Fréttablaðið - 20.05.2003, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 20.05.2003, Blaðsíða 8
8 20. maí 2003 ÞRIÐJUDAGUR Doddi litli datt í dý Presturinn vitnaði í alþekkt lag og sagði að traustur vinur gæti gert kraftaverk. Sigurður Bogi Sævarsson blaðamaður sem sökk í díki við Krísuvík og var bjargað af frönskum leiðsögumanni. DV, 19. maí. Óhreinu börnin hans Davíðs Svo hönduglega er um þessar límingar á Hannesi búið að þær losna yfirleitt strax klukkan 10 að kveldi kjördags. Stefán Ólafsson prófessor svarar kollega sínum Hannesi Hólmsteini. DV, 19. maí. Bláa höndin hvað! Á síðustu sex mánuðum hefur Hannes Hólmsteinn ítrekað gert mér ljóst að ef óþægilegt efni kæmi frá mér eða Borgarfræða- setri inn í þjóðmálaumræðuna þá yrði ég lagður í einelti og mér refsað. Stefán Ólafsson prófessor. DV, 19. maí. Orðrétt LÍFEYRIR Verkalýðsfélögin á Aust- urlandi eru nú að stilla upp framboðum sínum til nýrrar stjórnar Lífeyrissjóðs Austur- lands. Ársfundur sjóðsins verð- ur haldinn á mánudaginn. Allir núverandi stjórnarmenn hafa lýst því yfir að þeir muni víkja í kjölfar stórtaps sjóðsins og um- ræðu í kjölfar þess. Sjóðstjórn hefur verið gagnrýnd harkalega fyrir fjárfestingar og meinta óstjórn í rekstri. Meðal þess sem félagar eiga erfitt með að um- bera er tugmilljóna starfsloka- samningur sem gerður var við fráfarandi framkvæmdastjóra. Þá ákvað stjórnin að kaupa ein- býlishús af framkvæmdastjór- anum á yfirverði. Búist er við að stærsta mál ársfundarins verði milljarðstap sjóðsins sem rakið er til rangrar fjárfestingarstefnu. ■ NESKAUPSTAÐUR Málefni Lífeyrissjóðs Austurlands hefur borið hátt undanfarið. Lífeyrissjóður Austurlands: Stjórn stillt upp Landsþing hjúkrunar- fræðinga: Elsa formaður HJÚKRUNARFRÆÐINGAR Elsa Frið- finnsdóttir var kjörin nýr formað- ur Félags íslenskra hjúkrunar- fæðinga á landsþingi þeirra fyrir helgi. Herdís Sveinsdóttir, sem verið hefur formaður síðastliðin fjögur ár, gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Elsa hefur verið aðstoðarmað- ur Jóns Kristjánssonar. heilbrigð- is- og tryggingamálaráðherra, frá því hann tók við heilbrigðisráðu- neytinu. ■ Akureyri: Köttur vald- ur að óhappi LÖGREGLUMÁL Umferðaróhapp varð á Þórunnarstræti á Akureyri aðfaranótt sunnudags. Lögreglan segir að ökumaður bíls hafi verið að reyna að forðast að aka yfir kött sem hljóp út á veginn. Tókst ekki betur til en svo að ökumaður missti stjórn á bílnum, sem lenti uppi á umferðareyju og á umferð- arskilti og varð óökuhæfur eftir. Lögregla segir þær fréttir af kettinum að hann hafi haldið ferð sinni áfram eins og ekkert hefði í skorist. ■ SJÓNVARP Um síðustu helgi lauk sjónvarpsútsendingum Sjón- varpsins og Stöðvar 2 um gervi- tunglið Astra en útsendingarnar náðu yfir meginhluta Evrópu þeg- ar best lét. Hafa að- standendur send- inganna fengið bréf og skilaboð frá ánægðum Íslend- ingum, búsettum erlendis, sem notið hafa dagskrár ís- lensku stöðvanna að undanförnu sjálfum sér og gestum sínum til mikillar ánægju. „Nú þegar þessum útsending- um lýkur endurmetum við stöð- una með tilliti til framhalds,“ seg- ir Bjarni Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Sjónvarpsins. „Við verðum að sjá hvernig þetta fell- ur inn í áætlanir okkar en hér er vissulega um kærkomna viðbót að ræða sem vert er að skoða. Þó er ljóst að þessu fylgir ákveðinn aukakostnaður,“ segir Bjarni. Ef framhald verður á gervi- hnattaútsendingum sjónvarps- stöðvanna gæti það leitt til þess að stór hluti af móttökusendum sjónvarpsstöðvanna verði úreltur og íbúar á afskekktum stöðum geti farið að njóta sjónvarpsefnis sem þeir hafa hingað til ekki haft tök á. Nægir þar að nefna stöðvar eins og PoppTíví og Bíórásina. Ríkissjónvarpið nær hins vegar til um 99,9 prósenta landsmanna og er talið að aðeins 80 lögbýli á landinu nái ekki sendingunum. Er nú verið að athuga hvort gervi- hnattaútsendingarnar myndu koma þessum bæjum í sjónvarps- samband. „Sumir dalir hér á landi eru svo djúpir að gervihnettirnir ná ekki að smeygja merki sínu þar inn. Þar verða sendarnir eftir sem áður. Hitt er hins vegar klárt að viðbrögð við þessum tilrauna- sendingum okkar hafa verið mjög sterk og jákvæð. Á það ekki síst við sjómenn á hafi úti sem líkja þessu við byltinguna þegar flot- inn var myndbandsvæddur eða litasjónvarpið kom til sögunnar,“ segir Bjarni Guðmundsson. Ríkissjónvarpið notaði bæði gervitungl frá Astra og norska fyrirtækinu Telenor við útsend- ingar sínar en Stöð 2 notaðist ein- göngu við Astra. Skjár einn hefur hins vegar ekki verið með í þess- ari tilraun. eir@frettabladid.is HORFT Á SJÓNVARPIÐ Útsendingar íslensks sjónvarpsefnis um gervihnött gagnast ekki aðeins þeim sem búa er- lendis heldur geta þær einnig bætt útsendingar í afskekktum byggðum. Íslenskt sjónvarps- efni um allan heim Ef samningar takast má gera ráð fyrir að íslenskar sjónvarpsstöðvar sendi út allt efni sitt í gegnum gervitungl um land allt og Evrópu að auki. ■ ...sjómenn á hafi úti sem líkja þessu við byltinguna þeg- ar flotinn var myndband- svæddur eða litasjónvarpið kom til sögunn- ar. MÆÐGIN Á GÖNGU Margan kann að undra að hægt sé að láta svona stóra skepnu framhjá sér fara. Ferðamaður slasast: Gekk beint í flasið á fíl VÍETNAM, AP Ölvaður víetnamskur ferðamaður slasaðist lítilega þeg- ar hann gekk beint í flasið á fíl á götu í bænum Buon Don. Ferðamaðurinn hafði skjögrað út á götuna til þess að hjálpa litl- um dreng sem hafði hrasað en tók ekki eftir fjögurra metra hárri skepnunni sem stóð beint fyrir framan hann. Fíllinn brást illa við, hóf manninn á loft og kastaði hon- um síðan á götuna. Maðurinn var fluttur á sjúkra- hús með brotin rifbein, skrámur og marbletti. ■ Verðbólga: Eins hér og á EES EFNAHAGSMÁL Verðbólga hér á landi frá apríl 2002 til sama mán- aðar 2003 var 1,9% samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs í EES-ríkjunum. Þetta er sama verðbólga og mælist að meðaltali á Evrópska efnahagssvæðinu öllu. Verðbólga á evrusvæðinu var litlu meiri, 2,1%. Vísitalan lækkaði um 0,1% á Íslandi í mars en stóð í stað á evrusvæðinu. Verðbólga var hæst á Írlandi, þar sem hún mældist 4,4%, en minnst í Þýskalandi, aðeins eitt prósent. ■ SKÍÐI „Þetta var nú enginn snjóa- vetur,“ segir Grétar Hallur Þóris- son, forstöðumaður skíðasvæðis- ins í Bláfjöllum. Skíðasvæðið var í vetur aðeins opið 43 daga, en í meðalári er opið í nær 70. Hann segir veturinn þó ekki hafa verið alslæman. „Það komu mjög góðir dagar, þeir voru bara of fáir,“ seg- ir Grétar. Hann bendir líka á að síðasti vetur hafi verið ennþá verri, með aðeins 28 opnunar- daga. „Við erum bara farin að undir- búa næsta vetur,“ segir Guðmund- ur Karl Jónsson, forstöðumaður skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli á Ak- ureyri. Hann segir veðurguðina ekki hafa verið hliðholla skíðaiðk- un í vetur. „Það var lítill snjór,“ segir Guðmundur. „Og þegar var gott skíðafæri var svo kannski ekkert veður til að vera á skíð- um.“ Skíðasvæðið Snæfellsjökli er enn opið. Að sögn Arndísar Páls- dóttur, starfsmanns Snjófells, hef- ur verið minni snjór en í fyrra en þó nægur til þess að halda lyftu fyrirtækisins gangandi. „Það var opið um páskana og vikurnar þar á eftir,“ segir Arndís. „Þá var al- veg rosaleg stemning.“ „Veturinn var mjög slæmur hjá okkur,“ segir Rúnar Jóhanns- son, forstöðumaður skíðasvæðis Fjarðabyggðar. Þar var skíða- svæðið aðeins opið í 22 daga í vet- ur, en í meðalári er skíðasvæðið opið 72 daga. „Þetta var alls ekki góður vetur fyrir skíðaiðkendur,“ segir Rúnar að lokum. ■ ÚR BLÁFJÖLLUM Forstöðumenn skíðasvæða eru sammála um að veturinn hafi verið slæmur fyrir skíða- iðkendur. Skíðasvæðin í vetur: Of lítill snjór PÁFI DAUÐLEGUR Jóhannes Páll páfi annar, sem átti 84 ára af- mæli um daginn, segir að sá tími sé að nálgast þegar hann hittir Guð og gerir grein fyrir lífi sínu. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem honum verður þetta að um- talsefni en hann hefur harðneit- að að hætta sem páfi þrátt fyrir það. ■ Páfagarður

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.