Fréttablaðið - 17.08.2003, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 17.08.2003, Blaðsíða 29
29SUNNUDAGUR 17. ágúst 2003 Piltalandsliðið vann Svía á EM: Mæta Þjóðverjum í úrslitum HANDBOLTI Piltalandslið Íslands í handbolta, skipað leikmönnum 18 ára og yngri, vann Svía 34:33 í undanúrslitaleik Evrópumótsins sem verður í Slóvakíu. Leikurinn var æsispennandi frá upphafi til enda og þurfti framlengingu til að knýja fram úrslitin. Arnór Atlason stóð sig frábærlega í leiknum og skoraði 14 mörk. Ísland mætir Þýskalandi í úr- slitaleik mótsins í dag. ■ ÚTSALAN ER HAFIN Gerðu góð kaup. Opið í dag, sunnudag í Hafnarstræti og Kringlu Veiðihornið, Hafnarstræti 5 - sími 551 6760 Veiðihornið, Síðumúla 8 - sími 568 8410 Veiðihornið, Nanoq, Kringlunni - sími 575 5122 FÓTBOLTI Kantmaðurinn knái Ryan Giggs skoraði tvö mörk fyrir United í leiknum, annað beint úr aukaspyrnu í stöngina og inn. Paul Scholes og Hollendingurinn Ruud van Nistelrooy bættu hinum mörkunum við. Nýjasti liðsmaður United, hinn átján ára gamli Ronaldo, stóð sig vel þegar hann kom inn á í síðari hálfleik í sínum fyrsta deildar- leik. Sol Campell, varnarjaxlinn í liði Arsenal, var rekinn út af í fyrri hálfleik þegar liðið bar sigurorð af Everton á Highbury 2:1. Frakkarn- ir Thierry Henry og Robert Pires skoruðu mörk heimamanna. Þetta var annar leikurinn í röð þar sem leikmaður Arsenal er rek- inn út af, en framherjinn Francis Jeffers fékk reisupassann í leik um Góðgerðarskjöldinn um síð- ustu helgi. Á þeim sex leiktíðum sem Arsene Wenger hefur stjórn- að Arsenal hefur 51 leikmaður liðs- ins fengið að sjá rautt spjald. Portsmouth kom á óvart þegar liðið vann Aston Villa með tveimur mörkum gegn einu. Teddy Sher- ingham og Patrik Berger, sem báð- ir eru nýkomnir til Portsmouth, skoruðu mörkin. Gareth Barry skoraði mark Villa undir lok leiks- ins. „Þetta var frábær dagur. Sigur í byrjun tímabilsins á heimavelli. Hlutirnir hefðu ekki getað gengið betur,“ sagði Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Portsmouth, sem er nýliði í ensku úrvalsdeild- inni. Wolves, sem einnig er nýliði í deildinni, tapaði illa fyrir Black- burn 5:1. Þriðji nýliðinn, Leicester City, gerði 2:2 jafntefli við Sout- hampton eftir að hafa komist í 2:0. Birmingham vann Tottenham 1:0. David Dunn, sem var keyptur til liðsins fyrir metfé frá Black- burn, skoraði sigurmarkið úr víta- spyrnu í fyrri hálfleik. Loks vann Fulham Middles- brough með þremur mörkum gegn tveimur. Japaninn Junichi Ina- moto skoraði eitt af mörkum Ful- ham. ■ Frábær byrjun meistaranna Englandsmeistarar Manchester United hófu leiktíðina með stæl þegar þeir gjörsigruðu Bolton með fjórum mörkum gegn engu. UNITED Manchester United hóf leik- tíðina með stæl þegar liðið gjörsigraði Bolton 4:0. HENRY Frakkinn Thierry Henry, leikmaður Arsenal, fagnaði ógurlega eftir að hann skoraði úr vítaspyrnu gegn Everton. Arsenal vann leikinn 2:1. FÓTBOLTI Stoke tyllti sér á topp ensku 1. deildarinnar í knatt- spyrnu þegar liðið bar sigurorð af Wimbledon á heimavelli sínum, 2:1. Wayne Thomas skoraði sigur- mark Stoke þegar venjulegur leiktími var útrunninn. Carl Asaba skoraði fyrra mark Stoke úr vítaspyrnu. Pétur Marteinsson lék í vörn Stoke, allt þar til honum var skipt út af fyrir Marc Good- fellow skömmu fyrir leikslok. Heiðar Helguson var í liði Watford sem tapaði 1:0 fyrir Crys- tal Palace á útivelli. Brynjar Björn Gunnarsson var einnig í liði Nottingham Forest sem tapaði illa fyrir Reading, 3:0. ■ NOWITZKI Dirk Nowitzki, leikmaður Dallas Mavericks, rekur boltann áfram í leik þýska landsliðs- ins í körfubolta gegn Tyrkjum sem háður var í Þýskalandi á dögunum. Um vináttu- leik var að ræða. FÓTBOLTI Barnsley, lið Guðjóns Þórðarssonar í ensku 2. deildinni, gerði 2:2 jafntefli við Bour- nemouth í gær. Bournemouth komst yfir í tvígang en Barnsley sýndi mikla seiglu og tókst að jafna leikinn í bæði skiptin. Craig Ireland skoraði fyrra mark Barnsley og Dean Gorre skoraði það síðara á 57. mínútu. Barnsley er í sjöunda sæti deildarinnar með 4 stig eftir tvo fyrstu leikina. Luton Town er í því efsta með 6 stig. ■ Enska 1. deildin: Stoke City á toppinn STOKE Komnir á topp 1. deildarinnar ensku með 6 stig eftir tvo leiki. Enska 2. deildin: Barnsley gerði jafntefli BARNSLEY Eru í sjöunda sæti ensku 2. deildarinnar eftir tvo leiki.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.