Fréttablaðið - 30.04.2003, Side 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Velferð
Bakþankar
ÞRÁINS BERTELSSONAR
Þessa dagana er samúð mín öll hjáfólki sem er í atvinnuleit. Eink-
um og sér í lagi því fólki sem er að
reyna að fá vinnu við að sitja á Al-
þingi. Þetta fólk þarf að sannfæra
íbúa í heilu kjördæmi um ágæti sitt
meðan aðrir atvinnuleysingjar þurfa
aðeins að sannfæra einn vinnuveit-
anda eða starfsmannastjóra. Ráðn-
ingarsamningurinn er í besta falli til
fjögurra ára, launin eru um 400 kall
á mánuði plús nefndir, bitlingar,
ferðalög og dagpeningar og líkurnar
á yfirmannsstarfi (ráðherra) eru 1:6.
GÓÐUR FRAMBJÓÐANDI er
brosmildur, hlýlegur, alvitur um
rekstur og afkomu ríkisins, mælskur,
kurteis, ýtinn, fyndinn, fylginn sér og
annaðhvort karlkyns eða kvenkyns,
þó frekar karlkyns, en svo mikill
jafnréttissinni í hjarta sínu að ekki
væri vitund betra fyrir þróun jafn-
réttismála þótt kona skipaði sæti
hans á listanum. Góður frambjóðandi
býður af sér góðan þokka, hefur góða
útvarpsrödd og má ekki svitna mikið
í sjónvarpi né hafa flóttalegt augna-
ráð eins og hann sé staddur á súlu-
stað en ekki í sjónvarpsstúdíói.
GÓÐUR FRAMBJÓÐANDI hef-
ur brennandi áhuga á að lækka
skatta, hækka laun, bæta velferðar-
kerfið, auka samgöngur, stuðla að
jafnvægi í byggð landsins (hvað sem
það nú þýðir), bæta kjör ungs fólks,
tryggja afkomu aldraðra, og bla, bla,
bla, bla. Góður frambjóðandi má
ekki láta nokkurn lifandi mann finna
á sér hvort hann sé með eða á móti
aðild Íslands að Evrópusambandinu
fyrr en hann veit úr hvaða átt vind-
urinn blæs. Og hann/hún verður að
viðurkenna að það sé forgangsmál
að lagfæra óréttlæti kvótakerfisins –
án þess auðvitað að breyta kerfinu.
TIL 10. MAÍ munu stjórnmála-
flokkarnir verja að minnsta kosti
tvö- til þrjúhundruð milljónum króna
(300.000.000 kr.) til að útmála kosti
sína og frambjóðenda sinna – sem er
alls ekki há upphæð miðað við
hversu margir eru í framboði og hve
miklu fjármagni þarf að eyða til að
gera suma þeirra verulega lystuga.
Svo kemur kosninganóttin og þegar
líður að óttu láta frambjóðendur sig
hverfa eins og ótrúir elskhugar í
stað þess að færa þjóð sinni kaffi í
rúmið. En ástin er dásamleg – meðan
hún varir. ■
Góður fram-
bjóðandi