Fréttablaðið - 17.08.2003, Qupperneq 30
30 17. ágúst 2003 SUNNUDAGURHlaup
Margrét Frímannsdóttir um bikarúrslit kvenna:
Á von á spennandi leik
FÓTBOLTI „Mér finnst þetta vera
mikill heiður,“ segir Margrét
Frímannsdóttir, alþingismaður,
sem verður heiðursgestur á bik-
arúrslitaleik ÍBV og Vals á
morgun. Margrét fylgist meira
með kvenna- en karlaknatt-
spyrnunni og segir að eiginmað-
urinn og yngsti sonurinn sjái til
þess að ekkert fréttnæmt úr
heimi knattspyrnunnar fari
framhjá fjölskyldunni.
Margrét er ekki að fara á fót-
boltaleik í fyrsta sinn. Hún hefur
fylgst með íslenska kvenna-
landsliðinu um þó nokkurt skeið.
„Knattspyrnukonurnar vöktu
sjálfar áhuga minn, bæði með
auglýsingum og framkomu. Þær
eru afburða snjallir leikmenn og
afburða snjallar í að koma
kvennaknattspyrnunni á fram-
færi. Ég held að knattspyrnan
eigi eftir að búa að því um alla
framtíð sem þær hafa verið að
gera,“ segir Margrét.
Margrét er þingmaður Suður-
kjördæmis og finnst ekki verra
að annað liðið sem leikur til úr-
slita komi úr kjördæminu. „Ég
held að þetta verði mjög spenn-
andi leikur en þar sem ég verð
heiðursgestur ætla ég ekki að
spá til um úrslitin,“ segir Mar-
grét Frímannsdóttir, alþingis-
maður. ■
ÍBV - KR 4-2
Olga Færseth 3
Karen Burke 1
Breiðablik - ÍBV 2-6
Olga Færseth 1
Mhairi Gilmour 1
Íris Sæmundsdóttir 2
Karen Burke 1
Lind Hrafnsdóttir 1
Valur - Þór/KA/KS 7-0
Rakel Logadóttir 2
Laufey Ólafsdóttir 2 (1 vsp)
Dóra María Lárusdóttir 3
Stjarnan - Valur 1-4
Dóra María Lárusdóttir 2
Íris Andrésdóttir 1
Nína Ósk Kristinsdóttir 1
FÓTBOLTI Úrslitaleikurinn í VISA-
bikarkeppni kvenna fer fram í dag.
ÍBV og Valur leika á Laugardals-
velli og hefst leikurinn klukkan 14.
Valur hefur sigrað átta sinnum í
keppninni en Eyjastúlkur leika til
úrslita í fyrsta sinn.
„Bikarúrslitaleikur er vissulega
dálítið öðru vísi en aðrir leikir og
því gott að hafa prófað þetta áður,“
segir Helena Ólafsdóttir, þjálfari
Vals. „Við höfum leikið til úrslita
síðustu tvö árin en Eyjamenn
aldrei. En það skiptir ekki máli
þegar í leikinn er komið því ég held
að þetta byggi allt á stemningunni
og hvernig spennan leggst í leik-
menn.“
Helena bendir á að með ÍBV
leiki margir sterkir landsliðsmenn,
íslenskir, skoskir og enskir. Þær
hafi því mjög mikla reynslu af
stórleikjum.
Heimir Hallgrímsson, þjálfari
ÍBV, segir að erlendu leikmennirn-
ir hafi allir leikið landsleiki. „Það
er nú kannski ein ástæðan fyrir því
að við fengum þær til okkar. Þær
komu með reynslu sem var ekki til
hjá okkur. Hjá okkur eru einnig
þrír A-landsliðsmenn, Íris Sæ-
mundsdóttir, Margrét Lára Viðars-
dóttir og Olga Færseth. Aðrir leik-
menn hafa ekki komið inn á Laug-
ardalsvöllinn, ekki spilað úrslita-
leik, leik í beinni útsendingu eða
leik þar sem verða svona margir
áhorfendur. Andlega hliðin er því
þáttur sem við þurfum að vinna í.“
Hröð og skemmtileg
sóknarlið
Þjálfararnir eru sammála um
að leikurinn gæti byrjað varfærn-
islega en að hann þróist út í
skemmtilega viðureign. „Leikur-
inn byrjar örugglega þannig að
liðin leika af varfærni,“ segir
Heimir, „en það breytist örugg-
lega fljótt því þetta eru tvö sókn-
djörf lið. Þetta verður örugglega
skemmtilegur leikur.“ Helena tek-
ur í sama streng. „Ég held að leik-
urinn geti orðið opinn og
skemmtilegur fyrir áhorfendur
og svo er spurning hvernig liðun-
um tekst að verjast.“
Með félögunum leika margir
þekktir leikmenn sem mótherj-
arnir ætla kannski að huga sér-
staklega að í bikarúrslitaleiknum.
„Ég held að við höfum alveg nóg
með að hugsa um okkur fyrir
þennan leik,“ segir Heimir. „Við
eigum bara að einbeita okkur að
okkar leik í stað þess að búa til
Þjálfararnir eiga von
á skemmtilegum leik
ÍBV og Valur leika til úrslita í VISA-bikarkeppni
kvenna í dag. Valur hefur átta sinnum sigrað í bik-
arkeppninni en ÍBV leikur til úrslita í fyrsta sinn.
skemmtileg birta
fyrir alla
93.000 eintök
frítt me› Fréttabla›inu á föstudögum
sjónvarpsdagskráin
vi›töl
greinar
ver›launagátur
pistlar
sta›reyndir og sta›leysur
frítt á föstudögum
14.00 Laugardalsvöllur
ÍBV og Valur eigast við í úrslitaleik bikar-
keppni kvenna. Sýnt beint á RÚV.
14.00 Grindavíkurvöllur
Grindavík fær FH-inga í heimsókn í
Landsbankadeild karla.
16.00 RÚV
Á ystu nöf fjallar um jaðaríþróttir.
18.00 Akureyrarvöllur
KA og ÍA mætast í botnslag Landsbanka-
deildar karla.
hvað?hvar?hvenær?
14 15 16 17 18 19 20
ÁGÚST
Sunnudagur
MARGRÉT FRÍMANNSDÓTTIR
Margrét fylgist með kvennalandsliðinu í
fótbolta. Konurnar vöktu áhuga hennar á
liðinu með auglýsingunum sínum.
LEIÐ ÍBV OG VALS
Í ÚRSLITALEIKINN
VALUR - ÍBV
Valur hefur átta sinnum sigrað í bikarkeppninni en ÍBV leikur til úrslita í fyrsta sinn.
OLGA FÆRSETH
Markahæsti leikmaður Íslandsmót kvenna
frá upphafi. Hún verður í eldlínunni í dag.
FYRSTUR Í MARK
Breski spretthlauparinn Christian Malcolm
kom fyrstur í mark í úrslitum 200 metra
hlaups á Grand Prix móti sem var haldið í
Lundúnum á föstudag. Eins og sjá var léttir-
inn mikill er hann hljóp yfir endalínuna.
Michael Schumacher:
Æfði með
Juventus
ÍTALÍA,AP Ökuþórinn Michael
Schumacher, hjá Ferrari-liðinu, tók
sér frí frá undirbún-
ingi sínum fyrir
kappakstur í Ung-
verjalandi um næstu
helgi með því að
mæta á æfingu hjá
ítalska knattspyrnu-
liðinu Juventus. Fót-
bolti er í miklu uppáhaldi hjá
Schumacher og hefur hann margoft
tekið þátt í góðgerðarleikjum sem
leikmaður. Ekki fylgir sögunni
hvernig þýska ökuþórnum reiddi af
innan um Allessandro Del Piero og
félaga í ítalska stórliðinu. ■