Fréttablaðið - 27.08.2003, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 27.08.2003, Blaðsíða 16
Framhaldsskólarnir eru að byrja: Rafmögnuð stemning í Kvennaskólanum nám o.fl. Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur námi Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: nam@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Þjónustuauglýsingar: Gula línan, sími 580 8090 – netfang: auglysingar@gulalinan.is. Almanakið segir okkur að það sé aðkoma haust og þá hefst starfið innan framhaldsskólanna á nýjan leik. Stemningin í Kvennaskólanum er rafmögnuð þessa dagana. Sumir eru pínulítið smeykir við að hefja nám í nýjum skóla meðan aðrir eru kokhraustir og fullir tilhlökkunar yfir komandi vetri. Eitt er þó víst að ófáa blýanta þarf að ydda á næstu mánuðum og að skruddurnar þarf að opna. ■ GEIR HERBERT GEIRSSON Segir Kvennó vera alveg æðislegan skóla. Skemmtilegra að vera í skóla Geir Herbert Geirsson er að hefjanám á öðru ári í Kvennó. Hann hlakkar mikið til komandi skólaárs. „Þetta verður alveg frábært því þetta er æðislegur skóli.“ Geir finnst skemmtilegra að vera í skóla en vinnu á sumrin. „Það er miklu meira félagslíf og meira að gerast.“ Hann er ekki í vafa um að hann ætli að standa sig betur í skólanum í ár en í fyrra. „Mikið, mikið betur, það er al- veg bókað mál.“ ■ ODDNÝ SILJA HERDÍSARDÓTTIR Var að hefja nám í Kvennaskólanum í vikunni. Líst betur á kennara þar en í gamla skólanum. Mikil vinna fram undan Oddný Silja Herdísardóttir var aðhefja nám í Kvennaskólanum í vikunni. „Mér líst bara ágætlega á þetta. Ég kom í skólakynningu hingað fyrir hálfu ári og leist vel á og ákvað þá að koma hingað.“ Oddný segist svo- lítið kvíða fyrir að hefja nám í fram- haldsskóla þar sem námið verði strangara. „Ég held að þetta verði mikill vinna,“ segir hún en bætir við að sér lítist vel á nýja bekkinn sinn. „Mér líst líka mjög vel á kennarana, miklu betur en í gamla skólanum. Þetta verður ábyggilega erfitt en samt rosalega gaman.“ ■ WIN ABBELOOS Belgískur skiptinemi sem ætlar að læra íslensku í vetur. Valdi skólann ekki sjálfur Win Abbeloos er skiptinemi fráBelgíu. Gistifjölskyldan sem hann dvelur hjá hvatti hann til að fara í Kvennaskólann. „Ég valdi skólann ekki sjálfur en mér líst vel á hann. Ég hef verið hér á landi frá því á föstudaginn í síðustu viku og ætla að vera út skólaárið. Skólinn er mjög ólíkur því sem ég á að venjast í Belgíu en kennararnir eru fínir. Hér er aðeins kennt á íslensku og því verð ég að læra tungumálið eins fljótt og auðið er. Það verður erfitt en ég ætti að kunna það undir lok dvalarinnar á Íslandi.“ ■ HLYNUR VALSSON Segir að það sé gaman að hitta krakkana aftur. Toppa árið í fyrra Hlynur Valsson er að hefja annaðnámsárið sitt í Kvennaskólanum og það leggst vel í hann að byrja aft- ur í skólanum þrátt fyrir að sumar- vinnan hafi verið skemmtilegt. „Ég er bara sáttur við þetta og það er gaman að hitta krakkana. Ég ætla að leggja mig meira fram í ár og toppa árið í fyrra.“ ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.