Fréttablaðið - 21.05.2003, Síða 21
ÞRIÐJUDAGUR 20. maí 2003 21
SÍMI 553 2075
Sýnd kl. 4, 6.30 og 9 SKÓGARLÍF 2 m/ísl tali kl. 6
kl. 8 og 10
Sýnd kl. 6, 8 og 10 b.i. 16 ára
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.20 b.i.14.ára
RECRUIT b.i. 14 kl. 10.20
Sýnd kl. 6, 8 og 10
SHANGHAI KNIGHTS
kl. 4 og 6TÖFRABÚÐINGURINN
kl. 4ABRAFAX OG SJÓRÆNINGJARNIR
BAD BOY CHARLIE kl. 6, 8 og 10
Sýnd kl. 5.30, 8, og 10.15 b.i. 16
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 b.i. 12 ára
BOWLING FOR... kl. 5.40 og 8
Birgitta átti frí eftir æfinguna ogblaðamannafundinn á mánu-
daginn og notaði tímann meðal
annars til þess að fara í skoðunar-
ferð um Riga. Önnur æfing verður
haldin á morgun og að henni lok-
inni verður haldinn blaðamanna-
fundur þar sem Birgitta mun m.a.
gefa fjölmiðlafólki geisladiska
með Írafári.
Fréttasíðan http://www.doteuro-vision.com greindi frá æfingunni
í Skonto-höllinni á mánudaginn og
sagði viðstadda hafa gert góðan
róm að frammistöðu Birgittu. Hún
var sögð líta vel út á sviðinu og
hélt lagi vel þó að rödd hennar hafi
verið full rám. Birgitta verður í
hvítum ermalausum topp og hvít-
um buxum á laugardaginn og þeir
sem sáu til hennar á æfingunni
telja það skynsamlegt hjá henni að
vera ekki mikið að hoppa og skop-
pa um á sviðinu. Þótt æfingin hafi
gengið vel mun Birgitta fá smá
auka tilsögn frá Selmu, sem er
væntanleg til Riga í dag.
3 dagarí Eurovision
Margir láta tónlistarmanninnMarilyn Manson fara í sínar
fínustu, enda yrði það líklega
martröð allra feðra að fá hann
óvænt heim í grillveisluna sem
nýjasta leikfang dóttur þeirra.
Áður en Brian Warner gerðist
Marilyn Manson starfaði hann sem
tónlistarblaðamaður. Maður getur
því ímyndað sér að hann hafi vitað
nákvæmlega hvað þyrfti að gera til
að ögra almenningi. Honum tókst
líklega betur til en hann þorði að
vona og er í dag einn ólíklegasti
talsmaður tjáningarfrelsis í Banda-
ríkjunum.
Það sem oft vill þó gleymast í
öllu umtali um Marilyn Manson er
sjálf tónlistin. Án hennar væri
Marilyn Manson bara málaður
trúður staðráðinn í því að hneyksla
fólk. Vissulega er hann það, en um
leið líka svo miklu meira.
Hann hefur alla tíð haft gott nef
fyrir nýstárlegum útsetningum,
samið texta sem skella eins og
hvirfilbylur á spilaborgum „fína
fólksins“ og hefur lag á því að
semja grípandi lög. Þessi nýja
plata er engin undantekning þar.
Þrátt fyrir að Manson sé búinn
að vera að of lengi til þess að þykja
hneykslandi, og orðinn jafn ógn-
vekjandi og E.T., er hann enn að
skila af sér góðum plötum. Hann er
vandvirkur fjandi, er enn nokkuð
beittur og mun án efa ráfa í skugg-
unum langt fram eftir öldinni.
Birgir Örn Steinarsson
Umfjölluntónlist
THE GOLDEN AGE OF GROTESQUE
Marilyn Manson:
Rokktrúðurinn
enn beittur