Fréttablaðið - 27.08.2003, Síða 31

Fréttablaðið - 27.08.2003, Síða 31
31MIÐVIKUDAGUR 27. ágúst 2003 ■ Leiðrétting Að gefnu tilefni skal tekið fram að ekki stendur til að gera móður Davíðs Oddssonar að sendiherra í París. ■ Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 1. 2. 3. Bombay. Kópavogi. US Open. Hrósið ...fá Griffill og Office1 fyrir að bjóða skólavörur fyrir grunn- skólanemendur á hlægilegu verði. ÁRNI SNÆVARR Horfist í augu við menn og vegur ekki úr launsátri. Árni Snæv- arr rekinn af Stöð 2 SJÓNVARP „Við höfum verið að fækka fólki hér á fréttastofunni og uppsögn Árna Snævarr er hluti af þeim skipulagsbreytingum sem við erum að gera,“ segir Karl Garðarson, fréttastjóri Stöðvar 2. Árna var sagt upp í gær eftir að hafa starfað á fréttastofu stöðvar- innar í rúm sjö ár og var reyndar kjörinn fréttamaður ársins á Edduhátíðinni í fyrra. „Hér er margt hæfileikafólk en við verð- um að velja,“ segir Karl og neitar því aðspurður að brottrekstur Árna standi í tengslum við átök sem verið hafa á milli hans og fréttamanna Stöðvar 2 um meinta ritskoðun vegna fréttar um lax- veiði fjármálaráðherra í boði Kaupþings. „Þegar mér var afhent upp- sagnarbréfið var mér sagt að skoðanir mínar og stjórnar fyrir- tækisins færu ekki lengur saman. Í bréfinu stendur að ástæða upp- sagnarinnar sé skipulagsbreyt- ingar þannig að það er ekki verið að reka mig sem uppljóstrara þó forstjóri fyrirtækisins hafi lýst því yfir að uppljóstrarann yrði að finna og reka,“ segir Árni. „Allir sem þekkja mig vita að það er ekki minn stíll að horfast ekki í augu við menn sem ég á samskipti við eða vega úr launsátri. Það var ágreiningur um stefnu og þetta er niðurstaðan.“ Árni Snævarr hætti umsvifa- laust störfum á fréttastofu Stöðv- ar 2 eftir að honum hafði verið af- hent uppsagnarbréfið í gær. ■ Meiriháttar vetrarúlpur Áður kr. 12.900 Nú kr. 8.990 Síðar jakkapeysur Áður kr. 9.900 Nú kr. 5.990 Peysur rúllukraga V-hálsmen hnepptar Áður kr. 5.990 Nú kr. 3.990 Gallabuxur - ný snið 2 litir Áður kr. 8.990 Nú kr. 5.990 Joggingpeysur + buxur Nú kr. 2.990 stk. O.fl. o.fl. frábær tilboð Komdu og vertu smart í vetur Haustsprengja Kringlunni - Smáralind Heilsa o.fl á þriðjudögum

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.