Fréttablaðið - 27.08.2003, Qupperneq 30
27. ágúst 2003 MIÐVIKUDAGUR
Þau eiga yndislegt líf, koma úrsvipuðum jarðvegi og ganga á
guðs vegum,“ segir Gunnar Þor-
steinsson í Krossinum sem sam-
einað hefur tvær barnastjörnur í
heilagt hjónaband með blessun
sinni. Barnastjörnurnar eru þau
Einar Ólafsson og Hanna Valdís
Guðmundsdóttir, sem nú eru bæði
um fertugt.
Einar Ólafs hlaut landsfrægð
þegar hann söng lagið Ég vil
ganga minn veg og var stundum
nefndur Einar áttavillti eftir það.
Einar átti ekki aðra smelli en
syngur nú í sönghóp á vegum
Krossins, þar sem hann hefur ver-
ið innanbúðar um langt skeið eins
og Hanna Valdís eiginkona hans.
Hanna Valdís átti hins vegar fjöl-
margar metsöluplötur en einna
þekktust er hún fyrir lag sitt um
Línu langsokk sem small inn í
hugarheim íslenskrar alþýðu og
lifir enn í minningu margra.
Einar Ólafsson rekur nú eigið
fyrirtæki sem sérhæfir sig í við-
gerð á púströrum en Hanna Valdís
er píanókennari:
„Þetta var yndisleg stund,“
segir Gunnar í Krossinum þegar
hann rifjar upp hjónavígsluna.
„Það er hinn almenni vilji guðs
fyrir alla menn að þeir séu í
heilögu hjónabandi.“ ■
Krossinn
GUNNAR ÞORSTEINSSON
■ í Krossinum hefur sameinað tvær fyrr-
verandi barnastjörnur í söfnuði sínum í
heilagt hjónaband. Einar Ólafsson og
Hanna Valdís eru orðin hjón.
Imbakassinn
Barnastjörnur giftast
Mánudagskvöldið var alvegótrúlegt hjá okkur,“ segir Jó-
hann Vignir Vilbergsson, gítarleik-
ari og söngvari í hljómsveitinni Nil-
fisk.
Jóhann var niðri í æfingahús-
næði hljómsveitar sinnar á Stokks-
eyri þegar meðlimi Foo Fighters
bar að dyrum. „Við vorum tveir
meðlimir úr hljómsveitinni að spila
þegar við litum út um gluggann og
sáum alla hersinguna stefna til okk-
ar.“ Meðlimir Foo Fighters hafa
ferðast um landið undanfarna daga
og runnu á hljóð Nilfisk eftir að
hafa snætt á Fjöruborðinu á Stokks-
eyri. „Þeim fannst alveg frábært að
það væri hljómsveit í bænum þan-
nig að þeir ákváðu að kíkja á okkur.
Dave Grohl settist sjálfur við
trommusettið og bassaleikarinn tók
í bassann. Ég var síðan sjálfur það
heppinn að leika með þeim á gítar
og syngja,“ segir Jóhann og bætir
því við að þeir hafi spilað saman í
um fimm mínútur.
Eftir að hafa gefið þeim
demódisk ákvað Jóhann að láta
vaða og spyrja hvort ekki væri
möguleiki á að koma fram með
þeim í Laugardalshöll. „Það kostar
auðvitað ekkert að spyrja og þeir
tóku strax vel í hugmyndina.“ Nið-
urstaðan varð sú að Nilfisk frá
Stokkseyri var síðasta upphitunar-
hljómsveitin í Laugardalshöll.
Meðlimir hljómsveitarinnar auk
Jóhanns eru þeir Sigurjón Dan Vil-
hjálmsson á bassa, Víðir Björnsson
gítarleikari og Sveinn Ásgeir Jóns-
son á trommur.
Jóhann segir þá félaga hafa ver-
ið að æfa frá 10. mars á þessu ári.
„Við erum orðnir alveg helvíti góð-
ir og ég vona að við sláum í gegn
eftir þessa tónleika og í raun og
veru búumst við ekki við neinu
öðru.“ ■
Tónleikar
NILFISK-DRENGIR
■ urðu á vegi Foo Fighters á Stokkseyri.
Hljómsveitin tók nokkur lög með banda-
rísku rokkurunum og í framhaldinu stigu
þeir á svið í fullri Laugardalshöll.
NILFISK
Hljómsveitin ber sama nafn og ryksugurnar en meðlimir hennar eru aðeins 15 og 16 ára.
Lárétt: 1skjöld,7kjólar, 8rót,9gá,
10ásar, 12anita,15afi,16úr, 18fa,20
sóttir.
Lóðrétt:1skrá,2kjósa,3jótana,4öl,
5lag,6drápa,11rif, 13tifa,14rús,
17ró,19ar.
Lárétt: 1 vopnabúnað, 7 kvenfatnaður,
8 neðsti hluti, 9 líta, 10 spil, 12 kven-
mannsnafn, 15 ættingi, 16 tímamælir,
18 sk.st., 20 náðir í.
Lóðrétt: 1 listi, 2 velja, 3 danina, 4 drykk-
ur, 5 tónsmíð, 6 kvæði, 11 síðubein,
13 tipli, 14 víma, 17 kyrrð, 19 rykkorn.
Lausn.
GUNNAR Í KROSSINUM
„Það er hinn almenni vilji guðs fyrir alla
menn að þeir séu í heilögu hjónabandi.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Bjö... bj... b... Björn
kom æðandi að mér...
Varð að skjóta!
So, so!
Þetta er satt hjá
henni! Hann heitir
Björn! Björn Björns-
son!
1
7
8
10 11
14 15
16 17
20
18 19
2 3 4 5
9
1312
6
Spiluðu með Foo Fighters