Fréttablaðið - 20.05.2003, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 20.05.2003, Blaðsíða 15
ÓLYMPÍULEIKAR Nú eru fimmtán mánuðir í að opnunarhátíð Ólymp- íuleikanna í Aþenu verði haldin og íbúar Aþenu eru orðnir spenntir. Svo spenntir að 80 þúsund manns hafa boðið sig fram sem sjálfboða- liða við framkvæmd leikanna. Grikkir hafa reyndar fengið talsverða gagnrýni undanfarið þar sem svo miklar tafir hafa orðið á framkvæmdum fyrir leikana að mörgum þykir hæpið að það náist að klára verkið áður en Ólympíu- kyndillinn verður tendraður. „Við verðum að vinna mikið næstu mánuði,“ sagði Gianna Angelopoulos-Daskalaki, formað- ur Ólympíunefndar Grikklands, á fundi Alþjóða Ólympíusambands- ins í Madrid. „Við megum engan tíma missa en við erum bjartsýn. Aþena verður tilbúin á réttum tíma.“ Grikkland er vagga Ólympíu- leikanna og hafa rannsóknir sýnt að keppt var í íþróttum í landinu árið 776 fyrir Krist. Það er styttra síðan fyrstu nútímaleikarnir voru haldnir eða rúmlega hundrað ár, árið 1896, og þeir hafa síðan verið settir upp víða í heiminum við sí- vaxandi vinsældir. Sá skuggi sem hvílir yfir leik- unum núna er hvort tekst að hefta útbreiðslu HABL-veikinnar áður en leikarnir hefjast. Margir óttast að ef það gangi ekki séu líkur á að Ólympíuleikarnir í Aþenu 2004 verði misheppnaðir og yrði það mikið áfall fyrir grísk stjórnvöld, sem eytt hafa miklu fé í að fá að halda leikana. ■ 15ÞRIÐJUDAGUR 20. maí 2003 Svindl á fólki: Þykjast safna fyrir Hjartavernd LÖGREGLUMÁL Óprúttnir aðilar hafa gert sér að leik að þykjast vera í fjáröflun fyrir Hjartavernd. Hafa þeir boðið fólki geisladisk til sölu til styrktar málefninu í þeim til- gangi að komast yfir greiðslu- korta- og bankaupplýsingar fólks. Hjartavernd segir enga slíka fjáröflun í gangi. Sams konar kvartanir hafa borist lögreglunni í Reykjavík um falska fjáröflun fyr- ir Geðhjáp og Samhjálp. Fólki er bent á að vea á varðbergi gagnvart svikastarfsemi af þessu tagi. ■ Fimmtán mánuðir til stefnu: Ólympíuleikar á eftir áætlun Ótrúlegt afmælistilboð! Fáðu 3 bækur á verði einnar  Mána›arlega fær›u n‡tt ævint‡ri úr smi›ju Disney ásamt klúbbritinu Gáska og borgar a›eins 975 kr. fyrir utan sendingarkostna›. Bækurnar eru eingöngu fáanlegar í áskrift. Síminn er 522 2020 E›a skrá›u flig á www.klubbar.is ókeypis!  Skemmtileg  veggklukka   © D is ne y Fá›u flessar 3 Disney bækur og Bangsímon veggklukku fyrir a›eins 975 kr. fyrir utan sendingarkostna›. TÓMLEGUR VEITINGASTAÐUR Fáir leggja leið sína á veitingastaði í Peking þessa dagana. Barátta Kínverja ber árangur: HABL tilfellum fækkar KÍNA, AP Hvort sem það er morðhót- unum eða öðrum áhrifaríkum að- ferðum stjórnvalda að þakka hefur nýjum HABL-tilfellum fækkað mik- ið í Kína og hafa þau aldrei verið færri. Tala látinna er komin í 284 og allt að fimm þúsund manns liggja sýktir á spítölum. Lögregla hefur þurft að hafa af- skipti af fjölda manns sem „hindr- að“ hafa aðgerðir yfirvalda til að ná tökum á sjúkdómnum og voru sex dæmdir í fangelsi eftir að hafa hvatt til mótmæla í norðurhluta landsins. Alþjóða Heilbrigðisstofnunin tel- ur að fjöldi tilfella í Kína sé hærri en opinberar tölur segja, vegna þess að kínverskir læknar telja ekki þá sem glíma við öndunarvandamál en hafa ekki komist í kast við HABL. Stærsta glíma stjórnvalda verð- ur þó að hindra veikina í að dreifast á landsbyggðinni, þar sem spítalar og læknar eru af skornum skammti og ómögulegt er að hafa eftirlit með sýktum aðilum. ■ IÐNSKÓLINN Í REYKJAVÍK Fjöldi ólíkra greina er kenndur við skólann. Iðnskólinn í Reykjavík: Mest sótt í tölvu- og listnám MENNTUN Iðnskólinn í Reykjavík býður upp á fjölbreytt úrval náms- greina. Að sögn Baldurs Gíslasonar skólameistara eru vinsælustu brautir skólans um þessar mundir tölvubraut og listnámsbraut – al- menn hönnun, auk þess sem upplýs- inga- og fjölmiðlagreinar eru alltaf vinsælar. Af hefðbundnum iðn- greinum nefnir hann hársnyrtingu og rafeindavirkjun, sem mikil ásókn er í. Fjöldi fámennra greina er líka kenndur við skólann. Nefnir Baldur sem dæmi bókband, en fimm nemendur stunduðu nám í bókbandi við skólann í vetur. Gull- smíði er einnig kennd við skólann og komast færri að en vilja. Enginn nemandi stundar þó nám í skósmíði og hætt hefur verið við kennslu í úr- smíði við skólann. ■ AÞENA 2004 Uppbygging mannvirkja gengur hægar en vonast var eftir.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.