Fréttablaðið - 17.08.2003, Síða 31

Fréttablaðið - 17.08.2003, Síða 31
31SUNNUDAGUR 17. ágúst 2003 einhverjar hættur og grýlur. Við reynum bara að koma okkar liði í stand og erum ekkert að einblína á Valsara.“ „Við gerum eflaust einhverjar ráðstafanir,“ segir Helena, „en ég einbeiti mér fyrst og fremst að mínu liði og ef það er tilbúið hef ég engar áhyggjur. Við höfum ekki síðri knattspyrnumenn en þær.“ Allir leikmenn Vals eru heilir en Karítas Þórarinsdóttir leikur ekki með ÍBV vegna meiðsla sem hún hlaut í leik með U17 landslið- inu á Ólympíuhátíð æskunnar í síðasta mánuði. Gríðarleg stemning Eyjamenn komu til lands á föstudag og gistu og æfðu í Borg- arnesi því ekki var til gistirými í menningarborginni Reykjavík. Valsmenn ákváðu að efla baráttu- andann með nokkrum styttri sam- verustundum í stað þess að gista á hóteli. Valsmenn buðu yngstu flokk- unum í knattþrautir á föstudag til þess að vekja áhuga þeirra á leiknum. Helena ítrekar líka að hún vilji fá alla Valsmenn á völl- inn. Eyjamenn ætla að fjölmenna á völlinn. „Það er góð stemning fyr- ir leiknum og jákvæltt andrúms- loft,“ segir Heimir. „Þetta er fyrs- ta skiptið og við þurfum mikinn meðbyr og jákvæða strauma. Það verður hörkustemning hér í Reykjavík.“ Heimir á von á að stemningin verði jafnmikil og gerist á karla- leikjunum þótt áhorfendur verði ekki jafnmargir. Áhugi Eyja- manna á kvennaliði ÍBV hefur vaxið í kjölfar góðs gengis þess í sumar. „Við höfum bætt okkur um eitt sæti í deildinni á hverju ári,“ segir Heimir. „Með betri árangri fjölgar áhorfendum og það eru alltaf fleiri sem vilja styðja okkur og hjálpa. ÍBV hefur ekki unnið titla í meistaraflokki kvenna og fyrsti titillinn getur skipt miklu máli fyrir framhaldið. Heimir vill þó ekki leggja mikla pressu á sína leikmenn. „Við ætlum að leyfa þeim að njóta þess að hafa komist í þennan leik án þess að leggja allt of mikla pressu á þær. obh@frettabladid.is 23. ÚRSLITALEIKURINN Bikar- keppni kvenna fór fyrst fram árið 1981. Breiðablik vann Val 4-0 og skoruðu Rósa Valdimarsdóttir og Ásta B. Gunnlaugsdóttir tvö mörk hvor. BLIKAR OG VALSMENN OFTAST MEISTARAR Breiðablik og Valur hafa átta sinnum orðið bikarmeist- arar, ÍA fjórum sinnum og KR tvis- var. Auk þess hafa Keflavík, Stjarnan og Þór frá Akureyri leikið til úrslita í keppninni. ERLA OG JÓNÍNA MARKAHÆSTAR Erla Hendriksdóttir, Breiðabliki, og Jónína Víglundsdóttir, ÍA, hafa skorað flest mörk í úrslitaleikjum bikarkeppninnar. Erla skoraði öll mörk Blika í 3-0 sigri á Val árið 1996, úrslitamarkið í 2-1 sigri á Val ári síðar og eitt marka Blika í 3-2 sigri á KR árið 1998. Jónína skoraði þrennu í 6-0 sigri Skagamanna á Keflvíkingum árið 1991 og tvö í 3-1 sigri á Þór árið 1989. ÞRIÐJI BIKARLEIKUR ÍBV OG VALS ÍBV og Valur hafa tvisvar áður mæst í bikarkeppninni. Árið 1999 vann ÍBV 2-0 á Hásteinsvelli í átta liða úrslitum. Hrefna Jóhannes- dóttir og Fanný Yngvadóttir skor- uðu mörkin. Valur vann 3-0 í leik fé- laganna í undanúrslitum í fyrra. Vil- borg Guðlaugsdóttir, Ásgerður Hildur Ingibergsdóttir og Dóra Stefánsdóttir skoruðu 70 MÖRK Í ÚRSLITALEIKJUM Sjötíu mörk hafa verið skoruð í bikarúr- slitaleikjunum 22 sem samsvarar rúmlega þremur mörkum í leik að meðaltali. Flest urðu mörkin í fyrra þegar KR vann Val 4-3. TVÆR VÍTASPYRNUKEPPNIR Tveim- ur úrslitaleikjum hefur lokið með vítakeppni. Breiðablik vann Val 6-5 í vítakeppni eftir 1-1 jafntefli í fram- lengdum leik. Tveimur árum síðar gerðu Valur og ÍA 3-3 jafntefli en Valur vann 3-1 í vítakeppni. DÓRA MARÍA MARKAHÆST Í ÁR Dóra María Lárusdóttir leikmaður Vals hefur skorað flest mörk í VISA-bikarkeppninni í ár. Dóra skoraði þrisvar gegn Þór/KA/KS og tvisvar gegn Stjörnunni. Olga Fær- seth, ÍBV, og Kristín Sigurðardótt- ir, FH, hafa skorað fjögur mörk.  11.30 Sýn Boltinn með Guðna Bergs hefur göngu sína á Sýn.  12.45 Sýn Sýnt verður frá leik Leeds og Newcastle í ensku úrvalsdeildinni.  14.50 Sýn Bein útsending frá stórleik 1. umferðar í enska boltanum þegar Liverpool og Chel- sea eigast við.  17.05 Sýn Sýnt verður frá bandarísku mótaröðinni í golfi. hvað?hvar?hvenær? 14 15 16 17 18 19 20 ÁGÚST Sunnudagur FRÉTTAB LAÐ IÐ /RÓ B ERT FRÉTTAB LAÐ IÐ /VILH ELM ■ Bikarmolar FÓTBOLTI Í kvöld fara fram tveir leikir í 14. umferð Landsbanka- deildar karla. Grindavík og FH leika í Grindavík og KA og ÍA á Akureyri. Milan Stefán Jankovic, þjálfari Keflavíkur og fyrrum leikmaður og þjálfari Grindavík- inga, telur Grindvík sigurstrang- legri í leiknum gegn FH í dag og á von á jöfnum leik KA og ÍA fyrir norðan. „Ég held að Grindavíkingar komi fullir sjáflstrausts eftir góðan leik úti í Austurríki og ég held að þeir sigri FH. FH-ingar eru eitt skemmtilegasta lið Íslandsmótsins, þeir spila mjög vel sérstaklega sóknarleikinn.“ Grindavík hefur í sumar leikið án Grétars Hjartarsonar, marka- hæasta manns deildarinnar í fyrra. „Grindavík vantar kannski marka- skorara og kannski vantar þá ein- mitt Grétar,“ segir Milan Stefán Jankovic en hann telur að Grinda- vík sé enn í toppbaráttunni. „Leik- irnir sem eru framundan, á móti FH og Þrótti, skipta miklu máli . Ef Grindvíkingar vinna þessa leiki er allt hægt. Fylkir og KR eiga eftir að leika, Fylkir á eftir erfiðan leik gegn Akranesi og KR á eftir að spila í Grindavík. Þetta er því ekki alveg búið.“ Þremur síðustu leikjum KA og ÍA hefur lokið með 1:1 jafntefli og Milan Stefán Jankovic á von á enn einu jafnteflinu. „Þetta verður mjög mikilvægur leikur fyrir bæði lið og slæmt fyrir bæði lið að tapa. Liðið sem tapar verður í slæmum málum.“ Staðan í Landsbanka- deildinni er það jöfn að liðið sem sigrar í leik KA og ÍA á möguleika á sæti í Evrópukeppni en liðið sem tapar situr eftir á fallsvæðinu. ■ Landsbankadeild karla: Grindavík er enn í toppbaráttunni GRINDAVÍK Milan Stefán Jankovic, þjálfari Keflavíkur og fyrrum leikmaður og þjálfari Grindavíkinga, telur Grindvík enn eiga möguleika í toppbaráttunni. TIGNARLEG Kínverska stúlkan Lin Li var tignarleg í loft- inu er hún stökk af jafnvægisslánni á æf- ingu fyrir heimsmeistaramótið í fimleikum. Mótið, sem fer fram í Kaliforníu í Banda- ríkjunum, hófst á föstudaginn. FÓTBOLTI Íslendingaliðið Bochum tapaði fyrir Bayern München með tveimur mörkum gegn engu í þriðju umferð þýsku Bundeslig- unnar í gær. Leikurinn var háður á Ólympíuleikvangnum í München. Claudio Pizarro skoraði skor- aði fyrra mark Bayern á 26. mín- útu og Sebastian Deislar bætti því síðara við sex mínútum sein- na. Þórður Guðjónsson spilaði all- an leikinn en bróðir hans Bjarni kom inn á í síðari hálfleik fyrir Thomas Zdebel. Bayern Leverkusen er efst í Bundesligunni með fullt hús stiga eftir sannfærandi 4:0 sigur gegn Hannover. Oliver Neuville skoraði tvö mörk fyrir Leverku- sen. Brasilíumaðurinn Franca og Daniel Bierofka skoruðu hin tvö mörkin. Borussia Dortmund vann 1860 München 3:1. Marcio Amoroso skoraði tvö mörk fyrir Dortmund og risinn Jan Koller bætti því þriðja við. Dortmund er í öðru sæti deildarinnar, tveimur stig- um á eftir Bayern. Bochum er aftur á móti í því fjórtánda með eitt stig. ■ Íslendingaliðið Bochum: Tap gegn Bayern MARKI FAGNAÐ Perúmaðurinn Claudio Pizarro fagnar fé- lögum sínum í Bayern München eftir að Sebastian Deisler kom liðinu í 2:0 gegn Bochum.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.