Fréttablaðið - 17.09.2003, Blaðsíða 6
6 17. september 2003 FIMMTUDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 79,38 0,60%
Sterlingspund 126,6 0,00%
Dönsk króna 11,99 0,11%
Evra 89,05 0,11%
Gengisvístala krónu 126,72 0,27%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 491
Velta 14.249 milljónir
ICEX-15 1.848 0,95%
Mestu viðskiptin
Íslandsbanki hf. 436.614.349
Pharmaco hf. 139.839.128
Kaupþing Búnaðarb. hf. 132.598.451
Mesta hækkun
Marel hf. 6,67%
Líf hf. 6,67%
Nýherji hf. 3,41%
Mesta lækkun
Austurbakki hf. -8,43%
Eskja hf. -3,80%
Sölumiðstöð Hraðfrystih. hf. -2,80%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ* 9.491,2 0,5%
Nasdaq* 1.867,3 1,2%
FTSE 4.299,0 0,9%
DAX 3.564,1 1,4%
NK50 1.418,4 0,1%
S&P* 1.020,8 0,6%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Hvaða risafyrirtæki hefur fengið aðnota lag Barða Jóhannssonar í ilm-
vatnsauglýsingu?
2Hvað heitir formaður smábátafélags-ins Eldingar, sem segist vantreysta
sjávarútvegsráðherra í línuívilnunarmál-
inu?
3Hvaða handboltaliðum hefur veriðspáð Íslandsmeistaratitlinum í karla-
og kvennaflokki?
Svörin eru á bls. 30
Japanskur karlmaður tók skrifstofumenn í gíslingu:
Þrír fórust þegar sprenging varð í byggingunni
TÓKÍÓ, AP Þrír menn fórust og 23
slösuðust þegar sprenging varð í
skrifstofubyggingu í borginni
Nagoya í Japan. Karlmaður á sex-
tugsaldri hafði haldið átta manns í
gíslingu í fyrirtæki á fjórðu hæð
byggingarinnar.
Maðurinn, sem hafði unnið hjá
fyrirtækinu, braust inn á skrif-
stofu þess vopnaður hnífi, boga og
örvum. Hann tók forstjórann í
gíslingu ásamt sjö starfsmönnum
og hellti eldfimum vökva á gólfið.
Japanskir fjölmiðlar hafa greint
frá því að hann hafi krafist þess
að fyrirtækið greiddi honum van-
goldin laun.
Fjölmennt lið lögreglu- og
slökkviliðsmanna kom á staðinn
og umkringdi húsið. Eftir nokk-
urra klukkustunda umsátur var
sjö gíslum sleppt en skömmu síð-
ar braust út eldur á hæðinni. Öfl-
ug sprenging varð í byggingunni í
kjölfarið og hrundu glerbrot yfir
mannfjöldann sem stóð fyrir neð-
an. Forstjóri fyrirtækisins fórst í
sprengingunni ásamt árás-
armanninum og einum lögreglu-
manni. Á þriðja tug slökkviliðs-
manna, lögreglumanna og fjöl-
miðlafólks slösuðust. ■
Vonir Bílddælinga eru
bundnar við Björgun
Björgun hf. vill stofnsetja kalkþörungaverksmiðju á Bíldudal
í samstarfi við írskt fyrirtæki.
SVEITARSTJÓRNARMÁL Björgun hf. vin-
uur nú að stofnun kalkþörunga-
verksmiðju á Bíldudal í samstarfi
við írska fyrirtækið Celtic Sea
Minerals. Verði verksmiðjan að
veruleika mun hún gefa um 15 störf
á staðnum auk þess að hliðaráhrif
verða. Svartnætti
er nú í atvinnumál-
um Bílddælinga
enda liggur starf-
semi að mestu niðri
í þeim tveimur fyr-
irtækjum sem verið
hafa burðarásar at-
vinnulífsins. Í vor
var öllu starfsfólki Rækjuvers sagt
upp störfum og hitt stóra fyrirtæk-
ið, Þórður Jónsson ehf., er í
greiðslustöðvun þar til í haust. Þyk-
ir horfa þunglega með þá samninga
og er allt eins búist við að rekstur-
inn fari í þrot.
Bílddælingar horfa vonaraugum
til þess að kalkþörungaverksmiðj-
an rísi á staðnum og í raun má segja
að þarna sé helsta vonarglætan í at-
vinnumálum þar. Að sögn Sigurðar
Helgasonar, framkvæmdastjóra
Björgunar, er fyrirtækjunum ekk-
ert til fyrirstöðu að hefja vinnslu á
kalkþörungum en írska fyrirtækið
er að kanna markaðsaðstæður.
Hann segir að Celtic Sea sé þegar í
vinnslu á kalkþörungum og þekki
því vel til á því sviði. Sigurður seg-
ir umhverfismat hafa verið já-
kvætt, aðstæður í Arnarfirði góðar
og þar sé að finna kalkþörunga í
miklu magni. Björgun á skip sem
henta til að dæla kalkþörungunum
upp.
„Við munum þurfa að kaupa vél-
ar til að þvo kalkþörungana, þurrka
þá og sekkja. Við áætlum að vinna
50 til 60 þúsund tonn á ári. Þetta
yrði fjárfesting upp á 150 til 200
milljónir króna,“ segir Sigurður.
Hann leggur áherslu á að ekkert
sé í hendi um að verksmiðjan verði
stofnsett strax. Allt eins kunni svo
að fara að því verði frestað.
„Þetta ræðst af marksaðsrann-
sóknum Íranna. Það stefnir í að
kalkþörungaverksmiðjan rísi en
þetta er spurning um tíma,“ segir
Sigurður.
rt@frettabladid.is
Harmleikur
á Markúsartorgi:
Stökk niður
úr turni
FENEYJAR, AP Argentínskur karl-
maður lét lífið eftir að hann hafði
látið sig falla úr klukkuturninum
á Markúsartorg-
inu í Feneyjum
þegar klukkan
sló tólf á hádegi í
fyrradag.
Fjöldi ferða-
manna varð vitni
að því þegar
Fabian Alejandro
Hoiman, sem
starfaði sem
götulistamaður í
borginni, klifraði
yfir handriðið
efst í turninum
og gerði sig lík-
legan til að
stökkva niður.
Lögreglumenn létu rýma svæðið
fyrir neðan og reyndu að telja
manninn af því að fyrirfara sér.
Slökkviliðið var væntanlegt með
öryggisnet en maðurinn lét sig
falla áður en það kom á staðinn. ■
SÓTUGIR SKRIFSTOFUMENN
Slökkviliðsmenn bjarga tveimur starfs-
mönnum út úr brennandi byggingunni.
MARKÚSARTORG
Fjöldi ferðamanna
varð vitni að því
þegar argentínskur
götulistamaður lét
sig falla til jarðar úr
90 metra háum
klukkuturni.
Eldur í fangelsi:
Tugir fanga
brunni inni
SÁDI-ARABÍA, AP Eldur braust út í
fangelsi í Riyadh, höfuðborg Sádi-
Arabíu, með þeim afleiðingum að
67 vistmenn létu lífið. Tuttugu
fangar og þrír fangaverðir voru
fluttir á sjúkrahús vegna reyk-
eitrunar, að sögn yfirvalda.
Slökkviliðsmenn voru um það
bil þrjár klukkustundir að ráða
niðurlögum eldsins í al-Haer
fangelsinu. Nayef prins, innanrík-
isráðherra Sádi-Arabíu, hefur
þegar fyrirskipað rannsókn á or-
sökum brunans en grunur leikur á
því að eldurinn hafi kviknað út frá
skammhlaupi. ■
■
„Það stefnir í
að kalkþör-
ungaverksmiðj-
an rísi en þetta
er spurning um
tíma.“
SIGURÐUR HELGASON
Allt er klárt frá hendi Björgunar til að hefja kalkþörungavinnslu en markaðsrannsóknir
standa yfir.
■ Viðskipti
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Ólafur Ragnar:
Vestur um haf
HEIMSÓKN Ólafur Ragnar Gríms-
son, forseti Íslands, heldur opnun-
arræðu á 25 ára afmælisþingi al-
þjóðlegu þingmannasamtakanna
Parliamentarians for Global Act-
ion, en hann var formaður sam-
takanna um árabil. Forsetinn hélt
til Washington í gær þar sem þing
samtakanna fer fram.
Meðan á dvöl forsetans stend-
ur fundar hann með þingmönnum
í báðum deildum Bandaríkjaþings
og öðrum áhrifamönnum í banda-
rískum stjórnmálum. ■
Fjármálaeftirlitið vekur athygliá því að eftirtaldir aðilar hafa
ekki starfsleyfi sem fjármálafyr-
irtæki á Íslandi: De Verre Lloyd &
Co. Ltd. Drexel Asset Mana-
gement, Mutual Capital, Solomon
Christie. Fjármálaeftirlitið leggur
áherslu á mikilvægi þess að þeir
sem er boðin þjónusta eða fjár-
málaráðgjöf erlendra fyrirtækja
leiti upplýsinga um heimild þeirra
til fjármálastarfsemi á Íslandi.
Árás með sveðju:
Réðst á sam-
starfsmenn
ÞÝSKALAND, AP Ung kona lést og
þrjár særðust alvarlega þegar
karlmaður vopnaður samúræja-
sverði gekk berserksgang á skrif-
stofu fyrirtækis í bænum
Pforzheim í Þýskalandi. Maður-
inn, sem starfaði hjá fyrirtækinu,
reyndi að svipta sig lífi en var yf-
irbugaður af lögreglu og fluttur
þungt haldinn á sjúkrahús.
Að sögn lögreglu hafði maður-
inn verið sviptur ökuréttindum
vegna ölvunaraksturs daginn fyr-
ir árásina. Ekki liggur þó fyrir
hvað olli hegðun hans. Fyrirtæk-
inu hefur verið lokað um stundar-
sakir og starfsmönnum þess boðin
áfallahjálp. ■
Ágúst Ólafur Ágústsson, þing-maður Samfylkingar, var
rangnefndur Ólafur Ágúst Ólafs-
son í blaðinu í gær.
■ Leiðrétting
SÖNNUNAR-
GÖGN
Lögreglumaður
heldur á sönnunar-
gögnum sem fund-
ust á vettvangi árás-
arinnar.
ÓLAFUR
RAGNAR
GRÍMSSON
Fór til Banda-
ríkjanna í gær.