Fréttablaðið - 20.05.2003, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 20.05.2003, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 20 Leikhús 20 Myndlist 20 Bíó 22 Íþróttir 16 Sjónvarp 24 KVÖLDIÐ Í KVÖLD LISTIR Óhræddur við nútímann BELGÍA Frjálslyndir vinna sigur ÞRIÐJUDAGUR 20. maí 2003 – 114. tölublað – 3. árgangur bls. 12bls. 20 GÆLUDÝR Einangrun styttist bls. 10 FÓTBOLTI Það verður nóg um að vera í Landsbankadeild kvenna í kvöld þegar þrír leikir fara fram. Þrótt- ur/Haukar tekur á móti KR á Val- bjarnarvelli, ÍBV tekur á móti Stjörnunni á Hásteinsvelli og FH sækir Val heim á Hlíðarenda. Leik- irnir hefjast allir klukkan 20. Þrír leikir KYNNING Í dag verður opin kynning á lokaverkefnum nemenda í tölvun- arfræðideild Háskólans í Reykja- vík. Kynningin fer fram í skólanum og stendur frá klukkan 9 fyrir há- degi til 15. 45. Henni verður fram haldið á morgun. Kynning á lokaverkefnum MÁLÞING Lagadeild Háskóla Íslands og Lagastofnun, Lögfræðingafélag Íslands og Stofnun stjórnsýslu- fræða og stjórnmála standa fyrir opnu málþingi í Odda, stofu 101, um sjálfsritskoðun og réttarvernd fjölmiðla í tilefni af doktorsritgerð dr. Herdísar Þorgeirsdóttur. Að lok- inni framsögu Herdísar taka Eirík- ur Tómasson, Björg Thorarensen og Styrmir Gunnarsson þátt í pall- borðsumræðum. Málþingið hefst klukkan 12.15. Sjálfsritskoðun fjölmiðla STA Ð R EY N D UM MEST LESNA DAGBLAÐIÐ Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars/apríl 2003 22,1% 52,3% 61,7% FR ÉT TA B LA Ð IÐ M O R G U N B LA Ð IÐ D V REYKJAVÍK Hægviðri og skýj- að með köflum. Hiti 7 til 13 stig. VEÐRIÐ Í DAG + + VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 5-8 Hálfskýjað 7 Akureyri 5-8 Skýjað 6 Egilsstaðir 3-5 Skýjað 8 Vestmannaeyjar 3-5 Léttskýjað 10 ➜ ➜ ➜ ➜ + + FÓTBOLTI bls. 22 Milljarðar koma og fara TÓNLIST bls. 16 Ævintýri Skurken og Prins Valium STJÓRNARMYNDUN „Við erum búnir að ná samkomulagi um málefna- samning sem við munum leggja fyrir þingflokka og stofnanir flokkanna,“ sagði Halldór Ás- grímsson utanríkisráðherra í gærkvöldi eftir að hafa fundað með Davíð Oddssyni forsætis- ráðherra. Þar gengu þeir frá samkomulagi um málefnasáttmála á f r a m h a l d a n d i ríkisstjórnarsam- starfs flokkanna. Halldór vildi ekkert tjá sig um hvað væri fólgið í málefnasáttmála stjórnarflokkanna fyrr en hann hefði verið lagður fyrir stofnanir flokkanna. „Það er eins og gengur að öll þessi mál sem við erum að fjalla um tengjast efnahags- og fjármál- um þjóðarinnar, allt verður að taka mið af því. Það er eðlilegt að það taki lengri tíma en ann- að,“ svaraði hann aðspurður um hvort ákveðin mál hefðu krafist meiri yfirlegu en önnur áður en samkomulag næðist. „Við gerum ráð fyrir því að við náum saman um aðra hluti,“ sagði Halldór og vísaði þar til að eftir að málefnasáttmálinn hef- ur farið fyrir þingflokkanna, þar sem gera má ráð fyrir að hann verði samþykktur, yrði rætt um skiptingu ráðuneyta milli flokk- anna. Á síðasta ári var unnin vinna í stjórnarráðinu sem sneri að hugsanlegri fækkun ráðuneyta, meðal annars með því að færa verkefni þriggja ráðuneyta und- ir nokkurs konar matvælaráðu- neyti. Halldór segir að ekkert hafi verið rætt um fækkun ráðu- neyta í viðræðum hans og Dav- íðs. Heimildir blaðsins herma að meiri mynd sé komin á skipt- ingu ráðuneyta en formenn flokkanna hafa viljað láta uppi. Samkvæmt þeim munu flokk- arnir halda þeim ráðuneytum sem þeir hafa nú og Davíð víkja fyrir Halldóri áður en kjörtíma- bilið er hálfnað. Fjórir þykja koma til greina sem eftirmaður Páls Péturssonar félagsmálaráð- herra, það eru þau Hjálmar Árnason, Jónína Bjartmarz, Magnús Stefánsson og Árni Magnússon, sem er nýliði á þingi en er formaður bæjarráðs Hveragerðis. Málefni sveitarfé- laga falla undir félagsmálaráðu- neyti. Það sem eftir stendur er að fá málefnasáttmálann samþykktan í þingflokkum og viðeigandi stofnunum flokkanna. Það geng- ur eftir í vikunni nema eitthvað mikið komi til. Alþingi verður þá kallað saman í kjölfarið. Verk- efni þess verður að kjósa í nefndir þingsins. Þar má búast við miklum breytingum í ljósi þess að rúmlega fjórði hver þingmaður er að setjast á þing í fyrsta skipti. Ekki náðist í Davíð Oddsson forsætisráðherra í gærkvöldi. brynjolfur@frettabladid.is Málefnasáttmáli flokkanna í höfn Formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hafa náð samkomulagi um málefnasáttmála nýrrar ríkisstjórnar flokkanna. Heimildir herma að flokkarnir haldi sínum ráðuneytum. SVEITARSTJÓRNARMÁL Hiti er í heima- mönnum í Dalabyggð vegna áforma sveitarstjórnar og iðnaðarráðherra um að selja Orkubúi Vestfjarða Hitaveitu Dalamanna. Þegar liggja fyrir drög að kaupsamningi þar sem áformað er að Orkubúið kaupi hitaveituna á 135 milljónir króna. Á annað hundrað manns mættu á borgarafund í Dalabyggð á mið- vikudaginn í seinustu viku. Fund- urinn var hlaðinn tilfinningum og þar kom fram mikil reiði vegna áforma um söluna. Kristján Har- aldsson, framkvæmdastjóri Orku- bús Vestfjarða, sat fundinn en hafði sig ekki í frammi. Samþykkt var ályktun þar sem skorað er á sveitarstjórn að leita allra leiða til að halda hitaveitunni áfram í eigu heimamanna. Sveitarstjórn, sem áður hafði samþykkt að leita leiða til að selja, fundar um málið í kvöld. Hitaveitan hefur verið þung- ur baggi á sveitarsjóði. Bygg- ingarkostnaður fór langt fram úr áætlun og tap hefur verið á rekstri hennar. Með sölunni voru vonir bundnar við að létta mætti mestu skuldunum af sveitarsjóði og létta þannig róð- urinn. ■ Sala á Hitaveitu Dalabyggðar: Dalamenn heitir vegna hitaveitu HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Utanríkisráðherra var brosmildur þegar hann gekk til fundar við forsætisráðherra í Ráðherrabústaðnum í gær. Þegar fundi þeirra lauk var stjórnarsáttmálinn kominn í höfn. Heimildir blaðsins herma að Halldór taki við forsætisráðuneytinu áður en kjörtímabilið er hálfnað. ■ Heimildir blaðs- ins herma að meiri mynd sé komin á skipt- ingu ráðuneyta en formenn flokkanna hafa viljað láta uppi. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.