*: 914,6 0,0%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Staðfest hefur verið að í einu Asíu-landi hafi tekist að stöðva útbreiðslu
bráðalungnabólgunnar. Hvaða land er
þetta?
2Hvað heitir framkvæmdastjóri Sjálf-stæðisflokksins sem lagði fram kvört-
un vegna fréttaflutnings Ríkisútvarpsins af
kosningafundi Davíðs Oddsonar á Ísa-
firði?
3Hvaða heimsfræga söng- og leikkonahefur tekið að sér hlutverk í fjórðu
myndinni um njósnarann Austin Powers?
Svörin eru á bls. 38
Viðurkennt að ræða eigi um samstæðuna
en ekki bara borgarsjóð:
Skuldaklukkan dregur
á eignaklukkuna
ÁRSREIKNINGUR Björn Bjarnason,
oddviti sjálfstæðismanna í borg-
arstjórn, segir fagnaðarefni að
meirihlutinn í borgarstjórn hafi
loks viðurkennt að fjalla eigi sam-
an um borgarsjóð og fyrirtæki
borgarinnar þegar rætt er um af-
komu Reykjavíkur, eins og sjálf-
stæðismenn hafa gert. Meirihlut-
inn hafi gengist inn á þetta með
því að telja fram að afgangur
væri á rekstri borgarsamstæð-
unnar um 2,5 milljarða. Björn seg-
ir þó að það virðist gert vegna
þess að aðrar tölur sýni allar nei-
kvæða útkomu á rekstri borgar-
innar.
„Skuldaklukkan gengur núna
hraðar en eignaklukkan,“ segir
Björn. „Ef við leiðréttum vegna
óreglulegra liða rýrnar eigið fé
borgarsjóðs um einn milljarð á ár-
inu.“ Þá standi það eftir að rekst-
ur borgarinnar hafi gengið verr
en stefnt var að. „Þessir reikning-
ar sýna rekstrartap um fjóra
milljarða króna á árinu fyrir fjár-
magnsliði,“ segir Björn um borg-
arsjóð. „Ef við lítum á samstæð-
una í heild er rekstrartapið 3,3
milljarðar króna á árinu. Það er
sama hvernig við reiknum þetta
varðandi borgarsjóð sjálfan, niður-
staðan er neikvæð.“ Að teknu tilliti
til óreglulegra liða er afkoma
borgarsjóðs neikvæð um einn
milljarð en borgarsamstæðunnar
jákvæð um 2,5 milljarða. ■
Í KAUPHÖLLINNI
Sérfræðingar segja að fólk geti smitast af
bráðalungnabólgu með því að snerta hluti
sem sýktir einstaklingar hafi handleikið.
Bankar sótthreinsa fé:
Löglegt pen-
ingaþvætti
PEKING, AP Kínverskar bankastofn-
anir hafa ákveðið að sótthreinsa
alla seðla og mynt sem þær fá í
hendurnar. Með þessu ætla bank-
arnir að leggja sitt af mörkum til
þess að hefta útbreiðslu
bráðalungnabólgunnar.
Iðnaðar- og verslunarbanki
Kína hefur nú þegar gripið til
þess ráðs að geyma peningana í
einn sólarhring áður en þeir fara í
umferð aftur, en rannsóknir hafa
sýnt að það taki HABL-veiruna
innan við 24 klukkustundir að
drepast. Bankinn sótthreinsar
jafnframt seðla með því að setja
þá undir útfjólublátt ljós í eina
klukkustund. Fyrirhugað er að
byrja að þvo alla peninga með
sótthreinsunarefni á næstu
dögum. ■
Íslendingur situr í fangelsi í Abu Dhabi:
Gátum ekkert gert
FANGELSI „Ég veit ekkert um mál-
ið nema það sem komið hefur
fram í fréttum,“ segir Magnús
Ásgeirsson skipstjóri um stýri-
manninn sem var handtekinn í
Sameinuðu arabísku furstadæm-
unum. Fjórir Íslendingar voru á
heimleið eftir að hafa siglt Svani
RE til nýrra eigenda. Á flugvell-
inum í Dubai var einn þeirra
handtekinn þar sem riffill fannst
í farangri hans og hann fluttur
nokkrum dögum síðar í fangelsi
í Abu Dhabi.
Magnús segir að hvorki hann
né skipsfélagar hans hafi haft
hugmynd um að hann væri með
riffil með sér. „Það er enginn
sem gerir svona. Þegar það kom
í ljós hvað málið var gátum við
hinir ekkert gert nema koma
okkur úr landi. Ég þekki mann-
inn nokkuð vel og það er vont að
vita af honum þarna, bara ekk-
ert við því að gera. Málið fer
sína leið, eftir réttarfarsreglum
þessa lands, svo er að sjá hvað
diplómatarnir geta gert. Ég hef
trú á að það verði dæmt í þessu
fljótlega og hann losni, þó maður
viti aldrei, það er alltaf vont að
eiga við þetta,“ segir Magnús. ■
BJÖRN BJARNASON
Þegar það hentar meirihlutanum dregur hann fram tölur um afkomu borgarsamstæðunnar
þó hann hafi neitað því þegar rætt var um skuldaaukningu borgarinnar upp á 1.100%.
SKIPIÐ FLUTT TIL ASÍU
Verið var að flytja Svan RE til nýrra eigenda.
SVEITARSTJÓRNARMÁL „Ég tel að
reksturinn sé í mjög góðu jafn-
vægi,“ segir Þórólfur Árnason
borgarstjóri um ársreikning
Reykjavíkurborgar sem var lagður
fram í gær. Útgjöld eru 17 milljón-
um króna lægri en heimildir voru
til samkvæmt ráðstöfunarramma
þegar hann hefur verið aðlagaður
að breyttum reikningsskilum, sem
nú eru viðhöfð í fyrsta sinn. „Ég tel
(þetta) eins nálægt því að hitta í
mark og hægt er í rekstri upp á
nærri 30 milljarða þegar allt er tek-
ið,“ segir Þórólfur.
Afkoma borgarsjóðs var tveim-
ur og hálfum milljarði króna lakari
samkvæmt ársreikningi en stefnt
hafði verið að, halli var upp á einn
milljarð en stefnt hafði verið að
eins og hálfs milljarðs króna af-
gangi. Helstu skýringar á þessari
niðurstöðu eru að lífeyrisskuld-
binding hækkaði um 2,3 milljarða
umfram það sem hafði verið áætlað
og afskriftir eru færðar meðal
rekstrargjalda í fyrsta skipti.
Gengishagnaður upp á 1,4 milljarða
kemur á móti þessum hækkuðu út-
gjöldum.
Heildartekjur borgarsjóðs námu
32 milljörðum króna en útgjöld 36
milljörðum. Fjármunatekjur skil-
uðu þremur milljörðum á móti
þeim mismun.
Rekstur borgarsjóðs og fyrir-
tækja í eigu borgarinnar skilaði
tveimur og hálfum milljarði króna í
afgang.
Langtímaskuldir borgar-
samstæðunnar nema 47 milljörðum
króna, átta milljörðum meira en
2001. Skammtímaskuldir nema ell-
efu milljörðum króna, svipað og
árið áður, og skiptast jafnt milli
borgarsjóðs og fyrirtækja í eigu
borgarinnar.
Borgarstjóri lýsti ánægju með
hátt eignafjárhlutfall borgarinnar,
sem nemur 52,2%. Vaxtakjör borg-
arinnar væru einnig betri en gerist
meðal sambærilegra aðila, sem
sæist best á því að meðalvextir af
erlendum lánum væru þeir sömu
og ríkið er að borga.
brynjolfur@frettabladid.is
ÁRSREIKNINGURINN KYNNTUR
Þórólfur Árnason borgarstjóri og embættis-
menn borgarinnar kynntu ársreikning
Reykjavíkurborgar og fyrirtækja hennar fyrir
síðasta ár.
Milljarðs halli
á borgarsjóði
Rekstur borgarsamstæðunnar var jákvæður um tvo og hálfan
milljarð króna. Reksturinn er í góðu jafnvægi, segir borgarstjóri.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/
RÓ
B
ER
T
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/
VI
LH
EL
M
ABBAS SAMÞYKKTUR Palestínska
þingið samþykkti í gær skipun
Mahmoud Abbas í embætti forsæt-
isráðherra heimastjórnarinnar.
Skipan hans hefur verið talin for-
senda fyrir friðarviðræðum milli
Ísraela og Palestínumanna. Abbas
vill sjálfstætt ríki Palestínumanna
en hafnar ofbeldi.
■ Palestína
Öryggisgæsla hert í
Bagdad:
Ný stjórn á
næstunni
BAGDAD, AP Á fundi bandaríska
hernámsliðsins og hagsmuna-
aðila í Írak var tekin ákvörðun
um að koma saman í næsta mán-
uði til að skipa bráðabirgða-
stjórn fyrir landið.
Margir af helstu áhrifamönn-
um í Írak sniðgengu fundinn,
þar á meðal tveir kúrdískir
flokksleiðtogar og formaður
íraska Þjóðþingsflokksins. Engu
að síður sagðist fulltrúi Banda-
ríkjanna bjartsýnn á að sam-
staða um nýja stjórn myndi nást
innan fárra vikna.
Bandaríski herinn hefur til-
kynnt að á næstu dögum muni
taka til starfa allt að 4.000 her-
lögreglumenn sem ætlað er að
stöðva þá óöld sem ríkir í Írak.
Strangar öryggisreglur eru við
lýði í Bagdad. Útgöngubann er í
gildi á nóttunni, opinberum
starfsmönnum hefur verið gert
að snúa aftur til vinnu og með-
limir Baath-flokksins verða að
gefa sig fram við hernámsliðið,
svo fátt eitt sé nefnt.
Á meðan hagsmunaaðilar
ráða ráðum sínum um framtíð
Íraks vinna bandarískar
hersveitir og heimamenn að því
að endurheimta muni sem stolið
hefur verið úr íröskum söfnum.
Safnamenn víða um heim vilja
að landamærum Íraks verði
lokað til að forðast smygl. ■