Fréttablaðið - 17.08.2003, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 17.08.2003, Blaðsíða 14
■ Bækur 14 17. ágúst 2003 SUNNUDAGUR Enn selur Hillary Öldungardeildarþingmaðurinnskeleggi og fyrrverandi forsetafrú, Hillary Rodham Clinton, selur ævisögu sína grimmt og fer víða til að árita bókina. Hér áritar hún og talar við aðdáendur sína í bókabúð í Michigan í vikunni. Hún skipar núna þriðja sætið á metsölulista New York Times, eft- ir átta vikur á lista. ■ Harry Crosby fæddist árið1898 og ólst upp í samheld- inni fjölskyldu í Boston við íburð og auð. Hann var ákaflega fríður maður, fíngerður og fágaður. Í fyrri heimsstyrjöld starfaði hann fyrir Rauða krossinn í Frakklandi, ók sjúkrabíl og slapp naumlega undan sprengjuárásum. Hann fékk heiðursmerki fyrir vasklega framgöngu. Þegar hann sneri heim útvegaði faðir hans honum starf í banka. Crosby sýndi hvað eftir annað af sér kæruleysi í starfi og mörgum fannst ekki traustvekjandi að eiga viðskipti við mann sem litaði neglurnar á sér svartar. Hann hneykslaði broddborgara með því að taka upp ástarsamband við gifta konu, Polly, tveggja barna móður sem var sex árum eldri en hann. Hið ljúfa líf Crosby sagði bankastarfi sínu lausu og hélt til Parísar þar sem hann fékk vinnu í banka. Polly hafði fengið skilnað frá manni sín- um og hélt til hans. Þegar hún komst að því að hann átti aðra ást- konu sneri hún aftur heim. Crosby elti hana og þau giftust í New York. Síðan héldu þau til Parísar ásamt börnum hennar. Crosby sagði starfi sínu við bankann lausu og ákvað að helga líf sitt skriftum. Hann var ekki á flæðiskeri staddur fjárhagslega og nú hóf hann lífstíl þar sem lát- ið var undan öllum freistingum. Hann borðaði ostrur og kavíar, drakk kampavín og viskí og tók inn kókaín og ópíum, elti fagrar konur og klæddist dýrasta fatn- aði. Hann lét tattóvera á milli herðablaða sinna mynd af sól en af einhverjum ástæðum var hann gagntekinn af sólinni. Ást á sólinni Crosby erfði 10.000 bækur eft- ir frænda sinn. Hann hóf kerfis- bundið að lesa bækurnar en um leið og hann hafði lokið við bók gaf hann hana. Hann ætlaði að halda þannig áfram þar til einung- is væri eftir ein bók í safni hans. Hann sökkti sér niður í hugleið- ingar heimspekinga um sjálfs- morð og orti ljóð. Hann las allt sem hann komst yfir um sólina. Hann hafði ákveðið að drepa sig á eitri, hafði valið grafreit sinn og pantað legstein með nafni sínu og eiginkonu sinnar. Þau höfðu ákveðið að deyja saman 31. októ- ber 1942, þann dag sem jörðin væri næst sólu. Þegar Crosby tók þessa ákvörðun voru fimmtán ár til þessa dags og hann lifði ekki að sjá hann. Árið 1927 stofnuðu Crosby og eiginkona hans útgáfufyrirtæki í París. Gegnum það kynntust þau James Joyce, D.H. Lawrence, Ernest Hemingway, James Joyce, Ezra Pound og Hart Crane og gáfu út verk þeirra. Á þessum tíma var Crosby að öðlast frægð sem ljóð- skáld. Eldprinsessan Crosby var mikill kvennamað- ur. Í bréfi til móður sinnar sagði hann: „Ég hrífst af stúlkum sem eru mjög ungar og eru ekki farnar að hugsa“. Ástkona hans síðustu árin hét Jósefína, forrík og falleg stúlka frá Boston. Hann kallaði hana eldprinsessuna. Á heimili Crosbys og eiginkonu hans lá stöðugur straumur gesta og þar voru tíðar drykkjuveislur. Crosby var enn að dufla við dauðann. Hann tók flugpróf og gældi við þá hugsun að steypa vél sinni til jarð- ar á sólríkum degi. Ástkona hans, Jósefína, giftist ungum manni af góðum ættum en þau Crosby héldu þó áfram ástar- ævintýri sínu og eyddu saman dögum þar sem þau voru meira og minna í ópíumvímu. Crosby sneri alltaf aftur til eiginkonu sinnar sem vissi vel af framhjáhaldi hans. Einn daginn bað hann eigin- konu sína að stökkva með sér út um gluggann. „Við skulum mæta sólinni saman,“ sagði hann. Eigin- kona hans hafnaði boðinu. Til móts við sólina Dag einn kom Crosby með Jós- efínu í heimsókn til vinar síns. Vinurinn yfirgaf íbúðina síðdegis og parið varð eftir. Seinna um kvöldið var komið að Harry Cros- by og Jósefínu þar sem þau lágu uppi í rúmi alklædd með skotsár á höfði. Crosby lá með byssuna í höndinni. Á hana var grafin mynd af sól. Á iljum hans voru húðflúr af sól og krossi. Crosby var þrjá- tíu og eins árs þegar hann skaut ástkonu sína og sjálfan sig nokkrum klukkustundum síðar. Síðustu orðin sem hann ritaði í dagbók sína voru: „Maður er ekki ástfanginn nema maður þrái að deyja með þeim sem maður elsk- ar. Það er einungis ein hamingja, að elska og vera elskaður.“ Allt frá dauða Crosbys hafa verið vangaveltur um það hvers vegna hann fyrirfór sér. Ævisögu- ritari hans segir: „Hann fyrirfór sér vegna hugmyndarinnar um að fyrirfara sér.“ kolla@frettabladid.is Uppáhaldspersónur já... Marg-ar af hetjum barnabókanna urðu nú hreinlega vinir manns hér forðum daga og erfitt að gera upp á milli þeirra. Þó finnst mér, eftir því sem maður rifjar upp kynni við þá síðar með afkom- endum sínum, að Lotta í Óláta- götu (Í nýrri þýðingum heitir það Skarkalagata) sé einna snilldar- legust. Alveg frábærlega upp- dregin stelpumynd gerð af meist- arahöndum Astrid Lindgren – sönn og djúp, með öllu því skemmtilega sem einkennir litlar stelpur, en Lotta er að auki þrjósk, sjálfsupptekin og hæfi- lega illgjörn; þegar ástkær bangsinn hennar finnst, eftir að hafa týnst, bliknar gleðin yfir endurfundunum hjá ánægjunni yfir því að sjá Jónas bróður detta í vatnið. Og ekki er hægt að ganga framhjá hetjum íslensku forn- sagnanna, sem maður finnur æ betur hvað eru magnaðri en flest- ar aðrar persónur heimsbók- menntanna fyrr og síðar; hvar eru til hliðstæðir menn og segj- um Egill, Grettir eða Skarphéð- inn? Egill kannski stórbrotnastur í öfgum sínum, snilli og hræðileg- um brestum; umhverfið og örlög- in gera Gretti kannski stærstan þeirra allra, en samt er enginn eins margslunginn og dularfullur og Skarphéðinn Njálsson með ógæfuna fallandi að síðum en kaldhæðnina og eitruð svörin – einu sinni rakst ég á mann í amerískri bók sem mér fannst slaga upp í Skarphéðin, en las svo í ævisögu um höf- undinn sem kom út tíu árum síðar að hann hefði grúskað mjög í íslenskum fornsögum á yngri árum. Einn enn: Marek sjálfboða- liði í Góða dátanum, alter ego höfundarins, Jaroslavs Haseks. Marek er svo brilljant að meira að segja Svejk verður að fella grímu einfeldningsins; saman spila þeir lengi með montinn lið- þjálfa en ljúga hann á endanum svo fullan að „jafnvel þótt lið- þjálfinn væri fjósa- maður í borgara- legu lífi fór honum að skiljast að það væri verið að g e r a gys að sér.“ ■ Aðdáendur hins þekkta breskarithöfundar Martin Amis hafa bundið miklar vonir við Yellow Dog, sem er fyrsta skáldsaga hans í átta ár. Amis vann í fjögur ár að bókinni en gagnrýnendur sem hafa lesið kynningareintök eru sagðir lítt ánægðir. Einn þeirra sagði: „Hún er hræðileg. Þetta er aðallega samansafn af heimsku- legum orðaleikjum. Þeir eru úti um allt.“ Mikla athygli vakti þegar rithöf- undurinn Tibor Fischer veittist harkalega að bókinni í blaðagrein. Fischer, sem áður hefur borið lof á bækur Amis, segir nýju bókina vera hræðilega og ekki samboðna hæfileikum höfundarins. Fischer gagnrýnir útgefendur harðlega fyrir að gefa út bækur þekktra rit- höfunda án nokkurs tillits til gæða verkanna. Vart þarf að taka fram að útgefandi Amis stendur með sín- um manni. Yellow Dog er saga fyrirmynd- areiginmanns sem tekur persónu- leikabreytingum eftir að hafa orð- ið fyrir líkamsárás. Hann verður vondur faðir og eiginmaður og sekkur inn í klámveröld. ■ METSÖLULISTI EYMUNDSSONAR Allar bækur 1. Ekið um óbyggðir. Jón G. Snæland 2. Röddin. Arnaldur Indriðason 3. Kortabók Máls og menningar. Örn Sigurðsson ritstjóri 4. Grafarþögn. Arnaldur Indriðason 5. Napóleonsskjölin. Arnaldur Indriðason 6. Dauðarósir. Arnaldur Indriðason 7. Ensk-íslensk/íslensk-ensk vasa- orðabók. Orðabókaútgáfan 8. Ferðakortabók. Landmælingar Íslands 9. Hálendishandbókin. Páll Ásgeir Ásgeirsson 10. Íslenska vegahandbókin. Steindór Steindórsson frá Hlöðum Skáldverk 1. Röddin. Arnaldur Indriðason 2. Grafarþögn. Arnaldur Indriðason 3. Napóleonsskjölin. Arnaldur Indriðason 4. Dauðarósir. Arnaldur Indriðason 5. Reisubók Guðríðar Símonardóttur. Steinunn Jóhannesdóttir 6. Óvinafagnaður. Einar Kárason 7. Sagan um Pi. Yann Martel 8. Að moldu skaltu aftur verða. Patricia Cornwell 9. Krýningarhátíðin. Boris Akúnín 10. Synir duftsins. Arnaldur Indriðason METSÖLULISTI BÓKABÚÐA EYMUNDSSONAR 6. - 12. ÁGÚST MARTIN AMIS Rithöfundurinn Tibor Fischer veittist harka- lega að nýjustu bók hans og kallar hana hræðilega. Gagnrýnendur eru óánægðir með nýjustu bók Martin Amis: Heimskulegir orðaleikir HARRY CROSBY „Maður er ekki ástfanginn nema maður þrái að deyja með þeim sem maður elskar. Það er einungis ein hamingja, að elska og vera elskaður,“ sagði ljóðskáldið Harry Crosby, sem skaut sig og ástkonu sína. EINAR KÁRASON „Einu sinni rakst ég á mann í amerískri bók sem mér fannst slaga upp í Skarphéðin, en las svo í ævisögu um höfundinn sem kom út tíu árum síðar að hann hefði grúskað mjög í íslenskum fornsögum á yngri árum.“ Einar Kárason rithöfundur segir frá uppáhaldspersónum sínum: Magnaðar hetjur Harry Crosby var bandarískt ljóðskáld sem náði einungis þrjátíu og eins árs aldri. Frá tuttugu og fjögurra ára aldri hélt Crosby dagbók sem endurspeglar sterka sjálfseyðingarhvöt og þráhyggjukennda ást á sólinni. Skáld sólarinnar Allt frá dauða Crosbys hafa verið vangaveltur um það hvers vegna Crosby fyrirfór sér. Ævisöguritari hans segir: „Hann fyrirfór sér vegna hugmyndarinnar um að fyrirfara sér.“ ,,

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.