Fréttablaðið - 27.08.2003, Síða 23
■ Fótbolti
23MIÐVIKUDAGUR 27. ágúst 2003
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Jón Arnar Magn-
ússon hætti keppni eftir þrjár
greinar tugþrautarinnar á heims-
meistaramótinu í París. Hann
keppti í 100 metra hlaupi, lang-
stökki og kúluvarpi í gærmorgun
en náði sér ekki á strik og var í
20. og neðsta sæti með 2.263 stig.
Jón Arnar hljóp 100 metrana á
11,11 sekúndum og varð í 4. sæti
sín riðils. Tíminn gaf honum 836
stig og var hann í 14. sæti eftir
hlaupið.
Jón Arnar stökk 6,15 metra í
öðru stökki sínu í langstökkinu
en gerði tvisvar ógilt. Hann var
því talsvert frá sínum besta ár-
angri en Jón Arnar hefur lengst
stokkið 7,85 metra á þessu ári.
Hann var í 20. sæti með 1.455 stig
eftir langstökkið en náði ekki að
bæta stöðu sína í keppninni með
kúluvarpinu. Fyrsta kast hans
var ógilt en hann kastaði 15,29 og
15,21 metra í seinni tveimur til-
raununum.
Eistlendingurinn Erki Nool og
Túnisbúinn Hamdi Dhouibi
hættu líka keppni eftir þrjár
greinar. Dhouibi var í 14. sæti en
Nool í 17. sæti. ■
FÓTBOLTI Forráðamenn þýska fé-
lagsins Borussia Dortmund hafa
varað leikmenn félagsins við því
að það að muni hafa „dramatískar
afleiðingar“ komist það ekki í
riðlakeppni Meistaradeildar Evr-
ópu. Borussia tapaði fyrir Belgíu-
meisturum Club Brugge fyrir
tveimur vikum en seinni leikur fé-
laganna fer fram í Dortmund í
kvöld.
Síðustu leikir undankeppni
Meistaradeildar Evrópu fara fram
í kvöld. Eftir þá verður ljóst hvaða
félög taka þátt í riðlakeppninni en
dregið verður í hana síðdegis á
morgun.
Celtic ætti að vera öruggt með
sæti í riðlakeppninni eftir 4-0 sigur
á MTK í Búdapest fyrir tveimur
vikum og Newcastle hefur ágæta
stöðu eftir 1-0 útisigur á Partizan
frá Belgrad í fyrri leiknum.
Rangers leikur gegn FC Köben-
havn á Parken í Kaupmannahöfn
en Danirnir náðu jafntefli í
Glasgow í fyrri leiknum. FC
Köbenhavn hefur tvisvar áður
komist í 3. umferð undankeppninn-
ar en tapaði fyrir Lazio haustið
2001 og AC Milan árið 1993.
Benfica hefur aðeins sigrað í
þremur viðureignum af tólf gegn
ítölskum félögum í Evrópukeppni.
Í kvöld þarf félagið að vinna upp
tveggja marka forskot Lazio frá
fyrri leiknum í Róm fyrir tveimur
vikum. ■
VAN BRONCKHORST TIL
BARCELONA Arsenal hefur lánað
miðjumanninn Giovanni van
Bronckhorst til Barcelona út
þessa leiktíð. Arsenal keypti
hann frá Rangers fyrir tveimur
árum fyrir 8,5 milljónir punda en
van Bronckhorst missti af stór-
um hluta síðasta tímabils vegna
meiðsla í hné. Van Bronckhorst
lék 29 landsleiki fyrir Holland
þegar Frank Rijkaard, núverandi
þjálfari Barcelona, var landsliðs-
þjálfari.
OLEMBE TIL LEEDS Franska fé-
lagið Marseille hefur lánað
miðjumanninn Salomon Olembe
til Leeds. Olembe leikur með
Leeds út þessa leiktíð en spánska
félagið Español hafði einnig
áhuga á að fá hann í sínar raðir.
Olembe hefur leikið 56 landsleiki
fyrir Kamerún.
MCPHAIL TIL FOREST Leeds hefur
lánað miðjumanninn Stephen
McPhail til Nottingham Forest
næstu þrjá mánuðina.
BORUSSIA DORTMUND
Borussia Dortmund leikur í kvöld gegn
Club Brugge á heimavelli í undankeppni
Meistaradeildar Evrópu.
Meistaradeild Evrópu:
Dramatískar afleiðingar
JÓN ARNAR MAGNÚSSON
Jón Arnar Magnússon (á 7. braut) varð í fjórða sæti í sínum riðli í 100 metra hlaupi á
11,11 sekúndum.
Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum:
Jón Arnar hætti
eftir þrjár greinar