Fréttablaðið - 27.08.2003, Page 11
hvet fólk til að koma og skoða,“
sagði Ingunn Óskarsdóttir, yfir-
garðyrkjufræðingur hjá Grasagörð-
unum. „Mikil frætaka og fjölbreytt
líf skordýra. Flestar plöntur eru í
fullum skrúða og þetta jafna hita-
stig hefur haft mikil og góð áhrif á
allan gróður.“
Hafþór Rósmundsson á Siglu-
firði segir að það veki mikla furðu
að snjór er nánast með öllu horfinn
úr fjöllum í nágrenninu. „Það er
ótrúlegt og það er samdóma álit
þeirra sem hafa búið hér lengi að
svona hafi ástandið aldrei verið
áður.“
„Það er lítil huggun fyrir mig að
hafa sól og sumar þegar ekkert
fiskast,“ sagði Gunnar Ari Arason,
formaður Félags smábátaeigenda á
Reykjanesi. „Vissulega hefur veðr-
áttan verið góð en við viljum frem-
ur hafa dumbung og rigningu ef það
verður til þess að fiskurinn lætur
sjá sig.“
Veðurfræðingar sem Fréttablað-
ið náði tali af segja ómögulegt að
segja nokkuð til um hvað gerist á
næstu árum. Ekki sé hægt að segja
með vissu að hitastig haldi áfram að
hækka hér á landi. ■
11MIÐVIKUDAGUR 27. ágúst 2003
SMÁBÁTAEIGENDUR
Vilja frekar brælu en brúnku. Gott veður er
ekki ávísun á góða veiði.
Fjöldi aðkomubáta á Siglufirði:
Mikil ýsugengd
SJÁVARÚTVEGUR Að sögn Sigurðar
Helga Sigurðssonar, hafnarvarð-
ar á Siglufirði, er óvenju mikil
ýsugengd norður undan strönd-
um Siglufjarðar og hefur marga
aðkomubáta dregið að vegna
hennar.
„Það fiskast vel núna af stórri
og fallegri ýsu og það er óvenju-
legt hversu margir eru um hit-
una. Hér eru bátar frá Keflavík,
Sandgerði og Snæfellsnesi og
þeir væru ekki hér ef veiðivon
væri annars staðar. Mér telst til
að 14 aðkomubátar hafi verið hér
um helgina. Sumir þessara báta
eru þó ekki smábátar heldur stór-
ir krókabátar en þetta er hrein
viðbót við smábátana héðan. Ann-
ars er flestum í mun að klára
sóknardaga sína áður en hausta
fer og því eru langflestir úti á
góðviðrisdögum sem þessum.
Margir eru reyndar búnir með
sína daga en stærri kvótabátarn-
ir reyna náttúrulega að klára
hann sem fyrst.“ ■
Afkoma Samherja:
Minni
hagnaður
UPPGJÖR Hagnaður Samherja á fyrri
helmingi ársins var rúmar 600
milljónir króna. Þetta er um 1,1
milljarðs lakari afkoma en árið
áður. Þorsteinn Már Baldvinsson,
forstjóri Samherja, segir helstu
skýringar lakari afkomu vera styrk-
ingu krónunnar og minni loðnuafla
en gert var ráð fyrir.
Framlegð félagsins lækkar úr
28% í 19% milli tímabila. Rekstrar-
afkoma fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði fór úr tveimur milljörð-
um í 1,2. Stjórnendur telja ástæðu
til bjartsýni á síðari árshelmingi.
Krónan hefur veikst og aflabrögð
góð í norsk-íslensku síldinni. ■
FRÁ SIGLUFIRÐI
Margir aðkomubátar sækja sjó
frá Siglufirði þessa dagana.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
skemmtileg birta
fyrir alla
93.000 eintök
frítt me› Fréttabla›inu á föstudögum
sjónvarpsdagskráin
vi›töl
greinar
ver›launagátur
pistlar
sta›reyndir og sta›leysur
frítt á föstudögum