Fréttablaðið - 20.05.2003, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 20.05.2003, Blaðsíða 6
6 20. maí 2003 ÞRIÐJUDAGUR GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 73.20 0,11% Sterlingspund 119.80 1,05% Dönsk króna 11.53 2,31% Evra 85.61 2,34% Gengisvístala krónu 119,91 0,83% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 88 Velta 966 m ICEX-15 1.422 0,09% Mestu viðskipti Olíuverslun Íslands hf. 4.752.036.340 Pharmaco hf. 68.516.971 Opin kerfi hf. 53.261.168 Mesta hækkun Opin kerfi hf. 2,04% Pharmaco hf. 1,13% Líf hf. 1,01% Mesta lækkun Sölumiðstöð Hraðfrystih. hf. -2,02% Olíuverslun Íslands hf. -1,96% Eimskipafélag Íslands hf. -0,80% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ: 8520,3 -1,8% Nasdaq: 1508,1 -2,0% FTSE: 3941,3 -2,7% DAX: 2848,3 -4,7% NIKKEI: 8117,3 -0,1% S&P: 924,6 -2,1% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 Veistusvarið? 1Hvað heitir eignarhaldsfélagið semhefur eignast rúm 60 prósent í Baugi Group? 2Yfir 40 létust í fimm sjálfsmorðsárás-um í borg í Norður-Afríku um helg- ina. Hvað heitir borgin? 3Íslensk myndlistarkona hefur hannaðöryggispúða til varnar sauðkindum í umferðinni. Hvað heitir myndlistarkonan? Svörin eru á bls. 31 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H IR 2 11 78 05 /2 00 3 Lagadeild • Viðskiptadeild • Tölvunarfræðideild Námsráðgjöf Alla virka daga kl. 10.00 - 11.30 er fastur viðtalstími þar sem þú getur komið og rætt við námsráðgjafa Háskólans í Reykjavík, kennara eða núverandi nemendur um hvaðeina er lýtur að námi við skólann. Þar fyrir utan getur þú hringt og pantað tíma í síma 510 6200 www.ru.is Umsóknarfrestur er til 5. júní AUSTUR-TÍMOR, AP Leiðin til lýð- ræðis fyrir íbúa Austur-Tímors var enginn dans á rósum. Nú, ári eftir að lýðræði var komið á fót í landinu, er ljóst að lýðræðið er það ekki heldur. Íbúarnir, sem í 24 ár voru undir járnhæl indónesískra stjórnvalda, hafa ekki séð mikla vonarglætu síðan lýðræðislega kosinn forsetinn tók við emb- ætti. Laun flestra eru undir ein- um dollara á dag, vatn og raf- magn er lúxus sem fáir hafa efni á og eins og til að minna lands- menn á blóðuga sögu sína eru enn brenndar og hálfhrundar byggingar hvarvetna í landinu. „Þolinmæði,“ sagði Xanana Gusmao, forseti landsins. „Þetta fyrsta ár hefur verið okkur góð lexía og fólk hefur haft biðlund.“ Þrátt fyrir dekkra ástand en vonir stóðu til eru þeir enn til sem trúa á bjartari framtíð eins og sést best á því að nú hefur fólk þeyst út á götur landsins með blöðrur, fána og góða skapið í þeim tilgangi að fagna lýðræð- isafmælinu. ■ FORSETI AUSTUR-TÍMORS Xanana Gusmao forseti á vandasamt verk fyrir höndum. Íbúar Austur-Tímors fagna: Eins árs lýðræðisafmæli RISPUÐU BÍLA Nokkuð bar áskemmdum á bifreiðum umsíðustu helgi. Unglingspiltar gerðu sér að leik að hlaupa yfir mannlausa bíla og tilkynnt var um mann sem var að brjóta spegla af bílum. Þá rispuðu tveir litlir drengir ellefu bíla á bíla- stæði í Breiðholti. SÁUST Í ÖRYGGISMYNDAVÉLUM Tuttugu og þrjár rúður voru brotnar í einum leikskóla í borg- inni. Myndir náðust af gerendum með öryggismyndavélum. Ör- yggismyndavélar urðu einnig til að koma upp um pilta sem voru að vinna skemmdarverk á fyrir- tæki við höfnina. Til þeirra sást í myndavélum og voru þeir teknir höndum í framhaldi af því. ■ Lögreglufréttir BARNAVERNDARMÁL Óskir frá barna- verndarnefndum til Barnavernd- arstofu um fósturheimili fyrir börn á vegum nefndanna fjölgaði um meira en helming á fjögurra ára tímabili frá 1998 til 2002. Vist- unarbeiðnir voru 37 árið 1998 en 78 árið 2002. Á milli ára, frá 2001 til 2002 fjölgaði þeim um 53 prósent. Bragi Guð- b r a n d s s o n , f o r s t ö ð u m a ð u r Barnaverndarstofu, segir að yfir- umsjón fósturmála sé í höndum stofunnar. Í því felist að sjá um að útvega barnaverndarnefndum fósturforeldra og meta hæfni þeirra. „Það gilda strangar kröfur um hvaða fólki er veitt leyfi til að taka að sér börn. Það þarf að framvísa heilbrigðisvottorði, sakavottorði og umsögn frá barnaverndarnefnd í umdæmi umsækjanda. Auk þess heimsækj- um við viðkomandi heimili til frekari athugunar,“ segir Bragi. Hann segir ekki vankanta á að þessum reglum sé fylgt eftir. Lögum hafi verið breytt fyrir skemmstu þar sem reglur hafi verið hertar. „Áður var það þannig að það dugði að viðkom- andi barnaverndarnefnd gæfi út leyfi í svokallað skemmra fóst- ur.“ Bragi segir að það kunni að hafa gerst áður að gegnum nálar- augað hafi komist fólk sem í ein- staka tilfellum var ekki fullkom- lega hæft til að hafa börn. Greiðsla sem fósturforeldrar fá fyrir að hafa börn í fóstri er samningsatriði hverju sinni. „Ég myndi giska á að algengt sé að greitt sé sexfalt meðlag með barni. Það getur farið yfir þá upphæð í einstaka tilfellum. Bragi neitar því ekki að í sumum tilfellum sé fólk með börn í fóstri í atvinnuskyni en telur vafasamt að nokkur geri það í hagnaðarskyni. „Margir taka þetta mjög alvarlega, sækja námskeið, afla sér þekkingar og leggja sig mjög fram um að vera góðir fósturforeldrar.“ Breytingar urðu á síðasta ári sem felst í því að barn sem á við sérstaka erfiðleika að etja getur verið vistað í svokallað styrkt fóstur. Um það gilda aðrar reglur og segir Bragi að það komi í stað stofnunardvalar. „Kröfurnar sem gerðar eru til þeirra sem taka slíkt barn að sér eru mun meiri, s.s að þeir hafi sérstaka reynslu, hæfni eða menntun. Fyrir barn í slíku fóstri er greitt allt að 250 þúsund krónum á mánuði,“ segir Bragi. bergljot@frettabladid.is ÞAÐ ER ÁBYRGÐARHLUTI AÐ TAKA AÐ SÉR BARN Æ fleiri foreldrar óska eftir að taka að sér barn í skammtímafóstur. Strangar kröfur eru gerðar til þeirra sem vilja taka barn í skammtímafóstur. Fyrir það er greitt allt frá 90 þúsund krónum á mánuði í 250 þúsund. ■ „Margir taka þetta mjög al- varlega, sækja námskeið, afla sér þekkingar ogleggja sig mjög fram um að vera góðir fósturforeldrar.“ INDÓNESÍA, AP Indónesíski herinn hóf flugskeytaárásir á vígi upp- reisnarmanna í Aceh-héraði sem neituðu að verða við kröfu yfir- valda um að leggja niður vopn. Á annað þúsund sérsveitarmenn hafa verið fluttir á svæðið, sjó- leiðis og með flugvélum. Allt bendir til þess að fram undan séu umfangsmestu hernaðaraðgerðir Indónesa síðan þeir hófu innrás í Austur-Tímor árið 1975. Friðarviðræður í Tókíó fóru út um þúfur þegar aðskilnaðarsinn- ar neituðu að verða við þeirri kröfu indónesískra yfirvalda að leggja niður vopn og hætta að berjast fyrir sjálfstæði héraðsins. Fáeinum klukkustundum síðar gaf Megawati Sukarnoputri, for- seti Indónesíu, út tilskipun um að beita skyldi hervaldi gegn upp- reisnarmönnum og herlög sett á í héraðinu. Í yfirlýsingu frá að- skilnaðarsinnum var því heitið að verjast árásum hersins og halda áfram að berjast fyrir sjálfstæði héraðsins. Indónesíski herinn hefur þegar handtekið fimm leiðtoga aðskiln- aðarsinna en ekki hefur verið til- kynnt um mannfall. Hersveitirnar hafa mætt lítilli mótstöðu en talið er að um 30.000 hermenn séu í Aceh-héraði á móti aðeins um 5.000 vopnuðum uppreisnarmönn- um. Héraðið, sem er ríkt af olíu- auðlindum, hefur verið vettvang- ur blóðugra átaka í rúman aldar- fjórðung. Búist er við gífurlegum straumi flóttamanna frá héraðinu. Hafa yfirvöld komið upp hátt í 4.000 tjöldum ásamt sjúkragögn- um, fatnaði, teppum og mat. ■ HUNDAEIGENDUR ÆTTU AÐ GÆTA FYLLSTA HREINLÆTIS Þannig má koma í veg fyrir sjúkdóma. Banvæn hundaveiki: 6-7 tilfelli skráð HUNDAVEIKI Parvo, banvæn hunda- veiki, hefur verið að stinga sér niður á höfuðborgarsvæðinu síð- ustu mánuði. Að sögn Gunnars Arnar Gunnarssonar héraðsdýra- læknis hafa verið staðfest 6-7 til- felli síðan í byrjun mars. Upplýs- ingar hafa þó ekki borist frá öllum dýralæknum og því gætu tilfelli verið fleiri. Hann segist ekki ótt- ast faraldur enda velflestir hund- ar bólusettir reglulega. Fólk ætti að gæta fyllsta hreinlætis, hreinsa upp eftir hunda sína og láta ekki hjá líða að bólusetja þá. ■ LISTAHÁSKÓLI Í vor verður 81 nemandi brautskráður frá Lista- háskóla Íslands. Úr myndlist og hönnun verða brautskráðir 28 nemendur og átta leiklistarnem- ar. 16 brautskrást með diplóma- próf í kennslufræðum og einn nemandi í tónlist. FRIÐURINN ÚTI Aðeins fáeinum klukkustundum eftir að friðarviðræður fóru út um þúfur hóf indó- nesíski herinn umfangsmiklar hernaðar- aðgerðir gegn uppreisnarmönnum í Aceh- héraði. Friðarviðræður farnar út um þúfur: Herinn ræðst gegn aðskilnaðarsinnum ■ Brautskráningar Æ fleiri vilja taka börn í skammtímafóstur JARÐSKJÁLFTI VIÐ GRÍMSEY Jarðskjálfti varð rúma 10 kíló- metra norðaustur af Grímsey á sjöunda tímanum á sunnudags- kvöld. Samkvæmt sjálfvirkum mælum Veðurstofunnar var hann 3,5 á Richter. Tveir minni skjálftar fylgdu í kjölfarið rúmum einum og hálfum tíma seinna. Mældist sá fyrri 1,9 á Richter og sá seinni 2,4. ■ Jarðskjálftar

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.