Fréttablaðið - 20.05.2003, Blaðsíða 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
KRISTÍNAR HELGU
GUNNARSDÓTTUR
Ertu að kaupa, byggja eða breyta? Þú getur á auðveldan hátt samið um fasteigna-
eða framkvæmdalán hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum. Um er að ræða hagstætt
lán, sem veitt er til allt að 30 ára gegn veði í fasteign.
Allt að 80%veðsetningarhlutfallaf verðmæti fasteignar Frjálsa fjárfestingarbankans
Fasteignalán
Frjálsi fjárfestingarbankinn, Ármúla 13a, sími 540 5000, www.frjalsi.is
!"## $
"##% & ' (
'
$) * *
$+
)
&
,-..
&
&
+
&
/+
' ))
!" #$%& ' ($
)*+ ", -+
./01 2 "
!"
#$%& ($ )*+ "2 -+
0 *1 /
( 2'
"3 "456)
5 ."#4###
,-.. "7##8/9, 1
!"##! "4:;
1
Vetrarbrautin, góðan dag. Get égaðstoðað? sagði alúðleg rödd.
Já, góðan dag. Ég ætla að segja upp
áskriftinni að Fjölbragðavarpinu.
Og hversvegna? spurði röddin.
Ég ætla að segja upp dýralífsrásinni
sem breytist í klámrás laust fyrir
miðnætti.
Nú! En þetta er ruglað og þú getur
slökkt, sagði röddin hissa.
Ekki svo ruglað að ég sjái ekki hver
potar í hvern og börnin geta hvenær
sem er opnað fyrir rásina og fengið
perrakonfekt beint í æð.
ÞÁ ÁTT ÞÚ að velja og hafna fyrir
þau, sem ábyrgt foreldri, sagði rödd-
in leiðbeinandi.
Já, en ég get ekki gulltryggt að þau
séu alltaf sofnuð, hvað þá annarra
börn, klukkan ellefu á kvöldin. Ég get
heldur ekki séð til þess að slökkt sé á
öllum sjónvarpstækjum í barnaher-
bergjum landsins á þessum tíma.
Annað eins horfa börn nú á, sagði
röddin, nú orðin þóttafull.
Hvað áttu við? spurði ég undrandi.
Jú, allt þetta ofbeldi sem þau hafa að-
gang að í sjónvarpi og tölvuleikjum,
sagði röddin.
Já, þú meinar að þau séu svo sjóuð að
dýraglens og hópleikir virki eins og
Mjallhvít og dvergarnir sjö?
Ja, þetta er að minnsta kosti ekki það
versta sem þau sjá, sagði röddin.
EN AF HVERJU sendið þið klám
inn á heimili landsmanna?
Þú ræður alveg hvað þú horfir á og
þú getur bara slökkt á sjónvarpinu og
passað krakkana þína, sagði röddin,
orðin nokkuð pirruð.
Ég kvaddi og lagði á. Ó, hvað það var
stórkostlegt þetta valfrelsi. Nú vissi
ég að ég gat slökkt og kveikt á sjón-
varpinu, var búin að iðka mitt frelsi
með því að svipta stórfyrirtæki heil-
um sautján hundruð krónum á mán-
uði. Eftir sat ég þó enn með ruglaðan
ruddaskap fyrir perra í kassanum
mínum – á dagskrá skömmu eftir að
kennslustund í hvolpameðhöndlun
lýkur á dýrarásinni.
ÞAÐ VAR líkt og einhver hefði
komið inn til mín með fullan poka af
silfurskottum og sleppt þeim lausum.
Nú varð ég að kalla til meindýraeyði
– sérfræðing í endurvarpi hjá Vetrar-
brautinni – til þess að stöðva innrás-
ina í heimilishelgidóminn. Frelsið er
undarlegt og ekki svo yndislegt ef ég
þarf sjálf að grípa til aðgerða til að
losa mig við eitthvað út úr húsi sem
ég hef ekki beðið um. ■
Valfrelsið og
Vetrarbrautin
Reiðskólinn
Hrauni
Fyrir
10-15 ára.
Grímsnesi
S: 897-1992
www.mmedia.is/hrauni