Fréttablaðið - 27.08.2003, Side 7
7MIÐVIKUDAGUR 27. ágúst 2003
Nýstárleg skilríki:
Eitt kort fyr-
ir öll hin
BAREIN, AP Konungsríkið Barein við
Persaflóa ætlar að taka til notkunar
nýstárleg persónuskilríki sem
gegna eiga afar fjölþættu hlutverki.
Kortin eru með ljósmynd og ör-
flögu sem inniheldur nafn, kenni-
tölu, stafræn fingraför og upplýs-
ingar um menntun, sjúkrasögu og
bankareikninga. Kortin munu því
leysa af hólmi ökuskírteini, vega-
bréf, kreditkort og debetkort og
eiga að auðvelda landsmönnum líf-
ið eins og unnt er. Fyrstu kortin
verða gefin út snemma á næsta ári.
Vonast ráðamenn til þess að árið
2005 verði um það bil 600.000 kort
komin í umferð. ■
VIÐSKIPTI Kaupþing Búnaðarbanki
hefur sameinað rekstur nokkurra
sjóða undir Rekstrarfélag Kaup-
þings Búnaðarbanka. Að sögn
Andra Sigþórssonar er með þessu
verið að bregðast við sameiningu
bankanna og breyttu reglu-
umhverfi verðbréfasjóða. „Þessar
breytingar hafa engin áhrif á eig-
endur hlutdeildarskírteina í þess-
um sjóðum.“ Með breytingunni
verður yfirstjórn sjóðanna ein-
faldari og hagkvæmari.
Eigendur sjóða Kaupþings í Lúx-
emborg hafa verið að fá send bréf
vegna svipaðra breytinga á sjóðum
sem eru þar í vörslu. Andri segir
umgjörð fjármálastarfsemi í Lúx-
emborg mjög formlega og því
kunni sumum viðskiptavinum að
bregða þegar bréf berst í ábyrgðar-
pósti um breytingarnar. Hér sé um
að ræða viðbrögð við sameiningu
Kaupþings og JP Nordiska bankans
og breytingar á umhverfi sjóða í
Lúxemborg vegna tilskipunar frá
Evrópusambandinu. Andri segir
eigendur sjóða ekki verða vara við
neinar breytingar sem að þeim
snúi. Hér sé einungis um form-
breytingu að ræða. ■
BREYTT REKSTRARFORM
Sigurður Einarsson og félagar hans hjá Kaup-
þingi hafa verið iðnir í sameiningum. Sameining
við Búnaðarbanka og JP Nordiska og breyttar
reglur kalla á breytt rekstrarform sjóða.
Breytingar á rekstrarformi sjóða:
Breytir engu fyrir
viðskiptavini sjóðanna
Suðurleiðir:
Missa
sérleyfi
SAMGÖNGUR „Þeir tóku af okkur
leyfi sem við höfðum haft í rúm-
lega hálfa öld,“ sagði Jón Sigurðs-
son hjá Suðurleiðum en Vegagerð-
in, í umboði Samgönguráðuneytis-
ins, felldi í sumar úr gildi sérleyfi
sem Suðurleiðir höfðu haft á leið-
inni Siglufjörður - Reykjavík yfir
sumarmánuðina.
„Ástæðan var sú að ekki þyrfti
fleiri en einn aðila til að keyra að
norðan. Á sama tíma er ekki gerð
athugasemd við það að þrír aðilar
keyra hópbíla í gegnum Borgar-
nes.“
Jón segir að erfitt hafi reynst
að missa leyfið en þó hefur tekist
að mestu leyti að halda öllum ell-
efu hópferðabílum Suðurleiða í
verkefnum yfir sumarmánuðina
með því að hafa allar klær úti. „Í
dag er okkur gert að keyra alla
farþega í Varmahlíð og þar tekur
Norðurleið við. Þetta er óhagræði
fyrir farþega, óhagræði fyrir okk-
ur en hagkvæmt fyrir Norður-
leið.“
Samkvæmt gögnum er SBA-
Norðurleið eitt þeirra rútufyrir-
tækja sem fengið hafa hvað ríf-
legastar sérleyfishafagreiðslur
frá Samgönguráðuneytinu, sam-
tals 63 milljónir króna fyrir árin
2001 og 2002. Heimildir Frétta-
blaðsins herma að SBA-Norður-
leið hafi keypt alls sjö nýjar hóp-
ferðabifreiðir á þessu ári. ■
FAGNAÐ Á GÖTUM ÚTI
Þúsundir stuðningsmanna Kagame komu
saman á götum höfuðborgarinnar Kigali til
að fagna niðurstöðum kosninganna.
Forsetakosningar:
Kagame
vann yfir-
burðasigur
RÚANDA, AP Paul Kagame, forseti
Rúanda, vann yfirburðasigur í
fyrstu lýðræðislegu kosningunum
sem haldnar eru í landinu frá
þjóðarmorðunum árið 1994.
Kjörsókn mældist um 80% og
greiddu 94% Kagame atkvæði
sitt. Kagame, sem er tútsi, fór fyr-
ir hópi uppreisnarmanna sem
bundu endi á blóðsúthellingar
öfgasinnaðra hútúa 1994. Hann
var kosinn forseti af rúandska
þinginu árið 2000.
Fausin Twagiramungu, helsti
andstæðingur Kagamis, sakaði
forsetann um kosningasvindl og
hafnaði niðurstöðunum á þeim
forsendum að kjósendur hefðu
verið beittir þrýstingi. ■
www.dalecarnegie.is
Halldóra Katla Guðmundsdóttir,
markaðsstjóri Lýsingar.
Dale Carnegie þjálfunin var ómetanleg reynsla
sem er að nýtast mér bæði í starfi og daglegu
lífi. Markmiðasetning í fyrsta tímanum er
hluti af þjálfuninni og var það frábær upplifun
að sjá í lok námskeiðsins að ég hafði náð
þeim nánast öllum með hjálp þjálfunarinnar.
Nú eru allar ákvarðanir mun einfaldari, hversu
stórar sem þær eru, því ég hef skýrari
markmið og hef mótað mér framtíðarsýn. Ég
hvet alla þá sem vilja ná árangri í lífinu og
nýta hæfileika sína til hins ítrasta að fara í
Dale Carnegie þjálfun.
Emil Grímsson,
forstjóri Toyota.
Árangur okkar byggist
fyrst og fremst á sterkri
liðsheild. Dale Carnegie
hjálpaði okkur að þjappa
liðsheildinni enn frekar
saman og ná því besta
fram í hópnum.
Jón Björnsson,
framkvæmdastjóri
Baugs Íslands.
Fyrir þau fyrirtæki sem
huga að því að taka
þróun lykilstarfsmanna
föstum tökum get ég
óhikað mælt með þeirri
vinnu sem Dale Carnegie
hefur innt af hendi fyrir
Baug Ísland.
Magna Fríður Birnir,
forstöðumaður
Mannauðssviðs Skýrr.
Símenntunarpeningum Skýrr
var vel varið í söluþjálfun hjá
Dale Carnegie.
Hringdu í síma 555 7080 til að fá upplýsingar um næstu námskeið.
Við hjálpum einstaklingum að
Efla sjálfstraust
Ná framúrskarandi árangri í mannlegum
samskiptum
Verða betri í tjáningu
Styrkja sig sem leiðtoga
Minnka áhyggjur, streitu og kvíða
Setja sér raunhæf og krefjandi markmið
Bæta tímastjórnun
Við hjálpum fyrirtækjum að
Styrkja liðsheildina
Auka söluna
Gera stjórnun markvissari
Byggja upp leiðtoga
Auka frumkvæði starfsmanna
Bæta þjónustuna
Efla nýsköpun
R
Ú
N
A