Fréttablaðið - 27.08.2003, Side 2
BYGGÐAMÁL Af 375 þúsund
þorskígildistonna kvóta á Íslands-
miðum eru 11,2 prósent á skipum
með heimahöfn á Akureyri og 8,7
prósent í Reykjavík. Með Vest-
manneyjum, sem hefur 9,5 pró-
sent, og Grindavík með 8,7 pró-
sentum eru þetta fjórar
langstærstu útgerðarhafnir lands-
ins.
Í útreikningunum er heildar-
kvóti allra tegunda við Íslands-
strendur reiknaður sem ígildi
þorsktonna, og fer ígildi tegunda
eftir verðmæti þeirra á síðasta ári.
Til dæmis gildir eitt humarkíló
sem 6,7 kíló af þorski, en karfinn
er hálfdrættingur á við þorsk.
Athygli vekur að gamla útgerð-
arveldið Ísafjörður á einungis 2,6
prósent af óveiddum fiski í sjón-
um við Ísland. Vestfirðir í heild
sinni, frá Patreksfirði til Hólma-
víkur, eiga 8,7 prósent kvótans.
Árið 1991 var hlutdeild Vestfjarða
14,6 prósent. Sama ár var hlut-
deild Akureyrar í kvótanum 6,2
prósent og Reykjavíkur 7,7 pró-
sent.
Ari Arason, sérfræðingur
Fiskistofu, segir tilhneiginguna
síðustu árin vera þá að kvótinn
færist til Akureyrar. Hann segir
Vestfirði og höfuðborgarsvæðið
hafa tapað mestum kvóta síðustu
ár. „Kvótinn á höfuðborgarsvæð-
inu hefur minnkað allt frá upphafi
kvótakerfisins. Fyrstu 6 ár kerfis-
ins, 1984 til 1990, var meginþung-
inn af flutningi kvótans af
Reykjanesi og norður í land. Síðan
má segja að þróunin hafi verið sú
að kvótinn á Vestfjörðum minnk-
aði mikið frá 1990.“
Að sögn Ara hafa verið litlar
kvótatilfærslur á yfirstandandi
fiskveiðiári, sem lýkur 1. septem-
ber.
„Mest áberandi er hvað það
hafa verið litlar færslur á yfir-
standandi ári. Meginbreytingin er
sú að sífellt algengara er að eitt
fyrirtæki eigi kvóta og vinnslu á
mörgum stöðum á landinu. Brim
er mest áberandi þar.“
Enn á eftir að úthluta um þriðj-
ungi loðnukvótans og 5-6.000
tonnum í byggðakvóta. Þess ber
að geta að þeim kvóta sem skráð-
ur er á skip með heimahöfn á til-
teknum stað er ekki nauðsynlega
landað á þeim stað. Því er mis-
jafnt hversu mikið kvótinn nýtist
byggðunum.
jtr@frettabladid.is
2 27. ágúst 2003 MIÐVIKUDAGUR
„Það er bara mitt mál.“
Árna Snævarr var sagt upp á Stöð 2 í gær.
Sigurður G. Guðjónsson er forstjóri fyrirtækisins.
Spurningdagsins
Sigurður, búinn að finna
uppljóstrarann?
Kvótinn mestur
á Akureyri
Akureyri er mesti útgerðarbær landsins og eru ríflega 11 prósent kvóta
við Ísland eyrnamerkt bænum. Reykjavík hefur 8,7 prósent kvótans en
gamla stórveldið Ísafjörður einungis 2,6 prósent.
Tvær sprengjuárásir kosta 46 manns lífið:
Herskáum múslímum kennt um
BOMBAY, AP Yfirvöld á Indlandi
kenna samtökum herskárra
múslíma í Kasmír um sprengju-
árásirnar í Bombay. Alls létust
46 manns og um 150 særðust
þegar tvær sprengjur sprungu
með innan við fimm mínútna
millibili við minnismerki og á
skartgripamarkaði í borginni.
Að sögn lögreglu beinist
rannsóknin á sprengjutilræðun-
um að íslömsku samtökunum
Lashkar-e-Tayyaba og Íslömsku
námsmannahreyfingunni í Ind-
landi. Fjöldi manna hefur verið
færður til yfirheyrslu, þar á
meðal bílstjóri leigubílsins sem
sprakk í loft upp fyrir framan
minnismerkið „Hlið Indlands“ í
Bombay.
Samtökin tvö eru talin hafa
staðið á bak við að minnsta kosti
fimm sprengjutilræði í Bombay
á síðastliðnum sex mánuðum.
Liðsmenn Lashkar-e-Tayyaba eru
á meðal þeirra sem berjast fyrir
sjálfstæði hins indverska hluta
Kasmírs eða sameiningu hans við
Pakistan. Lal Krishna Advani,
aðstoðarforsætisráðherra Ind-
lands, hefur gefið í skyn að
pakistönsk stjórnvöld beri að
hluta til ábyrgð á sprengjuárás-
unum þar sem þau hýsi og styðji
við bakið á íslömskum hryðju-
verkamönnum. ■
Kólumbíuslysið:
NASA
gagnrýnd
BANDARÍKIN, AP Starfshættir Banda-
rísku geimferðastofnunarinnar,
NASA, eru harðlega gagnrýndir í
skýrslu óháðra sérfræðinga um
hörmuleg endalok geimflaugarinn-
ar Kólumbíu. Geimflaugin, með sjö
manna áhöfn, fórst 2. apríl á leið inn
í gufuhvolfið. Eftir að hafa skoðað
sögu NASA áratugi aftur í tímann
hafa sérfræðingarnir komist að því
að allt snúist um það að halda áætl-
un þrátt fyrir fjársvelti og ekki lögð
nægileg áhersla á öryggismál. Í síð-
ustu ferð Kólumbíu gerði geim-
ferðastofnunin ekkert til þess að
rannsaka hugsanlegar skemmdir á
hitahlíf geimflaugarinnar. ■
Alls 29 hrefnur enn
óveiddar:
Níu hrefnur
veiddar
HVALVEIÐAR Alls hafa veiðst 9
hrefnur á Íslandsmiðum síðan
hvalveiðar hófust að nýju sunnu-
daginn 17. ágúst.
Skipin þrjú sem Hafrann-
sóknastofnun fékk til veiðanna
hafa skipt aflanum bróðurlega á
milli sín. Halldór Sigurðsson ÍS
hefur veitt flestar, fjórar talsins.
Síðdegis í gær veiddi Halldór
Sigurðsson ÍS 7,5 metra langa
hrefnu. Í samræmi við rann-
sóknaáætlun voru gerðar mæl-
ingar og sýni tekin til margvís-
legra rannsókna. Gert er ráð fyr-
ir að lokið verði við að veiða
hrefnurnar 38 í næsta mánuði.
Borgarfjarðarbrú:
Lést í um-
ferðarslysi
ANDLÁT Maðurinn sem lést þegar
flutningabíll sem hann ók fór fram
af Borgarfjarðarbrú á mánudag
hét Kristján Viðar Hafliðason,
fæddur 1973. Kristján var til heim-
ilis að Ásaheimum á Króksfjarðar-
nesi. Hann lætur eftir sig eigin-
konu og tveggja ára son. ■
HLUTDEILD HEIMAHAFNA
Í KVÓTANUM VIÐ LANDIÐ
FISKVEIÐIÁRIÐ 2003/2004
Akureyri 11,2%
Vestmannaeyjar 9,5%
Grindavík 8,7%
Reykjavík 8,7%
Akranes 4,6%
Hornafjörður 4,1%
Þorlákshöfn 3,3%
Ólafsfjörður 3%
Rif 2,9 %
Grundarfjörður 2,6 %
Neskaupstaður 2,6 %
Hafnarfjörður 2,6 %
Ísafjörður 2,6 %
Sauðárkrókur 2,4 %
Dalvík 2,1 %
AKUREYRI
Mesta kvótahöfn landsins, með stórfyrirtæki eins og Samherja og Útgerðarfélag Akureyr-
inga, sem nú er reyndar undir Brimi, sjávarútvegshluta Eimskipafélagsins.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
BJÖRGUNARSTARF Haukur Guð-
mundsson hjá Íshúsi Njarðvíkur
sagði á þriðjudag að ekkert væri
hæft í fréttum um að norska köf-
unarfyrirtækið Selöy Und-
ervannsservice hafi hug á að
hirða togarann Guðrúnu Gísla-
dóttur upp í skuld.
„Við höfum þegar greitt þessu
fyrirtæki um þrjár milljónir
norskra króna. Það er rétt að við
eigum eftir að borga þeim tölu-
vert mikið af peningum en þeir
eru að minnsta kosti bundnir
hérna við stjórnborðshliðina. Þeir
vinna að minnsta kosti með okkur
út vikuna á meðan málin skýrast.
Það var fundað með þeim í gær-
kvöldi fram á nótt. Þeir væru tæp-
lega að vinna með okkur ef þeir
ætluðu að stela af okkur skipinu,“
sagði Haukur.
Að því er Haukur sagði hefur
köfunarfyrirtækið engin formleg
skref tekið í átt til þess að gera
kröfu í skipið sjálft. Því hafi ein-
mitt verið boðin trygging í skip-
inu fyrir köfunarþjónustuna en
því verið hafnað. Verið sé að út-
vega bankaábyrgðir vegna fram-
halds björgunaraðgerðarinnar.
Sjálf aðgerðin mun ganga
fremur hægt vegna ýmissa
vandamála sem komi upp. Nú sé
verið að festa tanka við skrokk
skipsins sem lyfta eigi því upp. ■
GUÐRÚN GÍSLADÓTTIR
„Þeir væru tæplega að vinna með okkur ef þeir ætluðu að stela af okkur skipinu,“ segir
Haukur Guðmundsson hjá Íshúsi Njarðvíkur um samskiptin við norska köfunarfyrirtækið
sem vinnur að björgun Guðrúnar Gísladóttur.
SKIPTING AFLANS
Skip Hrefnur
Halldór Sigurðsson ÍS 4
Sigurbjörg BA 3
Njörður KÓ 2
HREFNUVEIÐAR
Síðdegis í gær hafði Njörður KÓ veitt 2
hrefnur.
Eigandi Guðrúnar Gísladóttur:
Kafarar ætla ekki að hirða skipið
MÓTMÆLAAÐGERÐIR
Indverskir þjóðernissinnar skera í sundur
pakistanska fánann í mótmælagöngu í
Nýju-Delí.
LINDARGATA
Maður um þrítugt hefur verið úrskurðaður
í þriggja daga gæsluvarðhald.
Miðborg Reykjavíkur:
Lát konu í
rannsókn
ANDLÁT Ung kona, fædd árið 1981,
fannst látin í heimahúsi á Lindar-
götu á mánudagskvöldið. Maður um
þrítugt tilkynnti um andlátið um
klukkan 20:30 á mánudagskvöldið.
Hann var handtekinn í kjölfarið og
var í gær úrskurðaður í þriggja
daga gæsluvarðhald. Dánarorsök
liggur ekki fyrir en engir áverkar
voru á líkinu. Frekari upplýsingar
munu liggja fyrir að fengnum nið-
urstöðum krufningar í dag. ■