Fréttablaðið - 17.08.2003, Side 10
■ Viðskipti
10 17. ágúst 2003 SUNNUDAGUR
■ Vikan sem leið
Nám sem nýtist þér!
Skrifstofubraut II
Vegna forfalla eru nokkur sæti laus
Skrifstofubraut II er tveggja anna braut þar
sem höfuðáhersla er lögð á viðskipta- og
samskiptagreinar. Mikil áhersla er lögð á
tölvunám, viðskipta- og samskiptagreinar.
Inntökuskilyrði: Krafist er grunnþekkingar í ensku,
bókfærslu og tölvunotkun.
Kennslutími: Fyrir hádegi. Kennsla hefst 21. ágúst.
Upplýsingar veitir fagstjóri viðskipta- og skrifstofugreina
í síma 594 4000 milli kl. 9:00 og 14:00.
Netfang. ik@ismennt.is
MENNTASKÓLINN Í KÓPAVOGI
Íslendingar eru skuldsett þjóð.Almennt hlaupa menn ekki frá
skuldum sínum, en sé einhver að
hugleiða að stinga af til útlanda frá
skuldum sínum ætti sá inn sami að
hugsa sig tvisvar um. Ekki bara af
siðferðilegum ástæðum heldur
bara af raunsæi. Félagsskapur lög-
fræðinga sér til þess að þeim stöð-
um í heiminum fer fækkandi þar
sem vanskilamenn geta kastað öll-
um syndum bakvið sig.
Sigurbjörn Þorbergsson lög-
fræðingur er stjórnarmaður í al-
þjóðlegu félagi innheimtulögfræð-
inga sem heitir TCM. „Þetta félag
er tengslanet sem innheimtulög-
fræðingar nýta sér til að inn-
heimta skuldir í öðrum löndum.
Félagið er stofnað 1987 í Ástralíu
af náunga sem þótti leiðinlegt að
geta ekki rukkað það fólk sem
flutti úr landinu. Hann hóaði sam-
an fólki í Eyjaálfu og Asíu. Þaðan
kemur þetta sem óformlegur fé-
lagsskapur til Evrópu og Amer-
íku,“ segir Sigurbjörn.
Á kúpunni á Kúbu
Síðan hefur mikið vatn runnið
til sjávar. TCM er orðið alþjóðlegt
fyrirtæki innheimtulögfræðinga
sem notar tengslanet sitt til að inn-
heimta skuldir um allan heim. Fer-
ill innheimtunnar er þannig að
þegar búið er að finna út hvar
skuldarinn er tekur lögfræðingur
tengslanetsins sem starfar í því
landi við. „Við getum meira að
segja rukkað hjá Castro,“ segir
Sigurbjörn og hlær. Það er
kanadískur lögfræðingur sem fer
reglulega til Kúbu. „Það gengur nú
svona og svona að rukka á Kúbu.
Kanadamaðurinn gerir ekkert ann-
að en að innheimta á svona skrýtn-
um stöðum og flýgur út um allan
heim. Hvað hann gerir til að ná ár-
angri í innheimtunni, veit ég ekki,“
segir Sigurbjörn. Hann segist ekki
þurfa að vita það. Hinn hafi sér-
þekkinguna og gengið sé úr skug-
ga um að hann sé vandur að virð-
ingu sinni.
Þjónustan nýtist vel við að inn-
heimta skuldir útflutningsfyrir-
tækja. „Þetta er miklu hagstæðara
fyrir fyrirtækin að nota tengslanet
innlends lögfræðings við inn-
heimtuna, heldur en að leita beint
til lögfræðistofa í útlöndum. Gjald-
ið fyrir þjónustuna er árang-
urstengt, þannig að kúnninn borg-
ar ekki ef enginn árangur næst
fyrir löginnheimtu.“ Hann segir
fyrirtækjainnheimtu ábatasamari,
enda auðveldara að hafa upp á fyr-
irtækjum en einstaklingum. „Það
eru þá oft einhver tímabundin
vandræði í rekstrinum og svo ná
menn sér á strik. Það eru hins veg-
ar mjög kröfuhörð viðskipti.“
Sigurbjörn segir tengslanetið
gera miklar kröfur til meðlima
sinna. Menn séu skoðaðir vel áður
en þeir eru teknir inn. Hann á
sjálfur sæti í siðanefnd samtak-
anna. „Þangað geta allir aðilar
beint kvörtunum. Hvort sem það
eru eigendur skulda, skuldarar eða
lögfræðingar TCM.“ Hann leggur
áherslu á að löglega og siðlega sé
að öllu staðið. Skuldararnir eiga
sinn rétt. „Þar fyrir utan vilja við-
skiptavinir okkar viðhalda við-
skiptasamböndum, þannig að hag-
ur þeirra er ekki að gengið sé fram
með offorsi.“
Íslendingar ekki skuldseigari
Samböndin sem hafa orðið til
eru líka mikilsverð. „Það er mikils
virði fyrir aðila hér að hafa í
gengum mig aðgang að úrvals lög-
fræðingum á jafnvel undarleg-
ustu stöðum í heiminum. Vegna
þessara samtaka er ég jafnvel í
daglegum samskiptum við
stærstu innheimtulögfræðinga í
heiminum.“ Viðskiptavinirnir eru
af ýmsum toga, en eðli málsins
samkvæmt eru fjármálafyrirtæki
áberandi í viðskiptamannahópn-
um. Sigurbjörn segist hafa farið
sér hægt í markaðssetningu. Ekki
viljað taka meira að sér en hann
réði við með góðu móti. „Ég heim-
sótti fyrirtæki sem ég taldi líkleg
og benti mönnum á að taka saman
hvað þeir afskrifuðu mikið vegna
krafna í útlöndum. Ég vissi að
þeir yrðu svolítið hissa og venju-
lega fékk ég einhver viðskipti í
kjölfarið.“
Sigurbjörn segir árangurinn
góðan. „Fólk auðvitað notfærir sér
það ef enginn hefur samband við
það.“ Hin hlið viðskiptanna eru
innheimtur hér á landi fyrir er-
lenda aðila. Sigurbjörn er ekki á
því að Íslendingar séu skuldseigari
en aðrar þjóðir. „Við erum kannski
skuldsettari.“ Hann segir inn-
heimtur hér á landi töluverðar og
fara vaxandi. Sú þróun muni halda
áfram. „Nema að hér verði enda-
laust góðæri og gleði.“
Sigurbjörn hefur verið tengdur
TMC í á annað ár. Inntökuskilyrðin
eru ströng, en auk þess að standast
þau hefur hann átt skjótan frama
innan samtakanna. Samtökin fylgj-
ast vel með árangri meðlima sinna.
Lögmannsstofa Sigurbjörns varð
efst í mati um hver væri besta
stofan. Hann situr auk þess í stjórn
samtakanna.
Tengslin koma ekki af sjálfu
sér. Samtökin leggja mikið upp úr
því að lögfræðingarnir hittist. „Að-
alfundurinn er einu sinni á ári. Til
þess að halda alþjóðlegu yfir-
bragði, þá er fundurinn aldrei í
sömu heimsálfunni tvö ár í röð.
Það er skyldumæting. Ef að menn
mæta ekki tvö ár í röð þá fá menn
áminningu og eiga á hættu að vera
vísað úr samtökunum.“
Eigendur samtakanna eru 38 frá
jafnmörgum löndum. Þeim tengj-
ast svo fjölmargir aðrir lögfræð-
ingar um allan heim. „Það eru því
afar fá lönd sem við náum ekki til.“
haflidi@frettabladid.is
Útrásarfyrirtækið Pharmacoskilaði uppgjöri í vikunni.
Hagnaður félagsins var 2,7 millj-
arðar króna. Niðurstaðan var í
samræmi við það sem spáð var, en
miklar væntingar hafa verið til
fyrirtækisins. Gengi bréfanna
hækkaði í vikunni og er Pharmaco
orðið langverðmætasta fyrirtækið
í Kauphöll Íslands með mark-
aðsvirði um 76 milljarða. Stærsti
eigandi Pharmaco er Amber
International sem er í eigu feðgana
Björgólfs Guðmundssonar og
Björgólfs Thors Björgólfssonar.
Björgólfur yngri er stjórnarfor-
maður fyrirtækisins. Eignarhlutur
þeirra í fyrirtækinu er um tuttugu
milljarða virði.
Núverandi forstjóri fyrirtækis-
ins er Róbert Wessman. Hann var
forstjóri lyfjafyrirtækisins Delta
sem sameinaðist Pharmaco síðast-
liðið haust. Pharmaco hafði um
skeið safnað bréfum í Delta.
Pharmaco framleiddi samheita-
lyf á Íslandi og var umboðsaðili
lyfja stórra lyfjaframleiðanda.
Áherslan færðist smátt og smátt
meir yfir á framleiðslu sam-
heitalyfja sem tóku við af frumlyfi
þegar einkaleyfi rann út. Delta var
með sterka stöðu í vestur-Evrópu,
en Pharmaco í austur-Evrópu. Eftir
sameiningu seldi Pharmaco frá sér
innlenda umboðshlutann, enda fyr-
irsjáanleg að samheitalyfjafram-
leiðsla og umboð fyrir frumlyfja-
framleiðendur.
Hluthafar Pharmaco hafa haft
ástæðu til að gleðjast undanfarin
ár. Vöxtur fyrirtækisins hefur
margfaldað verðmæti þess. Þannig
er verðmæti bréfa í Pharmaco
fimmfalt verðmætara en það var í
febrúar árið 2000. Þá hafði verð-
mætið tvöfaldast frá miðju ári
1999. Hækkunin frá því tímabili er
því tíföld.
Bréf í Pharmaco eru af sérfræð-
ingum talin fremur hátt verðlögð. Í
verði þeirra séu miklar væntingar
um framtíðarvöxt með kaupum á
fyrirtækjum. Markaðurinn hefur
hins vegar augljóslega mikla trú á
stjórnendum félagsins og sagan
hingað til bendir í þá átt að sú skoð-
un sé réttmæt.
haflidi@frettabladid.is
Eftirtalin félög birtu uppgjör í vikunni:Austurbakki, Eskja, Fjárfestingarfélagið
Atorka, Frjálsi fjárfestingarbankinn, Ís-
lensk verðbréf, Jarðboranir, Landsvirkjun,
Líf, Marel, Opin kerfi, Síldarvinnslan,
Sparisjóðabanki Íslands, Sparisjóður
Hafnarfjarðar, Sparisjóður Keflavíkur,
SPRON, Sæplast, Þormóður rammi - Sæ-
berg, DeCode og Pharmaco.
Pharmaco skilaði 2,7 milljörðum íhagnað og var niðurstaðan í stórum
dráttum í samræmi við væntingar. Marel
skilaði uppgjöri sem kom markaðnum
þægilega á óvart. Hagnaður af rekstri
fyrstu sex mánuði ársins var 202 milljón-
ir sem er um 50 milljón króna betri af-
koma en búist var við. Bréf Marels hækk-
uðu töluvert í vikunni eða um rúm 12%.
Vonbrigði urðu með uppgjör Opinnakerfa. Tap félagsins var 22 milljónir en
búist var við einhverjum hagnaði eða að
rekstur yrði á núlli. Bréf félagsins lækk-
uðu um tæp 10% í vikunni.
DeCode skilaði uppgjöri í vikunni.Uppgjörið var í samræmi við áætlan-
ir félagsins. Tapið var hátt í tveir milljarð-
ar fyrri helming ársins. Kostnaður fyrir-
tækisins fór lækkandi á síðasta ársfjórð-
ungi.
Krónan veiktist um 1,17% í vikunni.Fréttir af auknum viðskiptahalla,
óvissa með stækkun Norðuráls og óvissa
um stöðu hersins í Keflavík eru taldar
helstu ástæðurnar. Óvissu um varnar-
samstarf Íslands og Bandaríkjanna var
eytt í vikunni, í bili að minnsta kosti.
Vísitala neysluverðs fyrir ágúst var birt ívikunni. Niðurstaðan var að verð-
hjöðnun varð milli mánaða. Verðbólga
var minni en fjármálafyrirtæki höfðu
vænst. Flest þeirra bjuggust við óbreyttri
vísitölu. Húsnæði heldur áfram að
hækka umfram annað verðlag í landinu.
Úrvalsvísitala aðallista Kauphallar Ís-lands hækkaði um 2,33% í vikunni.
Gildi hennar í lok vikunnar var.1591,36
stig.
ÞJÓÐLEG ALÞJÓÐASAMTÖK
Skyldumæting er á aðalfundi samtakanna. Skylda er líka skemmtun. Á fundinum í Amsterdam var
farið í óvissuferð á reiðhjólum og lögmennirnir brugðu á leik í hollenskum þjóðbúningum.
AFKOMA KYNNT
Róbert Wessman, forstjóri Pharmaco kynn-
ir fjárfestum rekstrarniðurstöðuna. Sá sem
keypti í Pharmaco um mitt sumar 1999
hefur tífaldað eign sína.
Íslenski risinn Pharmaco
Eftir uppgjör sitt í vikunni hækkuðu bréf í Pharmaco.
Fyrirtækið er verðmætasta félagið í Kauphöllinni. Níu milljörðum
verðmætara en næsta fyrirtæki sem er Kaupþing Búnaðarbanki.
Innheimtumenn alheimsins
Sigurbjörn Þorbergsson situr í stjórn alþjóðlegra samtaka innheimtulögfræðinga.
Saman mynda þeir þéttriðið net innheimtumanna sem teygir anga sína inn í skúmaskot heimsins.
Þeir sem hlaupa frá skuldum sínum eiga ekki í mörg skjól að venda.
SIGURBJÖRN ÞORBERGSSON
Stjórnarmaður í samtökum innheimtulög-
fræðinga. Inntökuskilyrðin eru ströng og fyl-
gst er með að menn ræki starf sitt af fag-
mennsku og í samræmi við gott fagsiðferði.
Viðskipti hófust eins og lög geraráð fyrir á Wall Street á föstu-
dagsmorgun, þrátt fyrir að raf-
magnsleysi hefði háð starfsemi í
New York þá um nóttina. Rafmagn
komst á svæðið í kringum Wall
Street um kl. 6 um morguninn, í
tæka tíð fyrir opnun. Yfirmenn báru
sig vel og sögðu að viðskipti hefðu
samt farið fram, ef svo hefði farið
að það hefði verið rafmagnslaust..
Rafmagn á
Wall Street