Fréttablaðið - 20.05.2003, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 20.05.2003, Blaðsíða 21
Blaðamenn eða ritstjórar viljakannski ekki líta svo á að þeir lúti markaðsöflum eða pólitísk- um öflum í framsetningu á frétt- um eða greinaskrifum. Veruleik- in er hins vegar sá að blöðin eru háð markaðnum, þau eru háð því að seljast og háð auglýsingatekj- um,“ segir dr. Herdís Þorgeirs- dóttir, sem nýverið varði dokt- orsritgerð sína í lögum um innra frelsi fjölmiðla út frá sjónarhóli mannréttinda. Ritgerðin verður á næstunni gefin út hjá Klüwer Law International. Hún ætlar að flytja framsögu- erindi um efnið á málþingi í Odda sem haldið verður í hádeginu í dag undir yfirskriftinni Sjálfsrit- skoðun og réttarvernd fjölmiðla. Að erindi hennar loknu verða pallborðsumræður með Styrmi Gunnarssyni ritstjóra og laga- prófessorunum Eiríki Tómassyni og Björgu Thorarensen. „Ég finn gífurlegan áhuga á þessu efni, ekki síst hjá blaðamönnum, enda er málið þeim skylt. Spurningin sem ég er að velta fyrir mér er hvernig lögin geti tryggt það að fjöl- miðlarnir geti rækt af heilindum það lögskipaða hlutverk sitt að vera varðhundur almennings gagnvart ríkinu og öðrum valda- mikum öflum í samfélaginu.“ Herdís segir vandann sem menn standa frammi fyrir þegar þessi mál eru skoðuð ekki síst vera þann að sjálfsritskoðun blaðamanna geti ekki fyllilega talist lögbrot, jafnvel þótt menn séu sammála um að þar sé eitt- hvað rangt á ferðinni. Hún kemst hins vegar að þeirri niðurstöðu meðal annars að réttarverndin samkvæmt dómatúlkun Mann- réttindadómstóls Evrópu sé í raun mun víðtækari en ætla hefði mátt. ■ ÞRIÐJUDAGUR 20. maí 2003 ■ MÁLÞING Freistingar fjölmiðlanna flugfelag.is Börn 2ja-12 ára í fylgd með fullorðnum greiða 334 kr. aðra leiðina VOPNAFJARÐAR 2.999kr. Flug, aðra leiðina. Bara á www.flugfelag.is Takmarkað sætaframboð! Frá Akureyri til ÞÓRSHAFNAR 2.999kr. EGILSSTAÐA 5.999kr. Flug, aðra leiðina. Bara á www.flugfelag.is Takmarkað sætaframboð! Milli Reykjavíkur og ÍSAFJARÐAR 4.999kr. Flug, aðra leiðina. Bara á www.flugfelag.is Takmarkað sætaframboð! Milli Reykjavíkur og 2.999kr. Flug, aðra leiðina. Bara á www.flugfelag.is Takmarkað sætaframboð! GRÍMSEYJAR Frá Akureyri til AKUREYRAR 4.999kr. Flug, aðra leiðina. Bara á www.flugfelag.is Takmarkað sætaframboð! Milli Reykjavíkur og flugfelag.is 21.-27. maí ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S - FL U 2 11 99 05 /2 00 3 Flug, aðra leiðina. Bara á www.flugfelag.is Takmarkað sætaframboð! Frá Akureyri til ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H IR 2 11 77 05 /2 00 3 Umsóknarfrestur er til 5. júní www.ru.is Opinn kynningarfundur í dag kl. 17:15 „Háskólinn í Reykjavík hefur staðist allar mínar væntingar, námsefnið áhugavert og krefjandi, aðbúnaður til fyrirmyndar og kennararnir afbragðsgóðir og hvetjandi.“ Ragnheiður Guðjónsdóttir, 2. ári í HMV, flugmaður hjá Icelandair. HMV er valkostur fyrir einstaklinga 25 ára og eldri með umtalsverða starfsreynslu sem vilja stunda fullgilt háskólanám í viðskiptafræði samhliða vinnu. Kennsla fer fram þrjá daga í hverri viku kl. 16:15 - 19:00. Þrjár námsannir eru á hverju ári (sumarfrí í júlí og ágúst). Í ágúst stendur nemendum til boða að sækja undirbúningsnámskeið í stærðfræði og notkun helstu tölvuforrita, s.s. Excel, Word, Power Point. Nemendur í háskólanámi með vinnu geta valið um eftirfarandi námsleiðir: • BS-próf í viðskiptafræði - (90 ein.) • Fjármál og rekstur - diploma (45 ein.) • Stjórnun og starfsmannamál - diploma (45 ein.) • Markaðsfræði og alþjóðaviðskipti - diploma (45 ein.) HMV Háskólanám með vinnu - þitt tækifæri til að ná lengra HERDÍS ÞORGEIRSDÓTTIR Hún ætlar að fjalla um sjálfsritskoðun og réttarvernd fjölmiðla á málþingi í Odda í hádeginu í dag.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.