Fréttablaðið - 17.08.2003, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 17.08.2003, Blaðsíða 13
SUNNUDAGUR 17. ágúst 2003 við Sjálfstæðisflokkinn fannst mér verulegur sigur.“ Hefði þér ekki þótt fýsilegur kostur að Sjálfstæðisflokkurinn ynni með Samfylkingunni fremur en Framsóknarflokknum? „Í dag er Samfylkingin varla stjórnmálaflokkur. Hún er sund- urlaust bandalag einstaklinga sem langar að ná völdum en þeir eru alls ekki sammála um hvað þeir vilja gera í þágu íslensks samfélags. Menn greinir líka á um hver eigi að leiða þetta bandalag. Nú sem stendur sé ég Samfylking- una ekki sem vænlegan kost þó að það geti hugsanlega breyst. Ég sakna Alþýðuflokksins úr stjórn- málum. Á tímabili ögraði hann ís- lenskri stjórnmálaumræðu og kom með áherslur sem ýttu undir hugmyndafræðilegar rökræður um hvert Ísland ætti að stefna. Einnig er ákveðinn missir af Kvennalistanum því að þó að ég væri ekki sammála öllum hug- myndum hans þá höfðu þær áhrif á pólitíska umræðu. Nú hefur Sjálfstæðisflokkurinn einn flokka skýra sýn. Það er ekki mikið að gerast í öðrum flokkum í dag. Því miður er pólitíska flóran nokkuð dapurleg.“ Eru fréttir um samráð olíufé- laganna ekki verulega óþægilegar fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Þarna eru forstjórar sem liggja undir grun um ýmislegt óeðlilegt og þeir tengjast flokknum. „Þetta er áfall fyrir allt ís- lenskt samfélag. Sem blaðamaður skrifaði ég um viðskiptalífið á ár- unum 1991-1993 og var meðal ann- ars að skrifa um tengsl stórra al- menningshlutafélaga og fékk skömm í hattinn fyrir. Á Morgun- blaðinu vorum við að greina verð- hækkanir sem gerðust með und- arlegum hætti, allar á sama tíma og með sömu krónutölu. Það var erfitt að ná utan um þetta verk- efni og mönnum tókst ekki að fá þetta staðfest. En þetta nýja mál er áfall fyrir allan almenning á Ís- landi og alla stjórnmálaflokka og svo virðist sem þetta hafi gerst víðar en í olíufélögunum. En það er rétt að hafa í huga að þeir ein- staklingar sem koma að þessu máli tengjast öllum flokkum og ýmis konar viðskiptablokkum.“ Frjálst val einstaklinga Það er mikil umræða um einkaskóla hér í Garðabæ sem óþarfi er að fara nákvæmlega út í. En þú styður einkaskóla. Er það hluti af frjálshyggjuhugsjón? „Ég styð frjálst val einstakling- anna og ég styð að börn, óháð efnahag, geti notið skyldumennt- unar í grunnskólanámi í þeim skóla sem þau og foreldrarnir telja að henti þeim best. Þess vegna erum við búin að búa til módel í Garðabæ sem felst í því að fjármagnið fylgir börnunum og þá skiptir í mínu hjarta engu máli hvort þau finna sinn stað í opin- berum skólum eða einkaskólum svo lengi sem þau njóta góðrar þjónustu. Hvor leiðin hefur sína kosti og sína galla en ég held að virkur samanburður á milli þess- ara kerfa geti einungis bætt skólastarfið í heild sinni.“ Er barátta gegn einkaskólum ekki frekar gamaldags? „Mér finnst það og ég skil ekki rök þeirra sem vinna gegn þessu frjálsa framtaki ástríðufullra ein- staklinga, grunnskólakennara og leikskólakennara sem leggja sig alla fram við að búa til skemmti- legt umhverfi fyrir börnin.“ Ég hef á tilfinningunni að þú sért mjög ánægð í þínu starfi en muntu ekki í fyllingu tímans snúa þér að landsmálapólitík og enda sem ráðherra? „Ég ber virðingu fyrir alþingis- mönnum og finnst þeir vinna frá- bært starf. Mér fannst afar gam- an að sjá hversu margir ungir þingmenn með nýjar hugmyndir náðu kjöri í síðustu kosningum, líkt og Garðbæingurinn Bjarni Benediktsson. Ég bind miklar vonir við að þetta fólk geri góða hluti. Mér finnst líka frábært að sjá Þorgerði Katrínu sem verð- andi menntamálaráðherra. Ég hef mikla trú á henni og lít á hana sem fulltrúa nýrrar kynslóðar í ríkis- stjórn. En ef mér yrði boðið þing- sæti í dag myndi ég ekki vilja skipta. Hér í Garðabæ get ég fengið að vinna að skemmtilegum hlutum til að bæta samfélagið. Ég vil gjarnan fá að sinna því áfram í umboði bæjarbúa.“ kolla@frettabladid.is Heimsferðir bjóða borgarævintýri til fegurstu borga Evrópu á hreint frábærum kjörum með beinu flugi í haust. Alls staðar nýt- ur þú þjónustu reyndra fararstjóra okkar, sem eru á heimavelli á söguslóðum og bjóða spennandi kynnisferðir meðan á dvölinni stendur. Notaðu tækifærið og kynnstu mest spennandi borgum Evrópu, mannlífi og menningu og upplifðu ævintýri í haust. Fegurstu borgirnar í beinu flugi í haust frá kr. 28.550 Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Róm 1.-5. okt. Heimsferðir bjóða nú einstakt tæki- færi til borgarinnar eilífu í beinu flugi þann 1. okt. frá Íslandi til Rómar. Nú getur þú kynnst þessari einstöku borg sem á engan sinn líka í fylgd farar- stjóra Heimsferða og upplifað árþús- undamenningu og andrúmsloft sem er einstakt í heiminum. Péturstorgið og Péturskirkjan, Vatíkanið, Spænsku tröppurnar, Colosseum, Forum Romanum og Pantheon hofið. Sjá www.heimsferðir.is Verð frá kr.65.850 Búdapest október fimmtud. og mánud., 3, 4 eða 7 nætur Stórkostleg borg í hjarta Evrópu, sem Íslendingum býðst nú að kynn- ast í beinu flugi frá Íslandi. Hér getur þú valið um góð 3 og 4 stjörnu hótel í hjarta Budapest og spennandi kynnisferðir með farar- stjórum Heimsferða. Verð kr. 28.550 Flugsæti til Budapest 20. okt. með 8.000 kr. afslætti. Skattar innifaldir. Gildir frá mánudegi til fimmtudags. Verona 17. sept., 5 nætur Fegursta borg Ítalíu, þar sem þú getur notið hins besta af ítalskri menningu um leið og þú gengur um gamla bæinn, skoðar svalir Júlíu og kynnist frægasta útileik- húsi Ítalíu, Arenunni í Verona eða ferðast um Gardavatn og Feneyjar. Verð kr. 29.950 Flugsæti með sköttum. Völ um 3 og 4 stjörnu hótel. Ekki innifalið: Forfalla- gjald, kr. 1.800 valkvætt. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Prag Okt. og nóv. fimmtud. og mánud., 3, 4 eða 7 nætur Fegursta borg Evrópu og eftirlæti Íslendinga sem fara nú hingað í þúsundatali á hverju ári með Heims- ferðum. Fararstjórar Heimsferða gjör- þekkja borgina og kynna þér sögu hennar og heillandi menningu. Góð hótel í hjarta Prag. Verð kr. 29.950 Flug og hótel í 3 nætur. M.v. 2 í her- bergi á Quality Hotel, 3. nóv. með 8.000 kr. afslætti. Skattar innifaldir. Gildir frá mánudegi til fimmtudags. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Barcelona 2. okt. 3 nætur 22./26./30. okt. 4 nætur Einn vinsælsti áfangastaður Íslend- inga í 11 ár. Heimsferðir bjóða nú bein flug í október, sem er einn skemmtilegasti tíminn til að heim- sækja borgina. Menningarlífið er í hápunkti og ótrúlegt úrval listsýn- inga og tónleika að heimsækja ásamt spennandi næturlífi og ótrú- legu úrvali verslana. Fararstjórar Heimsferða kynna þér borgina á nýjan hátt, enda hér á heimavelli. Verð kr. 49.950 Flug og hótel í 4 nætur. M.v. 2 í herbergi á Aragon, 22. okt. Skattar innifaldir. Ferðir til og frá flug- velli kr. 1.800. Sorrento 30. sept., 5 nætur Heimsferðir bjóða nú í fyrsta sinn á Íslandi beint flug til Napolí og dvöl í Sorrento, þessum frægasta sumar- leyfisstað Ítalíu. Hér kynnist þú hinni ótrúlega fögru Amalfi strönd, eyjunni Capri, Pompei og Napolí. Ótrúlega fallegt umhverfi og heill- andi andrúmsloft á þessum fagra stað. Völ um úrvalshótel í hjarta Sorrento. Verð kr. 63.650 Flug og hótel í 5 nætur. M.v. 2 í her- bergi á La Meridiana með morgunmat. Skattar innifaldir. Ferðir til og frá flug- velli kr. 1.800. Verð m.v. 2 í herbergi, Hotel Villa Torlonia, flug, gisting, skattar, íslensk fararstjórn. Ekki innifalið: Forfalla- gjald, kr. 1.800 valkvætt. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Hluti af því sem leiðtogar verða að læra er að greina á milli per- sónu sinnar og hlutverksins sem þeir gegna. Oft eru leið- togar gagnrýndir af and- stæðingum vegna þess að þeir eru að stuðla að breyt- ingum og hafa ákveðin áhrif. Leiðtogar eiga að líta á starf sitt sem verkefni en ekki sjá það sem allt sem þeir stan- da fyrir. Líf hvers og eins er svo miklu stærra en verkefn- in sem hann fæst við. ,,

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.