Fréttablaðið - 30.04.2003, Síða 37
Við fórum á heimsleikana íStokkhólmi fyrir fjórum árum
og unnum þá silfur í pílukasti og
brons í sjómanni,“ segir Hörður J.
Halldórsson slökkviliðsmaður,
sem er að undirbúa sig fyrir
Heimsleika slökkviliðs-og lög-
reglumanna sem haldnir verða í
Barcelona í lok júlí. Hörður er í
hópi 20 fulltrúa slökkviliðs höfuð-
borgarsvæðisins og keppir í fót-
bolta. Heimsleikarnir eru haldnir
annað hvert ár, síðast í Bandaríkj-
unum: „Við slepptum þeim leikum
en förum nú til Spánar og ætlum
að reyna að gera betur en í Stokk-
hólmi,“ segir Björn.
Lögreglumenn vildu ekki vera
með að þessu sinni og því fara
eingöngu slökkviliðsmenn frá
Íslandi, samhentur hópur sem
hefur æft vel og veit að hverju
hann gengur. Telur sig meira að
segja eiga góða von um að komast
á verðlaunapall: „Við keppum í
fótbolta, lyftingum, karate, sjó-
manni og pílukasti en keppnis-
greinarnar á heimsleikunum eru
reyndar miklu fleiri. Mér telst til
að þarna verði tíu þúsund kepp-
endur þannig að maður gengur
ekki að sigri vísum,“ segir Hall-
dór.
Í íslenska hópnum er ein kona
og keppir hún í karate. Hún er
slökkviliðskona að atvinnu. ■
33MIÐVIKUDAGUR 30. apríl 2003
Höfum fengið til landsins fullan gám af frábæru
7mm smellu-plastparketi. Ekkert lím, ekkert vesen.
Allt verður selt á sama ótrúlega góða verðinu!
ATH: Þetta glæsilega tilboð gildir aðeins í þetta eina skipti!
Stærsti
sýningarsalur
með gólfefnum
á landinu
Eik Kirsuber Beyki
Aðeins kr. 1.190,- pr. m2
Aðeins k
r. 1.190,- p
r. m2
Aðeins k
r. 1.190,- p
r. m2
Aðeins k
r. 1.190,- p
r. m2
Einn gámur
eitt verð!
E
in
n
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
2
8
7
.0
1
2
VÍGINGA
plastparket
Ingi Björn Albertsson, fyrrumalþingismaður og knattspyrnu-
stjarna, hefur sett veitingastað
sinn, Si Señor við Lækjargötu, á
söluskrá:
„Það var aldrei ætlun mín að
festast í þessum veitingahúsa-
rekstri og nú ætla ég að snúa mér
að því sem ég hef alltaf verið í og
ætla að vera í, innflutningi,“ segir
Ingi Björn, sem áður hefur komið
að rekstri fjölmargra veitinga-
húsa í höfuðborginni. Rak til
skamms tíma Gauk á Stöng, Cafe
óperu og indverska veitingastað-
inn Shalimar í Austurstræti. Si
Señor hefur Ingi Björn rekið í
hálft annað ár.
Samkvæmt söluauglýsingu er
húsaleiga í Lækjargötu 10, þar
sem veitingastaðurinn er til húsa,
560 þúsund krónur á mánuði.
Samningurinn er til 10 ára og með
í kaupunum getur fylgt bjórsamn-
ingur við Vífilfell að upphæð sex
milljónir króna.
Þegar Ingi Björn hefur selt
veitingastaðinn flytur hann sig al-
farið um set í gömlu heildverslun
Alberts Guðmundssonar á Grund-
arstíg 12: „Ég verð heildsalinn í
hverfinu svona eins og kaupmað-
urinn á horninu,“ segir hann. ■
SI SEÑOR
Glæsilegur veitingastaður í hjarta höfuð-
borgarinnar. Húsaleiga 560 þúsund krónur
á mánuði.
Viðskipti
■ Veitingastaðurinn Si Señor við Lækjar-
götu er til sölu. Ingi Björn Albertsson,
fyrrum alþingismaður og knattspyrnu-
hetja, hefur rekið staðinn í hálft annað ár
en ætlar nú alfarið að snúa sér að inn-
flutningi og rekstri heildsölu Alberts Guð-
mundssonar.
Ingi Björn selur Si Señor
KEPPNISHÓPUR SLÖKKVILIÐSMANNANNA
Keppir í pílukasti, sjómanni, fótbolta, karate og lyftingum.
Alþjóðasamstarf
■ Heimsleikar slökkviliðs- og lögreglu-
manna verða haldnir í Barcelona í lok
júlí. Íslendingar senda 20 manna hóp á
leikana; eingöngu brunaverði því lög-
reglumennirnir vildu ekki vera með.
Brunaverðir fara
til Barcelona
■ Andlát
Grétar Árnason, Neðstaleiti 6, Reykja-
vík, lést 27. apríl.
Ásgeir Kristinn Ásgeirsson, Garðabraut
45, Akranesi, lést 26. apríl.
Valtýr Júlíussson, Hítarneskoti, Kol-
beinsstaðahreppi, lést 26. apríl.
Anna Einarsdóttir, Bugðutanga 8, Mos-
fellsbæ, lést 25. apríl.
Elín Jónsdóttir, Köldukinn, Hafnarfirði,
lést 25. apríl.
Sigurborg Ingimundardóttir, Brekku,
Aðaldal, lést 25. apríl.
Anna Soffía Axelsdóttir Guest lést í
Brinkworth, Englandi, 24. apríl.
Helga Bæringsdóttir lést 24. apríl.
■ Jarðarfarir
14.00 Andrés Andrésson, Skagabraut
25, Akranesi, verður jarðsunginn
frá Akraneskirkju.
15.00 Kristín Sigurðardóttir verður
jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafn-
arfirði.
Hafnarbúðir við Geirsgötuvoru teiknaðar af Einari
Sveinssyni borgararkitekt. Eitt
helsta baráttumál hafnarverka-
manna í Reykjavík var að koma
upp skýli fyrir verkamenn. Lengi
vel beið þeirra ekkert skjól. Mörg
ár liðu áður en þetta glæsilega hús
var reist. Þróun hafnarstarfsemi
var á þá leið að ekki varð mikil
þörf fyrir verkamannaskýli við
gömlu höfnina.
Þegar gos hófst í Vestmanna-
eyjum varð húsið miðstöð Eyja-
manna sem þurftu að flýja heim-
kynni sín. Um tíma var þar heim-
ili fyrir aldraða sjúklinga. Síðustu
misserin hefur veitingastaðurinn
Tveir fiskar verið í húsinu. ■
■ Húsið