Fréttablaðið - 27.08.2003, Side 10
10 27. ágúst 2003 MIÐVIKUDAGUR
EFTIR ELDFLAUGAÁRÁS
Palestínsk ungmenni skoða rústir bíls sem
eyðilagðist í eldflaugaárás Ísraelsmanna á
Jebaliya-flóttamannabúðirnar fyrir norðan
Gaza í gær.
Skipulagsbreytingar Brims:
Guðbrandur einn í brúnni
SJÁVARÚTVEGUR Sjávarútvegsstoð
Eimskipafélagsins, Brim, sem varð
til við samruna fyrirtækjanna ÚA,
Skagstrendings og Haraldar Böðv-
arssonar, hefur kynnt skipulags-
breytingar sem taka munu gildi um
mánaðamótin. Guðbrandur Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri ÚA, verður
framkvæmdastjóri félagsins og
stjórnarformaður dótturfélaga
þess.
Sturlaugur Sturlaugsson verður
aðstoðarframkvæmdastjóri Brims,
en hann hefur gegnt sama starfi hjá
Haraldi Böðvarssyni. Fjármálstjóri
ÚA, Jón Hallur Pétursson, tekur við
sama starfi hjá Brimi. Þessir þrír
mynda framkvæmdaráð félagsins.
Markmið breytinganna er að
skerpa ábyrgð stjórnenda félagsins,
auka skilvirkni í allri starfsemi og
lækka rekstrarkostnað. Yfirbygg-
ing hefur fram til þessa, að mati
sérfræðinga, verið of mikil hjá fé-
laginu og því fylgt mikill stjórnun-
arkostnaður. Brim er stærsta sjáv-
arútvegsfyrirtæki landsins með
tæp 11% af úthlutuðum kvóta í
landhelginni. ■
VEÐURFAR „Á þessari stundu lítur út
fyrir að ágústmánuður verði sá heit-
asti frá upphafi,“ sagði Trausti
Jónsson, veðurfræðingur hjá Veð-
urstofu Íslands.
Hitatölur fyrir
ágúst benda til að
hiti verði að meðal-
tali tveimur til
þremur gráðum fyr-
ir ofan meðallag.
„Það sem stendur upp úr er
hve hægviðrasamt sumarið hefur
verið. Hitastig hefur verið ákaf-
lega jafnt og litlar breytingar orð-
ið.“
Trausti segir ómögulegt að
segja til um hversu lengi þetta
ástand varir. „Það var spáð nætur-
frosti í þessari viku en það gekk
ekki eftir. Annars getur haustið
skollið á hvenær sem er.“
„Þetta hefur verið ótrúlegt
veðurfar,“ sagði Þröstur Eysteins-
son hjá Skógrækt ríkisins á Hér-
aði. „Það er varla að hiti hafi farið
niður fyrir tíu gráður á næturnar.
Samt er það svo að þetta sumar
hefur ekki verið gott ár í skógar-
farslegu tilliti. Í fyrsta lagi var
hretið í vor slæmt fyrir margar
tegundir. Fiðrildapúpufaraldrar
hafa herjað á birkitré víða um
land og sitkalúsin hefur náð að
dreifa sér víða, meðal annars mik-
ið fyrir norðan og austan á land-
inu.“
„Það hefur í stuttu máli orðið
sprenging í skordýraheiminum,“
sagði María Ingimarsdóttir hjá
Náttúruverndarstofnun. „Alls
staðar á landinu hafa skordýr ver-
ið fyrr á ferð og í einhverjum til-
vikum valdið meiri usla en gengur
og gerist í meðalári. Sérstaklega
er mikið um geitunga í sumar.“
Jón Finnsson, vallarstjóri á
golfvelli Borgarness, segist enn
slá grasið sem hásumar væri.
„Þetta er með ólíkindum! Grasið
er iðagrænt og sprettan er þvílík
að með eindæmum má kalla. Ég
slæ öll grínin ennþá tvisvar á dag
en það er venjulega aðeins gert
yfir hásumarið.“
Starfsfólk grasagarða Reykja-
víkjur er hæstánægt með sumar-
hitana. „Garðurinn hefur sjaldan
verið eins fallegur og nú og ég
JA‹ARSVÖLLUR - AKUREYRI
30. & 31. ÁGÚST 2003
MITSUBISHI
OPEN 2003
10 efstu sætin gefa ver›laun. Tveir
og tveir leika saman, betri bolti.
Skráningu l‡kur föstudaginn 29. ágúst
kl. 17:00. Skráning og pantanir á
rástímum eru í síma 462 2974.
KALLINN Í BRÚNNI
Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri ÚA, verður framkvæmdastjóri
Brims og stjórnarformaður allra dóttur-
félaga fyrirtækisins.
Ísraelskar hersveitir:
Sóttu fanga
á sjúkrahús
VESTURBAKKINN, AP Ísraelskir her-
menn brutu sér leið inn á sjúkra-
hús í borginni Nablus á Vestur-
bakkanum og námu á brott tvo
særða Palestínumenn.
Mennirnir tveir, sem lágu á
gjörgæsludeild sjúkrahússins,
voru bornir út í sjúkrabíl á veg-
um hersins og fluttir á ísraelskt
sjúkrahús skammt frá Tel Aviv.
Þeir eru meðlimir í Al Aqsa her-
deildunum og segja ísraelsk yf-
irvöld að þeir hafi tekið þátt í að
skipuleggja árásir á Ísraela.
Talsmenn Al Aqsa hafa staðfest
að annar mannanna hafi átt að-
ild að sjálfsmorðsárás sem kost-
aði einn Ísraela lífið 12. ágúst
síðastliðinn. ■
Síminn lækkar verð:
Ódýrari
ADSL-
þjónusta
INTERNET Þær breytingar hafa orð-
ið á ADSL-þjónustu Símans að
áskriftarleiðum hennar hefur ver-
ið breytt og þær endurnefndar.
Verð áskriftanna helst óbreytt en
viðskiptavinir fá mun meiri
gagnahraða fyrir sama verð og
verið hefur. Sem dæmi nefnist
ADSL 512 núna ADSL 1500 og fá
notendur þrefalt meiri afköst á
sambandið til sín en áður.
Stofngjald ADSL-þjónustu
Símans er ókeypis til 20. septem-
ber næstkomandi. ■
Fréttaskýring
ALBERT ÖRN EYÞÓRSSON
■ skrifar um veðurfar.
Mikil áhrif hækkandi hitastigs á Íslandi:
Enn falla hitamet
FRÁ AUSTURVELLI
Hitastig í Reykjavík hefur verið vel yfir meðallagi í allt sumar.
MIÐBÆR REYKJAVÍKUR
Úrkoma hefur verið minni en í meðalári.
REYKJAVÍK
júní júlí ágúst
Meðalhiti 9,0 10,6 10,3
2003 11,3 12,3 12,9
Breyting +2,3 +1,7 +2,6
AKUREYRI
júní júlí ágúst
Meðalhiti 9,1 10,5 10,0
2003 10,6 11,4 13,2
Breyting +1,5 +0,9 +3,2
■
„Það er varla
að hiti hafi far-
ið niður fyrir
tíu stig á næt-
urnar.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI