Fréttablaðið - 30.04.2003, Qupperneq 27
Nú er að skella yfir flóð af ís-lenskum og erlendum stutt-
myndum í Háskólabíói á hátíð sem
sett er í dag og stendur í tvær vik-
ur. Það er líklega ómögulegt fyrir
nokkurn mann að ná að sjá alla
heildina. Hér er aðeins brot af
þeim 43 myndum sem frumsýndar
verða á „Shorts & Docs“-hátíðinni.
Hryðjuverkamaðurinn minn
Sterk verðlaunamynd eftir
Yulie Gerstel Cohen, sem starfaði
sem flugfreyja hjá ísraelsku flug-
félagi og særðist í árás hryðju-
verkamannsins Fahad Mihyi í
London árið 1978. Hún var við-
stödd þegar hann var dæmdur í
ferfalt lífstíðarfangelsi. Tuttugu
árum síðar fóru að sækja á hana
hugsanir um hryðjuverkamann-
inn. Í dag vill hún brjóta vítahring
ofbeldis með því að fyrirgefa eldri
syndir. Hún styður til dæmis að
hryðjuverkamaðurinn sem særði
hana verði látinn laus. Myndinni
má líkja við hraðnámskeið í blóði
drifinni sögu Ísraels allt frá sex
daga stríðinu til uppreisnar Palest-
ínumanna á hernumdu svæðunum
og áhrifa hryðjuverka, hernaðar
og ofbeldis.
Allt um föður minn
Dönsk heimildarmynd um
Esbeb Esther Pirelli Benestad,
sem er virtur læknir í smábænum
Grimstad í Noregi. Hann er einnig
tveggja barna faðir og klæðskipt-
ingur. Höfundur myndarinnar er
sonur hans og eltir hann föður
sinn með litla myndbandsvél og
sýnir búta úr gömlum fjölskyldu-
mynum. Sérstæð sýn inn í líf
klæðskiptingsins.
Viktor og bræður hans
Það er langt liðið á sumar. Vikt-
or er tíu ára og á tvo bræður sem
þola ekki hvorn annan. Viktor
þarf að sjá til þess að þeir hittist
ekki. Þannig hefur það alltaf verið
og mistakist honum er voðinn vís.
En þegar faðir þeirra verður
fimmtugur vill hann að öll fjöl-
skyldan fari í sumarbústaðinn.
Saman.
Fjölskylda
Persónuleg verðlaunamynd um
Sami Saif, sem ákveður að hafa
uppi á föður sínum eftir dauða
móður og bróður hans. Faðirinn
yfirgaf danska fjölskyldu sína
þegar Sami var lítill. Hann veit
ekkert um föðurfjölskyldu sína
þegar leitin hefst en skömmu síð-
ar er hann kominn til Jemen og
hittir þar menn sem eru með há
kollvik, bumbur og mjóar lappir
eins og hann sjálfur.
Börn Pinochets
Mynd um þrjá leiðtoga í and-
spyrnuhreyfingu stúdenta á
valdatíma Pinochet í Chile. Kyn-
slóð þeirra varð utanveltu í fyrstu
eftir að lýðræði komst aftur á og
fann sér ekki stað í uppbyggingu
samfélagsins. Í myndinni er lífs-
hlaupi fyrrum leiðtoganna fléttað
saman við stjórnmálaástandið í
heimalandi þeirra uns sósíalistinn
Ricardo Lagos er kjörinn forseti
og Pinochet fer loksins frá völd-
um og hringnum er loks lokað.
Allens saknað
Kvikmyndatökumaðurinn
Allen Ross gerði sjö myndir með
þýska leikstjóranum Christian
Bauer, en skömmu eftir að tökum
á síðustu mynd þeirra saman lauk
hvarf Allen. Hvorki fjölskylda
hans né vinir hafa heyrt frá hon-
um í fjögur ár þegar Christian
Bauer snýr aftur til Bandaríkj-
anna til að hefja leit að félaga sín-
um og vini. Í ljós kemur að líf
Allens, stuttu áður en hann hvarf,
var ólíkt öllu sem Bauer taldi sig
vita um vin sinn, meðal annars
var hann í tengslum við sértrúar-
hóp sem er í sambandi við vits-
munalíf á öðrum hnöttum og
tengist Branch Davidian-hópnum
sem hélt til í Waco í Texas.
Starkiss
Fimmtíu stúlkur á aldrinum 4-
24 ára eru í hinum fræga Great
Rayman-sirkus á Indlandi. Þær
búa einangraðar frá öðrum í
sirkusnum og mega engan hitta
nema þjálfarana sem þær æfa
hjá á hverjum degi. Stúlkurnar
eru eign sirkussins, foreldrar
þeirra fengu greiðslu þegar út-
sendari sirkussins sótti þær til
afskekktra og fátækra héraða
Indlands og Nepals, og þær geta
ekki hætt fyrr en þær hafa unnið
fyrir útborguninni. Erfiðasta at-
riðið sem þær framkvæma heitir
„Starkiss“ þar sem þær hanga á
tönnunum í kaðli og snúast hring
eftir hring.
Stevie
Stevie býr í hjólhýsi hjá
stjúpömmu sinni sem ól hann upp.
Mamma hans býr skammt frá en
þau tala sjaldan saman. Hann hef-
ur aldrei fengið að vita hver faðir
hans var. Æska hans var gegnsýrð
af ofbeldi og misnotkun, og tog-
streitu milli móður hans og stjúp-
ömmu. Stevie er atvinnulaus og
hafði verið í mörg ár þegar gerð
myndarinnar hófst. Hann á að
baki misheppnað hjónaband en
hefur í nokkur ár verið í sambandi
við þroskahefta konu. Þegar vinna
við myndina var langt komin var
Stevie ákærður fyrir alvarlegan
glæp sem hefur áhrif á alla fjöl-
skyldu hans.
Ruthie & Connie
Tvær ungar, giftar konur í
hverfi gyðinga í New York, báðar
mæður ungra barna, hittast og
verða vinkonur. Þær heita Ruthie
Berman og Connie Kurtz, venju-
legar húsmæður á sjötta ára-
tuginum, en óvenjulegar um
tvennt. Þær hafa brennandi
áhuga á samfélagsmálum, sem
setur þær í fremstu víglínu í
hagsmunabaráttu hverfisins.
Þær voru einnig elskendur og
ákváðu að koma úr felum með
ástarsamband sitt þótt það kost-
aði miklar fórnir.
Biggie og Tupac
Ný mynd eftir hinn fræga
heimildamyndahöfund Nick
Broomfield, sem rannsakar hér
óupplýst morð rapparanna Tupac
Shakur og Biggie Smalls. Þeir
voru myrtir með sex mánaða
millibili 1996 og 1997. Margir hafa
talið að fjandskapur þeirra og
samkeppni hafi orðið til þess að
þeir voru myrtir, en rannsókn
Broomfields leiðir ýmislegt nýtt í
ljós um morðin tvö. ■
MIÐVIKUDAGUR 30. apríl 2003 23
Sjö íslenskar myndir
frumsýndar
Sjö íslenskar myndir verðafrumsýndar á heimildar-
mynda- og stuttmyndahátíðinni
„Shorts & Docs“.
Glæpasaga er stuttmynd eftir
Örn Marínó Arnarson og Þorkell
Sigurð Harðarson. Hún fjallar um
Begga og Rikka, tvo smákrimma
sem vilja komast á spjöld sögunn-
ar sem stórglæpamenn á Íslandi.
Fyrsta ferðin – Saga landa-
fundanna er heimildarmynd Kára
G. Schram og greinir frá afrekum
víkinga sem landkönnuða og sigl-
ingafræðinga. Íslenskir víkingar
voru fyrstu Evrópumennirnir
sem fundu og námu síðar land í
Norður-Ameríku undir forystu
Leifs heppna um 500 árum á und-
an Kólumbusi.
Gamla brýnið er heimildar-
mynd eftir Hjálmtý Heiðdal. Þar
er fylgst með lífinu í Ófeigsfirði á
Ströndum þar sem menn hafa lif-
að af gæðum landsins kynslóð
fram af kynslóð, stundað landbún-
að, fiskveiðar og fuglatekju og
nýtt rekavið til húsagerðar. Menn
eins og Pétur Guðmundsson,
hlunnindabóndi í Ófeigsfirði, nýta
hlunnindin á sama hátt og forfeð-
ur hans hafa gert öldum saman.
Heimildarmyndin Við byggj-
um hús er eftir Þorstein Jónsson,
sem réð sig í vinnu sem verka-
maður við að byggja stórt skrif-
stofuhús. Hann gerði því þessa
heimildarmynd með hamar í
annarri hendi og upptökuvél í
hinni. Áhorfandinn kynnist sam-
starfsfélögum hans og draumum
þeirra.
Teitur Árnason sýnir tvær
heimildarmyndir undir yfir-
skriftinni Burthugur. Í þeirri
fyrri er skyggnst inn í fábrotið líf
íbúa í Hattarvík í Færeyjum. Hin
myndin er tekin á Kúbu árið 2002
og er þar fylgst með daglegu lífi
þriggja manna, sjómanns, tónlist-
armanns og syngjandi skálds.
Moving North er samheiti yfir
10 stuttar dansmyndir sem gerð-
ar voru í samvinnu allra Norður-
landanna. Tvær þeirra eru ís-
lenskar. Burst eftir Reyni Lyng-
dal og Katrínu Hall sýnir sam-
skipti kynjanna í nýju ljósi.
Hin myndin, While the Cat’s
Away, er eftir Helenu Jónsdóttur
og Unni Ösp Stefánsdóttur. Með-
an upptekin dóttirin er í vinnu
notar móðirin tækifærið og lætur
draum sinn rætast. Hlýlegt grín
um sjálfsvirðingu, drauma og
ævintýri eldri borgara.
Síðast en ekki síst er heimild-
armyndin Ég er arabi sem fjallar
um andstöðu Íslendinga gegn
stríðinu í Írak. Myndin er eftir
Sigurð Guðmundsson og Ara Al-
exander Ergis Magnússon og í
henni tjá 37 Íslendingar sig um
málið. ■
■ KVIKMYNDIR
FYRSTA FERÐIN
Í stutt- heimildamyndinni „Fyrsta ferðin - Saga landafundanna“ er íslenskum víkingum
gert hátt undir höfði hvað sjómennsku varðar.
Flóð heimildar-
og stuttmynda
Í dag hefst heimildar- og stuttmyndahátíðin Shorts & Docs í Háskóla-
bíói. Þar verða frumsýndar 43 myndir frá 14 löndum, þar á meðal sjö ís-
lenskar. Dagskráin er fjölbreytt og glæsileg.
STARKISS
Mynd er fjallar um indverskar stúlkur sem eru í eins konar þrælahaldi í „Great Rayman“
sirkúsnum.
■ KVIKMYNDIR