Fréttablaðið - 14.05.2003, Síða 16
17MIÐVIKUDAGUR 14. maí 2003
FÓTBOLTI David Moyes, knattspyrnu-
stjóri Everton, hefur verið valinn
stjóri ársins í ensku úrvalsdeildinni
í knattspyrnu af kollegum sínum í
deildinni.
Moyes, sem er fertugur, er
yngsti stjórinn sem vinnur þessi
verðlaun. Undir hans stjórn lenti
Everton í sjöunda sæti deildarinnar
eftir að hafa lengi vel verið á meðal
efstu liða.
Liðið rétt missti af sæti í Evr-
ópukeppninni og olli það Moyes
miklum vonbrigðum. „Ég er himin-
lifandi og undrandi yfir því að hafa
unnið verðlaunin,“ sagði Moyes.
„Vonbrigðin sem við urðum fyrir í
lokin eru hins vegar gríðarleg.“ ■
David Moyes:
Stjóri ársins
FÓTBOLTI Paolo di Canio, leikmaður
West Ham sem er fallið í 1. deild,
er ósáttur við stjórn liðsins og tel-
ur að hún hefði átt að styrkja leik-
mannahópinn betur þegar tæki-
færið gafst í janúar.
„Þegar lið fellur er það ekki
bara leikmönnunum að kenna. Ég
tek einhverja ábyrgð en á heilli
leiktíð fara margir hlutir úrskeið-
is,“ sagði Ítalinn knái. „Það kemur
á óvart að við skulum hafa fallið
þegar menn hafa völd til að breyta
hlutunum en gera það ekki.“ ■
Opna Parket & Gólf móti›
Golfklúbbur fiorlákshafnar
Ver›ur haldi› Laugardaginn 17 Mai
Texas scramble (2x 9holur.)
1 Ver›laun 20.000 kr x 2 Úttekt í Gólfbú› Hafnafjar›ar
2 Ver›laun 15.000 kr x 2 Úttekt í Gólfbú› Hafnafjar›ar
3 Ver›laun 8.000 kr x 2 Úttekt í Gólfbú› Hafnafjar›ar
Ræst út frá 9:00-13:00
Hámarksforgjöf 24
fiátttökugjald 2.500 kr pr. mann
Skráning er á www.golf.is og
í síma á mótsdegi:
696-1370 Sigrí›ur
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
DI CANIO
Di Canio, sem skoraði jöfnunarmark West
Ham gegn Birmingham um helgina, fer að
öllum líkindum frá liðinu í sumar.
Paolo di Canio:
Ósáttur við stjórn
West Ham
KÖRFUBOLTI Jason Kidd skoraði 29
stig, tók 10 fráköst og átti 9
stoðsendingar þegar New Jersey
Nets vann Boston Celtics með 110
stigum gegn 101 í tvíframlengd-
um leik í úrslitakeppni NBA í
fyrrakvöld.
Nets vann þar með einvígið 4:0
og er komið í úrslit Austurdeildar-
innar. Þar mætir liðið annað hvort
Detroit Pistons eða Philadelphia
76ers, en þar er staðan jöfn 2:2.
„Að sópa upp liði Boston Celt-
ics er í raun sögulegt,“ sagði Kidd
eftir leikinn. „Þeir hafa átt svo
mörg góð lið í gegnum tíðina.“ ■
BARÁTTA
Zinedine Zidane, leikmaður Real Madrid, í baráttu við Alessandro Del Piero,
í fyrri leik liðanna sem var háður í Madrid.
FÓTBOLTI Juventus mætir í leikinn í
kvöld með ágæta stöðu í fartesk-
inu. Liðinu nægir 1:0 sigur þar
sem fyrri leikurinn endaði með
2:1 sigri Real Madrid á heima-
velli.
Marcello Lippi, knattspyrnu-
stjóri Juventus, hefur fulla trú á
sínum mönnum. „Við getum vel
unnið Real Madrid og komist í úr-
slitin. En við vitum að við þurfum
að leggja mikið á okkur gegn
þessu frábæra liði,“ sagði Lippi.
Brasilíumaðurinn Ronaldo er í
leikmannahópi Real en hann gat
ekki spilað með liðinu um síðustu
helgi vegna meiðsla sem hann
varð fyrir í fyrri leiknum við
Juventus. Frakkinn Claude
Makelele verður aftur á móti ekki
með Real vegna meiðsla.
Liðin stóðu sig misvel um síð-
ustu helgi í deildunum heima fyr-
ir. Real gerði markalaust jafntefli
við Recreativo og missti þar með
efsta sætið til Deportivo. Juvent-
us tryggði sér aftur á móti 27.
deildarmeistaratitil sinn á Ítalíu
og þann annan í röð þegar liðið
gerði 2:2 jafntefli við Perugia.
Leikmenn Juve fengu sér gos eft-
ir leikinn og biðu með að skála í
kampavíni. „Við getum ekki fagn-
að núna, við verðum að hugsa um
Real Madrid,“ sagði Pavel Nedved
eftir leikinn, en hann mun eiga í
harðri baráttu við Zinedina Zi-
dane á miðsvæðinu í kvöld. ■
KIDD
Jason Kidd sækir að körfunni gegn Boston
Celtics. Hann átti stórleik í fyrrakvöld.
Úrslitakeppni NBA:
Nets í úrslit
Austurdeildar
AP/M
YN
D
AP/M
YN
D
MOYES
Skotinn David Moyes náði góðum árangri
með Everton á leiktíðinni.
Hyrjarhöfði 7, sími 567 8730/6937154
www.teflon.is
LAKKVÖRN
BRYNGLJÁI
Á BÍLINN!
Blettun-djúphreinsun-alþrif.
Ágæt staða ítöl-
sku meistaranna
Nýkrýndir Ítalíumeistarar Juventus taka á móti
Real Madrid í síðari leik liðanna í undanúrslit-
um Meistaradeildar Evrópu í kvöld.