Fréttablaðið - 20.05.2003, Blaðsíða 14
Leiðarahöfundur Financial
Times heldur því fram að
breska stjórnkerfið veiti for-
sætisráðherra landsins valda-
stöðu forseta. Að hans mati hef-
ur Tony Blair nýtt sér þetta vald
í mun meiri mæli en forverar
hans í embætti.
Leiðarahöfundur tekur undir
gagnrýni Clare Short, ráðherra
alþjóðaþróunarsamvinnu, sem
sagði af sér embætti fyrir
skemmstu. Í afsagnarræðu sinni
hélt Short því fram að Blair færi
með öll völd í landinu ásamt fá-
mennum hópi ráðgjafa og mikil-
vægar ákvarðanir væru teknar
án samráðs við þingið og aðra
ráðherra.
Í ljósi þessa reynir leiðara-
höfundur að útskýra þá ákvörð-
un Blair að hafa samráð við fé-
laga sína í ríkisstjórninni varð-
andi upptöku evrunnar í Bret-
landi. Hann telur að markmið
forsætisráðherrans sé að
styrkja stöðu sína þegar að því
kemur að gefa út yfirlýsingu um
að evran verði ekki tekin upp að
svo stöddu.
Í leiðara blaðsins The Times
er reynt að varpa ljósi á stöðu
Tony Blair innan Verkamanna-
flokksins í ljósi þeirrar gagn-
rýni sem fram hefur komið á
stjórnarhætti forsætisráðherr-
ans. Flokksbræður Blair hafa
margir hverjir farið ófögrum
orðum um stjórnaraðferðir for-
sætisráðherrans og haldið því
fram að hann hafi ítrekað tekið
ákvarðanir sem brjóti í bága við
stefnu flokksins.
Að mati leiðarahöfundar ógn-
ar þetta ekki valdastöðu Blair
þar sem andstæðingar hans eru
ekki samstíga í gagnrýninni.
Þeir séu á öndverðum meiði í
mörgum mikilvægum málum og
geti því ekki myndað raunveru-
legt mótvægi við forsætisráð-
herrann og hans menn. Engu að
síður sýni þessi mikla óeining
innan flokksins að sá árangur
sem náðst hafi í Írak hafi ekki
orðið til þess að veita Blair auk-
ið frelsi til þess að móta stefnu
flokksins eftir sínu höfði. „Hann
hafði vonast eftir pólitískum
hveitibrauðsdögum en þetta er
farið að líkjast meira einnar
nætur gamni.“
Leiðarahöfundur The Guardi-
an tekur undir með kollega sín-
um hjá Financial Times þegar
hann bendir á það mikla vald
sem forsætisráðherrann hefur í
breska stjórnkerfinu. Hann hef-
ur engu að síður sitthvað við
gagnrýni Clare Short að athuga.
Í ljósi þess hve lengi Short ent-
ist í ráðherrastólnum dregur
hann í efa að Blair sé jafn
stjórnsamur og hún vill vera
láta.
Í leiðaranum er bent á að
Blair hafi leitað mun meira til
félaga sinna í ríkisstjórninni á
þessu kjörtímabili en því síð-
asta. Leiðarahöfundur heldur
því enn fremur fram að Blair
hafi aldrei verið sérstaklega
sterkur leiðtogi þar sem hann
hafi ítrekað forðast það að
keyra vilja sinn í gegn í mikil-
vægum málum. ■
Úr leiðurum
■ Leiðarahöfundar breskra dagblaða
velta fyrir sér valdastöðu Tony Blair í
ljósi þeirrar gagnrýni sem fram hefur
komið á stjórnarhætti
forsætisráðherrans.
14 20. maí 2003 ÞRIÐJUDAGUR
Útgáfufélag: Frétt ehf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason
og Steinunn Stefánsdóttir
Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Suðurgötu 10, 101 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf.
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-
borgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er
hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands-
byggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
Ég tók það fram í síðasta pistlimínum fyrir kosningarnar, að
við skyldum virða úrslitin og taka
í höndina á sigurvegurunum, þeg-
ar upp væri staðið. Virða þannig
dóm kjósenda, lýðræðið og leik-
reglurnar. En svo
vandast málið,
þegar úrslitin
liggja fyrir, því ég
sé ekki betur en að
allir séu sigurveg-
arar í þessum
kosningum nema
sigurvegararnir!
Framsóknarflokk-
urinn nær ekki
einu sinni kjörfylgi
frá síðustu kosn-
ingum, sem var
það lakasta sem
flokkurinn hefur
fengið í sögu sinni og samt er
hann krýndur til forystu! Sjálf-
stæðisflokkurinn tapar sjö pró-
sentum af fylgi sínu og formaður-
inn gott betur í sínu kjördæmi, en
samt er þetta túlkað sem skilaboð
frá þjóðinni um að þessir tveir
flokkar skuli sitja áfram í ríkis-
stjórn og stjórna landinu. Sam-
fylkingin bætir við sig verulegu
fylgi og Frjálslyndir tvöfalda
fylgi sitt en samt tala menn eins
og þeir hafi tapað.
Stjórnin lafði
Jafnvel Samfylkingarmenn
hengja haus og ég verð að játa að
víst var þetta sigur, en samt ekki
nóg. Þetta er eins og að spila úr-
slitaleik í fótbolta og þurfa að
vinna með fimm mörkum. Leikur-
inn vinnst 4-0, en dugar samt ekki
til sigurs í mótinu. Þannig hefur
mér verið innanbrjósts þessa síð-
ustu viku. Slagurinn stóð jú um
það að fella ríkisstjórnina og það
misheppnaðist. Þeir sitja þarna
áfram, flokkarnir tveir, í fjögur ár
í viðbót, ef að líkum lætur og
skipta með sér stólunum og bit-
lingunum og völdunum og eftir
sitja kjósendur, sem voru þó að
senda skilaboð til stjórnmála-
mannanna, um breytingar og upp-
stokkun, því hvað er það annað en
höfnun þegar stærri flokkurinn
geldur afhroð og minni stjórnar-
flokkurinn slefar inn kjörfylgi
sínu á síðustu metrunum. En þeir
voru miklir hagsmunirnir, sem
voru í húfi, hagsmunir kvótaeig-
enda, hagsmunir valdastéttarinn-
ar, hagsmunir fjármagnseigenda
og hluthafa í verðbréfum, sem
búið var að hræða líftóruna úr,
hræða til fylgis við verndarengla
sína í stjórnarráðinu.
Stjórnin lafði og það var þeim
nóg. Og þannig teljast þeir sigur-
vegarar, sem töpuðu. Að því að
þeir unnu þá skák, sem tefld var,
slaginn um að sitja áfram í ríkis-
stjórn, sem þeir stefndu að, hvað
sem líður yfirlýsingum þeirra um
að ganga óbundnir til kosninga.
Þetta máttum við vita og það er
eins og dregið hafi fyrir alla póli-
tíska vitsmuni framsóknarmanna,
þegar þeir skilja ekki, að varnar-
sigur þeirra er fólginn í loforðum
og fyrirheitum um aukna mannúð,
aukna fyrirgreiðslu til barnafólks
og námsmanna og íbúðakaupenda
og annarra efnaminni þjóðfélags-
þegna. Kjósendur Framsóknar-
flokksins voru ekki að biðja um
áframhaldandi frjálshyggju. Þeir
voru að biðja um aukna velferð.
Skilaboðin rangtúlkuð
Ég óska þeim til hamingju með
björgunina en ég harma túlkun
þeirra á skilaboðunum, sem lesa
má út úr kosningaúrslitunum.
Verst þykir mér þó að kvóta-
kerfið og frjálsa framsalið skuli
halda velli. Fjórir flokkar sóttu að
þessu kerfi og rétt tæpur helming-
ur kjósenda greiddi þeim atkvæði.
En það dugði ekki til, mest fyrir þá
sök, að flokkarnir fjórir báru ekki
gæfu til að stilla saman strengi
sína um annan skýran valkost.
Stjórnarandstæðingar hljóta að
draga lærdóm af þessu innbyrðis
sundurlyndi. Það er aldrei líklegt
til sigurs að tvístra sínu eigin liði.
Þegar frá líður og sagan kveð-
ur upp sinn dóm um þessar kosn-
ingar, þá er það mín spá og mín
sýn, að upp úr standi að í bjarma
maísólarinnar hafi risið upp
sterkur, nútímalegur jafnaðar-
mannaflokkur á Íslandi. Það er
maísólin okkar, þessa framtíðar-
lands. ■
Harmoníka
Auðunn Bragi Sveinsson rithöfundur skrifar:
Undarlegt er, hvað einföld orðvilja vefjast fyrir fólki, einnig
fjölmiðlum. Nú sést iðulega í blöð-
um og ritum ýmis konar orðið
harmonikka. Líklega fyrir áhrif
þess er hljóðfæri með nótnaborði
og belg, sem dreginn er sundur og
saman, oft nefnt nikka í daglegu
tali. En þetta er ekki rétt mál.
Hljóðfærið nefnist harmoníka eða
harmóníka, sé farið eftir erlendri
fyrirmynd, en dragspil eða
draggargan á góðri íslensku (sbr.
Dansk-ísl. orðabók Freysteins
Gunnarssonar frá 1926), vilji
menn hafa það fremur en erlenda
orðið. Ég er málvöndunarmaður,
og þoli illa að sjá og heyra afbök-
uð orð, jafnvel þótt af erlendum
stofni séu. Hermann Ragnar Stef-
ánsson kynnti á „saumastofudans-
leikjum“ sínum í útvarpinu forð-
um daga, að menn lékju á harm-
oníku. Hann notaði ekki orðið
harmonikka! Með þökk fyrir birt-
inguna. ■
Hugsaðuppá nýtt
ELLERT B.
SCHRAM
■
skrifar um kosninga-
úrslitin.
Þetta er maí-
sólin okkar
■ Bréf til blaðsins
■ Leiðrétting
Ásgeir Friðgeirsson
ritstjóri
Ekki mikil áhrif
Íslenskur verðbréfamarkaður verður samur eftir að
Baugur Group hefur yfirgefið hann. Þó svo Baugur
Group sé stórt fyrirtæki hefur brotthvarfið ekki mikil
áhrif á heildarverðmæti fyrirtækja á markaði. Þá hefur
ávöxtun bréfa í félaginu frá skráningu fyrir um fjórum
árum verið rétt um 9,5% að meðaltali á ári, eða svipuð
og ávöxtun á ríkisskuldabréfum, þannig að hinn almenni
fjárfestir á íslenska hlutabréfamarkaðinum mun ekki
sakna Baugs. Hitt er annað mál að ef fleiri stór fyrir-
tæki fara að fordæmi Baugs, Aco-Tæknivals, Húsa-
smiðjunnar og fleiri fyrirtækja og afskrá sig munu
heildaráhrif þeirra aðgerða veikja til muna íslenskan
verðbréfamarkað. ■
Þórður Friðjónsson
forstjóri Kauphallar Íslands
Skaðast ekki
Það er vissulega eftirsjá af því ágæta fyrirtæki
Baugi úr Kauphöllinni. En markaðurinn sem slíkur mun
ekki bera skaða af þó Baugur hverfi af honum. Ef við
miðum við verðmæti er Baugur í sjöunda sæti og miðað
við veltu sem af er árs, sem skiptir mjög miklu máli, er
fyrirtækið í tíunda sæti. Ef við setjum þetta í samhengi
við aðra þætti er Baugur um það bil helmingur af því
fyrirtæki sem er verðmætast og veltan er einn fimmti
af veltumesta fyrirtækinu. Þá er fyrirtækið tiltölulega
lítið miðað við stærri fyrirtæki. Fyrirtækið er stórt og
jafnframt í atvinnugrein sem er eftirsóknarverð en
engu að síður verður markaðurinn ekki fyrir skaða þó
Baugur hverfi af honum. ■
Skaðast Kauphöllin við afskráningar?
Skiptar skoðanir
■ Af Netinu
Málfrelsi?
„...Það dugar ekki til að breiða
yfir vandræðaganginn með því
að reka okkur sjálfstæðismenn
úr ræðustól á fundi borgarstjórn-
ar. Málfrelsi okkar verður ekki
heft...“
BJÖRN BJARNASON BORGARFULLTRÚI UM
R-LISTASAMSTARFIÐ Á HEIMASÍÐU SINNI BJORN.IS
Útför frestað
„Seinustu helgi ákváðu íslenskir
kjósendur að fresta því að moka
yfir Framsóknarflokkinn um
önnur fjögur ár. Fylgistap flokks-
ins reyndist óverulegt og allar
líkur eru á því að hann verði aft-
ur með í ríkisstjórn, jafnvel leið-
andi aðili...“.
SVERRIR JAKOBSSON UM VÆNTANLEGA RÍKISSTJÓRN
Á MURINN.IS
Bókaðu flug á
www.IcelandExpress.is
Eða komdu á söluskrifstofuna Suðurlandsbraut 24, opið 9-17 virka daga.
Þjónustuverið er opið virka daga frá 9-17, laugardaga frá 10-14
og sunnudaga frá 11-15. Sími 5 500 600
Lág fargjöld. Enginn bókunarfyrirvari. Engin lágmarksdvöl og engin hámarksdvöl.
Söluskrifstofa Suðurlandsbraut 24, opið 9-17 virka daga I Sími 5 500 600 I www.IcelandExpress.is
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Þau mistök urðu í blaðinu í gær
að Mikulas Dzurinda, forsætis-
ráðherra Slóvakíu, var titlaður
forseti landsins. Beðist er vel-
virðingar á þessu.
Hegranesgoð-
inn á þing
Frjálslyndur kjósandi
í Norðvesturkjör-
dæmi skrifar:
Hegranesgoð-inn kominn
á þing fyrir
Frjálslynda.
Þeir sem að boðorðin brjóta mörg,
bannfærðir verða á kirkjuþingi.
Leita upp bæði hof og hörg,
Hegranesgoðinn og Jörmundur
Ingi.
■
Þegar frá líður
og sagan kveð-
ur upp sinn
dóm um þessar
kosningar, þá
er það mín spá
og mín sýn, að
upp úr standi,
að í bjarma
maísólarinnar,
hafi risið upp
sterkur, nútíma-
legur jafnaðar-
mannaflokkur á
Íslandi.
Forseti eða
forsætisráðherra?
STÆRSTU EIGENDUR BAUGS MUNU GERA ÖÐRUM HLUTHÖFUM YFIRTÖKUTILBOÐ OG Í FRAMHALDINU AFSKRÁ FÉLAGIÐ.