Fréttablaðið - 27.08.2003, Side 24
24 27. ágúst 2003 MIÐVIKUDAGUR
SÍÐASTA STÖKKIÐ
Síðasta stökkið á löngum og farsælum ferli
breska þrístökkvarans Jonathan Edwards.
Hann tilkynnti fyrir heimsmeistaramótið í
París að hann myndi draga sig í hlé eftir
mótið. Þátttaka hans á mótinu varð enda-
slepp því hann hætti vegna meiðsla eftir
tvö stökk í úrslitakeppninni.
Frjálsar íþróttir
FÓTBOLTI Þrenna Arnars Gunn-
laugssonar gegn Fylki í 15. um-
ferð Landsbankadeildarinnar er
endurtekið efni, segir fótboltavef-
urinn Skagamenn.com. Arnar
skoraði líka þrennu í 15. umferð
mótsins árið 1995, þegar ÍA vann
ÍBV 7-1, og aftur þremur árum
síðar þegar ÍA vann Grindvík 4-0.
Arnar hafði ekki áttað sig á
þessu þegar Fréttablaðið bar
þetta undir hann og hann hefur
hingað til ekki litið á töluna 15
sem happatölu.
KR-liðið lék vel gegn Fylki en
Arnar segir að undirbúningurinn
fyrir leikinn hafi verið með hefð-
bundnu sniði. Allir leikmenn KR
voru leikfærir í fyrsta sinn í lang-
an tíma en Arnar leggur áherslu á
að þeir sem komu í staðinn hafi
staðið sig frábærlega og komið
liðinu á toppinn.
KR-ingar geta ekki valið úr full-
skipuðum leikmannahópi í leikn-
um gegn Grindavík á mánudag
vegna leikbanna. „Það er mjög
slæmt að missa Kristján Sigurðs-
son og Veigar Pál Gunnarsson,“
sagði Arnar, „en það kemur maður
í manns stað því við höfum breiðan
hóp. Þetta verður mjög erfiður
leikur gegn Grindavík en Fylkir á
erfiðan leik á móti Skaganum. Við
gætum klárað þetta á mánudag
með stuðningi Skagamanna.“
Fylkir og KR voru langefst í
Landsbankadeild karla fyrir stuttu
en nú hefur KR fjögurra stiga for-
ystu og ÍA og FH sækja að Fylki.
„FH-ingar hafa verið með eitt
stöðugasta liðið í sumar,“ segir Arn-
ar Gunnlaugsson, „og hafa komið
einna mest á óvart. Við eigum að
spila við þá í undanúrslitum bikars-
ins og aftur í lok deildarinnar.“ ■
FÓTBOLTI Aðeins þrjú þúsund miðar
voru seldir almenningi hér á landi
á landsleik Íslands og Þýskalands
í undankeppni Evrópumótsins í
knattspyrnu sem fram fer þann 6.
september. Miðar seldust upp
daginn eftir leikinn við Færey-
inga. Þýska knatt-
spyrnusambandið
fékk þúsund miða
til sölu. Afgangur-
inn, um fjögur
þúsund miðar, eru
boðs- og frímiðar
sem og miðar sem
samstarfsaðilar
KSÍ fengu.
„Það eru
ákveðnir frímiða-
hafar sem eiga
rétt á að fá miða á
leikinn,“ segir
Geir Þorsteins-
son, framkvæmdastjóri KSÍ, en
frímiðahafar eru meðal annars
dómarar, eftirlitsmenn, forystu-
menn í knattspyrnusambandinu
og fleiri. „Því miður munum við
ekki geta uppfyllt allar þær kröf-
ur,“ segir Geir.
Fjölmiðlar fá á bilinu 2-300
miða. Boðsgestir íslenska og þýska
knattspyrnusambandsins hlaupa
einnig á nokkur hundruð sem og
samstarfsaðilar KSÍ.
„Samstarfsaðilar selja miðana
að miklu leyti til almennings með
leikjum og viðskiptatengslum,“
segir Geir. „Þetta er erfitt en við
höfum fengið fyrirtæki til að taka
þátt í þessu með okkur og þetta
verður að virka í báðar áttir. Við
getum ekki bara dansað þegar okk-
ur hentar.“
Framkvæmdastjórinn er sam-
mála þeirri gagnrýni sem hefur
heyrst að þúsund miðar til Þjóð-
verja séu ívið mikið. „Við þurfum á
fleiri sætum að halda, það er mál-
ið.“
Laugardalsvöllur tekur um sjö
þúsund manns í sæti. KSÍ hefur átt
í viðræðum við Reykjavíkurborg
um stækkun vallarins sem eru þó
stutt á veg komnar. Ef af fram-
kvæmdum verður yrði gamla stúk-
an líklega stækkuð í báðar áttir.
„Við teljum að 12-14 þúsund
manna völlur væri eðlileg stærð
fyrir okkur,“ segir Geir Þorsteins-
son, framkvæmdastjóri KSÍ.
kristjan@frettabladid.is
3. deild karla:
Leiknir vann
upp forskotið
FÓTBOLTI Leiknir, Víkingur, Höttur
og Númi komust í undanúrslit 3.
deildar karla. Leiknir vann upp
þriggja marka forskot Fjarða-
byggðar frá leik liðanna á laugar-
dag og sigraði 4-0 í Breiðholti í
gær. Víkingur vann Magna 3-2
samanlagt og Höttur vann Reyni
frá Sandgerði í tveimur marka-
leikjum, 5-2 í Sandgerði á laugar-
dag og 5-3 á Egilsstöðum í gær.
Númi vann Vask 8-4 samanlagt.
Víkingur leikur við Hött í und-
anúrslitum á laugardag og þriðju-
dag en Leiknir keppir við Núma. ■
7.50 Bein útsending í RÚV frá HM
í frjálsum í París. Tugþraut
heldur áfram. Keppt verður í
110 metra grindahlaupi og
kringlukasti. Einnig verður keppt
í 110 metra grindahlaupi, 200
metra hlaupi karla og 50 km
göngu.
15.25 Bein útsending í RÚV frá
HM í frjálsum í París. Keppt
verður í tugþrautarkeppninni í
spjótkasti. Einnig verður keppt til
úrslita í kúluvarpi, í 100 metra
grindahlaupi og 1500 metra
hlaupi kvenna, 400 metra hlaupi
karla, undanúrslitum í 200 metra
hlaupi kvenna og 400 metra
grindahlaupi karla og milliriðlum
í 200 metra hlaupi karla.
17.15 Olíssport á Sýn. Fjallað er um
helstu íþróttaviðburði heima og
erlendis.
18.15 Western World Soccer
Show (Heimsfótbolti West
World) á Sýn.
18.45 Bein útsending á Sýn frá
leik Manchester United og
Wolverhampton Wanderers.
22.30 Olíssport á Sýn. Fjallað er
um helstu íþróttaviðburði heima
og erlendis.
23.05 Samantekt frá keppni dags-
ins á HM í frjálsum íþróttum í
París.
hvað?hvar?hvenær?
24 25 26 27 28 29 30
ÁGÚST
Miðvikudagur
RÓBERT SIGHVATSSON
Wetzlar, félag Róberts Sighvatssonar og
Gunnars Berg Viktorssonar, leikur gegn
Kronau í 1. umferð Búndeslígunnar í
handbolta.
Þýski handboltinn:
Íslendinga-
slagur í
1. umferð
HANDBOLTI Þýska deildakeppnin í
handbolta hefst á föstudag þegar
Wetzlar, félag Róberts Sighvats-
sonar og Gunnars Berg Viktors-
sonar, fær Kronau, félag Guð-
mundar Hrafnkelssonar, í heim-
sókn.
Á laugardag verða fjórir leikir,
meðal annars leika Wilhelms-
haven, félag Gylfa Gylfasonar, og
Tusem Essen en Þýskalandsmeist-
arar Lemgo fá Stralsund í heim-
sókn. Magdeburg leikur ekki fyrr
en miðvikudaginn 10. september
þegar félagið heimsækir HSV í
Hamborg. ■
GEIR ÞOR-
STEINSSON
Framkvæmda-
stjóri KSÍ segir
málið erfitt og
sambandið hafi
þurft að skera við
nögl.
Tæplega helmingur
miða var til sölu
Aðeins þrjú þúsund miðar á leik Íslands og Þýskalands voru seldir til almennings í beinni sölu.
Afgangurinn er boðs- eða frímiðar. Þurfum á fleiri sætum að halda, segir framkvæmdastjóri KSÍ.
LAUGARDALSVÖLLUR
Er orðinn of lítill að mati forsvarsmanna KSÍ. Samkvæmt reglum Alþjóða knattspyrnusam-
bandsins má ekki setja upp sæti við suðurenda stúkunnar.
Landsbankadeild karla:
Endurtekið efni
ARNAR GUNNLAUGSSON
Arnar hefur þrisvar skorað þrennu í 15. umferð Íslandsmótsins.
1. deild kvenna:
Fjölnir og
Sindri í úr-
slitum
FÓTBOLTI Fjölnir og Sindri tryggðu
sér í gær sæti í úrslitum 1. deild-
ar kvenna. Fjölnir vann Tindastól
1-0 í Grafarvogi en Sindri vann
RKV 3-1 á Hornafirði. Fyrri leikj-
um félaganna lauk með 1-1 jafn-
tefli.
Sindri hefur aldrei leikið í
efstu deild en Fjölnir lék síðast
meðal þeirra bestu árið 1999. Úr-
slitaleikur deildarinnar verður
háður á laugardag. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T