Fréttablaðið - 17.08.2003, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 17.08.2003, Blaðsíða 11
11SUNNUDAGUR 17. ágúst 2003 Microsoft tókst að verjast árásrúmrar milljónar vírussmit- aðra tölva sem réðust gegn vefsetri fyrirtækisins á miðnætti. „Þeir beittu snilldarbragði til þess að snúa á höfund ormsins og komu sér þannig hjá árásinni,“ segir Erlend- ur S. Þorsteinsson, verkefnisstjóri hjá Friðriki Skúlasyni ehf. Að sögn Erlends heitir upp- færslukerfi Microsoft mörgum nöfnum, og var orminum beint gegn vefsíðunni windowsupda- te.com. Síðan sem Windows stýri- kerfin nota sjálf við sjálfvirkar uppfærslur er hins vegar windows- update.microsoft.com. „Það sem Microsoft gerði í gær var einfaldlega það að þeir fjar- lægðu windowsupdate.com af net- inu,“ segir Erlendur. „Með því að fjarlægja það brutu þeir ekki neitt í stýrikerfum sínum. Ormur- inn hins vegar situr núna í einskismannslandi og finnur hvergi vefþjónana sem hann ætl- aði að ráðast á.“ Að sögn Erlends heldur ormur- inn þó áfram að reyna að sýkja fleiri tölvur, og notar til þess galla í Windows stýrikerfinu. „Gallann má misnota með öðrum hætti þannig að menn ættu að fara inn á windowsupdate.microsoft.com og sækja sér allar uppfærslur. Þá eru menn búnir að komast fyrir þennan orm og aðra sem ætla að reyna að nýta sér þetta.“ ■ VEFSÍÐA MICROSOFT Microsoft tókst í gær að koma sér undan árás mikils fjölda tölva sem hafa smitast af tölvuorminum MSBlast. Microsoft lék á tölvuþrjót: Ormur í einskismannslandi ■ Tölvur NÝJA NÁMSMANNAKORTIÐ Sambland af kreditkorti og gamla góða ISIC námsmannaskírteininu. Nýtt kreditkort Sparisjóðsins: Ætlað námsfólki NEYTENDUR Námsmenn í viðskipt- um við Sparisjóðina um land allt geta nú orðið sér úti um nýja teg- und af kreditkorti. Kortið er bæði almennt kreditkort og alþjóðlegt stúdentaskírteini, ISIC, en það hefur veitt námsfólki fyrir- greiðslu víðs vegar um heiminn. Kortið býður upp á ýmis fríð- indi. Engin færslugjöld eru greidd fyrir notkun þess, ferða- tryggingar innifaldar og Einka- klúbbskortið fylgir frítt með. ■ EBITDA: Ensk skammstöfun á Earnings Before Interest, Tax- es, Depreciation and Amort- ization. Hagnaður fyrirtækis fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir. Mælikvarði á hverju reksturinn skilar án fjárfest- ingar og skulda. Vísbending um rekstrarárangur fyrirtæk- isins og mismunandi eftir teg- undum fyrirtækja, hversu mikil krafa er gerð til þessar- ar kennitölu. Þýski orkurisinn E.ON: 240 milljarða hagnaður Stjórnarformaður þýska orku-fyrirtækisins E.ON var glaður í bragði þegar hann tilkynnti af- komutölur fyrirtækisins fyrir fyrstu sex mánuði árs- ins. Fyrir- tækið hefur náð að auka sölu um 49 p r ó s e n t . Nam salan á fyrstu sex m á n u ð u m alls um 2130 milljörðum í s l e n s k r a króna sem er 24 millj- arðar í evrum talið. Hagnaður fyr- irtækisins nam um 240 milljörðum, eða 2,7 milljörðum evra. Um 90% hagnaðarins kemur fram grunn- starfsemi fyrirtækisins, sem er orkusala Hátíð í Malasíu: Brenna peninga Hin svokalla „Hátíð hinshungraða draugs“ fór fram á meðal kínversk ættaðra Malasíu- búa í vikunni. Einn liðurinn er að brenna „peninga helvítis“, við styttu af hinum svokallaða „kon- ungi helvítis“ og víðar. Hátíð hins hungraða draugs er haldin 14. og 15. dag sjöunda mánaðar í daga- tali Búddatrúarmanna. Matur og bréfpeningar er meðal þess sem er brennt í stöflum á götuhornum til að koma í veg fyrir að illir and- ar komist inn í húsin og trufli heimilishaldið með draugagangi sínum. Samkvæmt trúnni opnast hlið helvítis á þessum tíma og göt- urnar fyllast af hungruðum draugum sem leita matar og hefnda á þeim sem fóru illa með þá í lífinu. Peningunum er ætlað að slökkva hefndarþorstann. WULF BERNOTAT Stjórnarformaður þýska orkurisans sá ástæðu til að brosa í tilefni af hálfs- mánaðaruppgjöri ■ Hugtak vikunnar

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.