Fréttablaðið - 17.09.2003, Page 31

Fréttablaðið - 17.09.2003, Page 31
Ínógu er að snúast hjá EinariKarli Haraldssyni, varaþing- manni Samfylking- arinnar og fjöl- miðlafulltrúa þjóð- kirkjunnar. Hann er á leið til Mósam- bík og Malaví til að athuga með hjálp- arstarf á stöðunum og svo þykir nokkuð ljóst að hann setjist á þing strax í þingbyrjun í októ- ber. Mörður Árna- son alþingismaður mun vera á leið á Allsherjarþing Sameinuðu þjóð- anna og hleypur Einar Karl í skarðið fyrir hann á Alþingi á meðan. ■ Í Borgarnes er klukkustundarakstur. Það er mátulegt,“ segir Kjartan Ragnarsson leikstjóri, sem lagt hefur hugmyndir sínar um landnámssafn í Brákarey í Borgarnesi fyrir bæjaryfirvöld í Borgarbyggð. Hefur hugmynd hans verið vel tekið og verður vet- urinn tekinn í hugmyndavinnu og síðan taka framkvæmdir vonandi við. „Borgarnes er kjörinn staður fyrir svona safn. Í Brákarey er nóg af húsum sem nýta mætti í þetta; gamalt bifreiðaverkstæði, sláturhús og fleira,“ segir Kjart- an, sem sér fyrir sér sögu land- náms á Íslandi með sérstaka áherslu á Skallagrím á Borg og Egil son hans. Er Kjartan ekki síst með Vesturfarasafnið á Hofsósi í huga þegar kemur að landnáms- safninu í Borgarnesi; þar er dramatísk uppsetning á broti úr lífi þjóðarinnar: „Dramatíkin er ekki minni í landnáminu,“ segir Kjartan, sem lengi hefur unnið sem leiðsögumaður fyrir erlenda ferðamenn og þá alltaf þurft að hefja hverja ferð á sömu ræðunni um tilurð þjóðarinnar. Það er þessi stutta ræða sem Kjartan vill nú sjóngera í nýju landnámssafni í Borgarnesi. Segja sögu sem spannar í raun aðeins 50 ár en er undirstaða þess lífs sem lifað er í landinu í dag: „Heimamenn hafa tekið vel í þessa hugmynd mína og núna ætl- um við að nota veturinn í hug- myndavinnu,“ segir Kjartan, sem er sannfærður um að landnema- safnið eigi eftir að selja sig sjálft. Nú sé bara að framkvæma. ■ MIÐVIKUDAGUR 17. september 2003 Landnám KJARTAN RAGNARSSON ■ Leikstjórinn vill reisa landnámssafn í Borgarnesi og myndgera söguna með myndarlegum hætti í samvinnu við bæj- aryfirvöld í Borgarbyggð. Leikstjóri vill Landnemasafn Birgitta Haukdal hefur slitiðsambandi sínu við trommu- leikara Írafárs en hljómsveitin mun þó starfa áfram: „Þetta er allt í góðum gír og engin hætta á að hljómsveitin hætti,“ segir Sigurður Samúelsson, bassaleikari Írafárs og starfsmað- ur á umboðsskrifstofunni Concert, sem er með Írafár á sinni könnu. „Það er einstaklingsbundið hvern- ig fólk tekur á svona hlutum en þau hafa gert þetta vel.“ Birgitta Haukdal, söngkona Írafárs, og Jóhann Backmann, trommuleikari sveitarinnar, hafa verið saman svo árum skiptir. Hafa þau verið sem eitt í hljóm- sveitinni og staðið fyrir sam- heldni jafnt á sviði sem utan þess. Skilnaður þeirra kemur því sem reiðarslag fyrir fjölmarga aðdá- endur sveitarinnar. Ástæðulaust er þó að örvænta; Írafár heldur áfram. ■ KJARTAN RAGNARSSON Horfir til Borgarness með stórbrotna hug- mynd í farteskinu. ÍRAFÁR Söngvari og trommuleikari slíta sambandi. Skilnaður skekur Írafár Tónlist ÍRAFÁR ■ Ástæðulaust er að örvænta því ein vinsælasta hljómsveit Íslands heldur áfram þrátt fyrir skilnað Birgittu og Jóhanns Backmann trommuleikara. FR ÉT AB LA Ð IÐ /R Ó B ER T ■ Fyrsti kossinn „Það var þegar ég hitti fyrstu æskuástina á leikskólanum tíu ára gamall. Ég gleymi þeim kossi aldrei,“ segir Jói Fel bakarameistari um fyrsta kossinn sinn. Fréttiraf fólki FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A LD A LÓ A

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.