Fréttablaðið - 20.05.2003, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 20.05.2003, Blaðsíða 18
18 20. maí 2003 ÞRIÐJUDAGUR Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 200 sæti í fiú velur dagsetningu, bókar og grei›ir sta›festingargjald. Gistista›urinn ver›ur sta›festur viku fyrir brottför. 36.242 kr. Ver›dæmi til Mallorca e›a Benidorm m.v. að 2 fullorðnir og 2 börn 2ja til 11 ára ferðist saman. Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting í 1 viku, akstur til og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn. Barnaafsláttur fyrir 2ja til og með 11 ára, 12.000 kr. Ef 2 ferðast saman 47.630 kr. Krít 19. og 26. maí, 2. og 9. júní Benidorm 4., 11. og 21. júní Mallorca 22. maí og 12. júní Portúgal 20. maí, 3. og 10. júní Verð á mann 4 í íbúð 38.900 3 í íbúð 41.900 2 í íbúð 43.900 Aukavika stgr. á mann 4 í íbúð m/1 svefnherb. og stofu 10.500 3 í íbúð m/1 svefnherb. og stofu 13.500 2 í íbúð eða stúdíói 17.500 Aukagjald fyrir einbýli m.v. stúdíó 16,900 Aukavikuverð m.v. 1 í stúdíó 29,400 Barnaafsláttur 12.000 Verð Brottfarir Sólar Plús KAPPAKSTUR Michael Schumacher, sem vann þriðja kappakstur sinn í röð í Austurríki um helgina, segist ekki hafa orðið áhyggjufullur þeg- ar eldur kom upp í vél Ferrari-bíls hans á viðgerðasvæðinu. „Ég held að þetta hafi ekki ver- ið mjög hættulegt atvik. Þetta var bara smá eldur,“ sagði Þjóðverj- inn, sem komst ómeiddur frá óhappinu. „Ég veit ekki hvort ég eigi að teljast heppinn. Ég held að ég hafi frekar verið óheppinn að lenda í þessum vandræðum“. Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 1995 sem eldur kemur upp í bíl á viðgerðasvæði. Þá kviknaði í Jor- dan-bifreið Eddie Irvine í kapp- akstri sem var háður í Belgíu. Versti eldsvoðinn í kappakstri undanfarinna ára í Formúlunni varð í Þýskalandi árið 1994. Þá fengu ökuþórinn Jos Verstappen og nokkrir viðgerðamenn úr Benetton-liðinu brunasár eftir að eldur kom upp í keppnisbílnum. ■ ELDUR Viðgerðamenn Ferrari-liðsins reyna að slökkva eldinn í bílnum. Schumacher sat sem fastast á meðan á ósköpunum stóð. Hann er í öðru sæti í heildarstigakeppni ökumanna aðeins tveimur stigum á eftir Finnanum Kimi Räikkönen. Michael Schumacher: Þetta var bara smá eldur AP /M YN D WENGER Arsene Wenger vill styrkja varnarleik Arsenal fyrir næstu leiktíð. Arsene Wenger: Ekki fleiri en þrír FÓTBOLTI Arsene Wenger, knatt- spyrnustjóri Arsenal, segist ætla að kaupa í mesta lagi þrjá nýja leikmenn fyrir næstu leiktíð. „Við verðum að skora eins mik- ið af mörkum og við gerðum á þessari leiktíð,“ sagði Wenger. „Við skoruðum 85, sem er frá- bært, en við fengum á okkur 42, sem ég tel að sé tíu mörkum of mikið. Markmið okkar er að auka jafnvægið í vörninni án þess að tapa sóknargetunni.“ Talið er að efstur á óskalista Wenger sé nýr markmaður, sem koma eigi í stað gömlu kempunn- ar David Seaman. ■ FÓTBOLTI „Hann skaut á markið en boltinn fór í mig, breytti um stefnu og fór í markið,“ segir Sig- urbjörn Hreiðarsson um sigur- mark Vals gegn Grindavík í 1. um- ferð Landsbankadeildarinnar. „Ég er náttúrlega frekur, vil eiga markið og hann er yngri bróðirinn og fylgir því bara,“ bætir Sigur- björn við en á leikskýrslu var markið skráð á Jóhann, bróður Sigurbjörns. Jóhann skoraði óumdeilanlega fyrra mark Vals, úr vítaspyrnu, en Sigurbjörn var lengi vítaskytta Vals og hefur 100% nýtingu í efstu deild. „Vítin eru í ættinni. Ég missti aðeins einbeitinguna í vítunum í fyrra og þá tók Jói við en hann er mjög góð vítaskytta. Hann heldur bara áfram þar til annað kemur í ljós.“ „Markmið Valsmanna er að halda sér í deildinni og númer eitt, tvö og þrjú að festa sig í deildinni.“ Valur leikur næst gegn ÍBV að Hlíðarenda. „Við verðum að vinna okkar heimaleiki. Við unnum átta af níu heimaleikjum í fyrra og ætlum að gera Hlíðarenda aftur að gryfju. Okkur líður best að Hlíðarenda og þar ætlum við að sækja til sigurs.“ Jóhann og Sigurbjörn hafa bæði leikið með Val og Dalvík. „Við erum úr Reykjavík en teljum okkur vera Dalvíkinga. Ég var níu ára og Jói fimm ára þegar við fluttum til Dalvíkur. Þar bjuggum við næstu sex árin og það voru mótunarárin.“ ■ SIGURBJÖRN HREIÐARSSON Sigurbjörn Hreiðarsson, fyrirliði Vals, átti stóran þátt í sigurmarkinu gegn Grindavík. Landsbankadeild karla: Hvor skoraði? Orðrómur er uppi um að Liver-pool vilji kaupa Harry Kewell, leikmann Leeds, í stað Damien Duff, sem leikur með Blackburn. Duff mun vera of dýr fyrir Liverpool og því hefur áher- sla verið lögð á að hreppa Kewell, sem enn á eftir 12 mánuði af samningi sínum við Leeds. ■ Fótbolti FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.