Fréttablaðið - 17.08.2003, Blaðsíða 28
28 17. ágúst 2003 SUNNUDAGUR
EFSTUR Á PGA
Kylfingurinn Shaun Micheel hefur leikið vel
á PGA-meistaramótinu í golfi sem fram fer
í New York. Hér þakkar hann áhorfendum
stuðninginn eftir að hafa sett niður pútt á
níundu holu í annarri umferð mótsins.
Micheel var í efsta sæti eftir fyrstu tvo
keppnisdagana.
Golf
FÓTBOLTI Arnór Guðjohnsen, fyrr-
verandi atvinnumaður í knatt-
spyrnu, segir að leikur Chelsea
við Liverpool í dag sé eitt stórt
spurningarmerki.
„Það hafa orðið miklar breyt-
ingar hjá Chelsea og ég held að
þeir þurfi ekkert endilega að bú-
ast við árangri einn tveir og þrír.
Engu að síður er þetta geysilega
sterkt lið á pappírnum og það
verður gríðarleg samkeppni á
milli leikmanna.“
Arnór treystir sér ekki til að
spá fyrir um úrslit í leiknum:
„Ég vona bara að mínir menn í
Chelsea standi sig og nái að
knýja fram sigur. Það skiptir
miklu máli að byrja mótið vel.“
Arnór á von á því að Arsenal,
Manchester United, Liverpool og
vonandi Chelsea og Newcastle
verði í toppbaráttunni í ár. „Í
fljótu bragði finnst mér þessi lið
vera líklegust. En það er rosa-
lega erfitt að spá fyrir um þetta
enda er langt tímabil framund-
an.“ ■
Stórleikur
á Anfield
Chelsea sækir Liverpool heim í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag.
Óvíst hvort Hermann Hreiðarsson verði í leikmannahópi Charlton.
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen
og félagar í Chelsea verða í sviðs-
ljósinu í ensku úrvalsdeildarinnar
í dag. Lundúnarliðið mætir Liver-
pool á Anfield í sannkölluðum
stórleik 1. umferðar.
Chelsea hefur ekki sigrað í ell-
efu heimsóknum á Anfield síðan
úrvalsdeildin hófst árið 1992. Lið-
ið sigraði þó Liverpool 2-1 í loka-
umferð síðustu leiktíðar og vann
þar með kapphlaup félaganna um
sæti í undankeppni Meistara-
deildarinnar. Chelsea mætir til
leiks með gerbreytt lið eftir
stórinnkaup nýs eiganda á síðustu
vikum. Aðeins sex þeirra fjórtán
leikmanna sem léku gegn Liver-
pool í maí síðastliðnum voru í
Chelsea sem vann Zilina í Meist-
ardeildinni á miðvikudag.
Steven Gerrard, miðvallarleik-
maður Liverpool, verður ekki með
í dag þar sem hann tekur út leik-
bann. Dietmar Hamann getur
heldur ekki leikið vegna meiðsla.
Harry Kewell þreytir væntanlega
frumraun sína með Liverpool í
ensku úrvalsdeildinni, en hann
var keyptur frá Leeds fyrir þetta
tímabil. Líklegt þykir að Gerard
Houllier, knattspyrnustjóri liðs-
ins, muni stilla upp Igor Biscan á
miðsvæðinu.
Erfitt er að spá fyrir um hverj-
ir munu byrja inn á fyrir Chelsea,
enda hefur knattspyrnustjórinn
Claudio Raineri úr stórum hópi
leikmanna að velja. Juan Sebasti-
an Veron og Damien Duff verða
þó væntanlega í byrjunarliðinu en
sá síðarnefndi átti stórleik þegar
liðið mætti áðurnefndu Zilina í
forkeppni Meistaradeildarinnar.
Viðureign Leeds og Newcastle
verður að mörgu leyti fróðleg.
Leeds hefur misst marga leik-
menn frá síðasta tímabili, þar á
meðal Lee Bowyer og Jonathan
Woodgate sem verða líklega báðir
í byrjunarliði Newcastle. Leik-
mannahópur Leeds er ansi þunn-
skipaður eftir útsöluna í sumar en
auk þess geta Michael Duberry,
Erik Bakke og Michael Bridges
ekki leikið með.
Breskir fjölmiðlar telja að
Hermann Hreiðarsson verði ekki
í leikmannahóp Charlton þegar
liðið mætir Manchester City.
Paolo Di Canio gæti hugsanlega
verið í byrjunarliðinu en hann var
keyptur frá West Ham fyrir
skömmu. ■
EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN
Hefur staðið sig vel á undirbúningstímabilinu með Chelsea. Spurning er hvort hann
verði í byrjunarliðinu í dag.
FÓTBOLTI Fram vann ÍBV með
tveimur mörkum gegn einu í úr-
valsdeild karla í knattspyrnu á
Laugardalsvelli í gær.
Ágúst Gylfason kom Frömur-
um yfir á 41. mínútu en Eyjamenn
jöfnuðu með sjálfsmarki Ingvars
Ólafssonar á 74 . mínútu.
Það var síðan Andri Fannar
Ottósson sem tryggði Frömurum
sigur með marki á 83. mínútu.
Framarar löguðu stöðu sína á
botni deildarinnar með sigrinum
og eiga enn ágæta möguleika á að
bjarga sér frá falli. ■
Úrvalsdeild karla:
Fram vann ÍBV KARLAR
L U J T Stig
KR 14 8 3 3 27
Fylkir 13 8 2 3 26
ÍBV 14 6 1 7 19
Grindavík 13 6 1 6 19
FH 13 5 3 5 18
Þróttur 12 6 0 6 18
KA 13 5 2 6 17
ÍA 13 4 5 4 17
Valur 14 5 1 8 16
Fram 14 4 2 8 14
ÚRSLITIN Í GÆR
Fram - ÍBV 2:1
FRAMARAR
Sigruðu Eyjamenn 2:1
í Laugardalnum í gær.
MAKELELE EKKI TIL
CHELSEA Trevor
Birch, fram-
kvæmdastjóri hjá
Chelsea, segir að
félagið hafi ekki í
hyggju að semja
við Claude Makelele, leikmann
Real Madrid. Umboðsmaður
Makelele hélt því nýverið fram
að Makelele myndi semja við
Chelsea á næstu dögum.
HARTSON EKKI MEÐ WALES
Landslið Wales hefur orðið fyrir
áfalli fyrir leik sinn gegn Serbíu-
Svartfjallalandi í undankeppni
EM næsta miðvikudag. Fram-
herjinn sterki John Hartsson,
leikmaður Celtic, er meiddur og
getur því ekki leikið með.
■ Fótbolti
Arnór Guðjohnsen:
Vona að mínir
menn standi sig
ARNÓR
Arnór á von á að sonur sinn Eiður verði í byrjunarliði Chelsea í dag.