Fréttablaðið - 17.09.2003, Blaðsíða 8
8 17. september 2003 MIÐVIKUDAGUR
Síld og rækja:
Kvóti fellur niður ónýttur
SJÁVARÚTVEGUR Stór hluti af síldar-
og úthafsrækjukvóta síðasta árs
fellur niður ónotaður þar sem veiði
þessara tegunda var umtalsvert
minni en úthlutaður kvóti. Hluta
óveidds kvóta má flytja milli fisk-
veiðiára en ónýttar heimildir voru
talsvert meiri en flytja má milli
ára. Munur á öðrum tegundum var
innan þessara marka.
Veiði á sumargotssíld var 34.000
tonnum minni en úthlutaður kvóti.
Af úthafsrækju veiddust ekki nema
tveir þriðju af úthlutuðum kvóta,
24.000 tonn, en 12.000 tonn sátu eft-
ir. Veitt var umfram kvóta í einni
tegund, það er í karfa, þar sem
kvóti nam 64.000 tonnum en veiði
fór 460 tonnum fram úr því. ■
Fjárnám óhaggað
í Handsalsmálinu
Kröfu Guðmundar Franklín Jónssonar kaupsýslumanns um ógildingu á 143 milljóna króna fjár-
námi var hafnað í héraðsdómi. Lífeyrissjóður Austurlands lánaði Guðmundi 88 milljónir til að
kaupa dauðvona verðbréfafyrirtækið Handsal með veð í félaginu sjálfu og gjaldfelldi skuldina er
Handsal komst í þrot.
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur hafnaði kröfu Guðmundar
Franklíns Jónssonar kaupsýslu-
manns um ógildingu fjárnáms
sem sýslumað-
urinn í Reykja-
víkur gerði hjá
honum að beiðni
L í feyr iss jóðs
Austurlands.
Guðmundur
Franklín fékk
88 milljónir
króna að láni
hjá Lífeyris-
sjóði Austurlands (LA) til að
eignast verðbréfafyrirtækið
Handsal. Hlutabréfin í Handsali
voru sett að veði fyrir níu skulda-
bréfum sem gefin voru út fyrir
lánið. Fyrsta greiðsla af bréfun-
um átti að vera á árinu 2005. LA
taldi hins vegar að veðið væri
ónýtt eftir að Handsal, sem þá
hét Burnham International, var
svipt starfsleyfi og tekið til
gjaldþrotaskipta. Þess vegna
væri skuldin gjaldfelld.
Í mars í ár krafðist LA og fékk
fjárnám hjá Guðmundi Franklín
til tryggingar 143 milljónum
króna, auk vaxta og kostnaðar.
Fjárnámið var talið nægja til
tryggingar 22 milljónum króna af
kröfunni.
Af hálfu Guðmundar Frank-
líns var því haldið fram fyrir hér-
aðsdómi að LA hafi verið óheim-
ilt að gjaldfella skuldina. Ekki
hafi verið hægt að segja að veðið
í Handsali hafi rýrnað því LA
hafi frá byrjun verið ljóst að það
væri einskis virði. Handsal hafi
ekki fullnægt skilyrðum laga um
verðbréfaskipti þegar skulda-
bréfin voru gefin út 22. mars
1999. Það megi lesa í fundargerð
stjórnar Handsals 2. mars 1999
og í bréfi Fjármálaeftirlitsins
tveimur dögum síðar:
„Staða félagsins hafi þá raun-
verulega ekki verið betri en þeg-
ar Burnham International á Ís-
landi hf. var svipt starfsleyfi og
tekið til skipta og því hæpið að
tala um að veðið hefði rýrnað til
muna. Ljóst sé að veðið var
einskis virði við útgáfu skulda-
bréfanna. Ekki sé því um það að
ræða að veðið hafi rýrnað er rétt-
lætt gæti gjaldfellingu af hálfu
varnaraðila (LA),“ hefur héraðs-
dómur eftir lögmanni Guðmund-
ar Franklíns.
„Þær miklu fjárskuldbinding-
ar, sem sóknaraðili (Guðmundur
Franklín) tók persónulega á sig
til að greiða fyrir hlutabréfin 22.
mars 1999 við útgáfu umræddra
skuldabréfa, stangast á við stað-
hæfingu hans, að ljóst hefði verið
að veð í hlutabréfunum væri ein-
skis virði frá upphafi,“ segir
Héraðsdómur Reykjavíkur á
hinn bóginn og hafnaði með því
kröfunni um að ógilda fjárnám
sýslumanns.
gar@frettabladid.is
Akraneskaupstaður:
Styrkir tón-
listarnema
SVEITARSTJÓRNARMÁL Bæjarráð
Akraness hefur samþykkt að
taka þátt í námsvistarkostnaði
tónlistarnema í framhaldsnámi
til áramóta þrátt fyrir að viður-
kenna ekki greiðsluskyldu sveit-
arfélagsins varðandi tónlistar-
nám á framhaldsskóla- og há-
skólastigi. Í ályktun sem sam-
þykkt var 11. september segir að
í ljósi þeirrar stöðu sem uppi er
og óvissu um nám á haustönn
sem nú sé að hefjast, samþykki
bæjarráðið að taka þátt. Þá
áskilji Akraneskaupstaður sér
rétt til að setja hámark á
greiðslu námsvistargjalds. ■
Laxeldisfyrirtæki:
Verð á eldis-
laxi hækkar
um 40%
SJÁVARÚTVEGUR Verð á eldislaxi hef-
ur hækkað um 40% á mjög stutt-
um tíma. Það hefur haft þau áhrif
að þrátt fyrir gríðarlegt tap og
miklar afskriftir helstu laxeldis-
fyrirtækja Evrópu á fyrri helm-
ingi þessa árs hækka hlutabréf
þessara félaga ört.
Þrjú stærstu félögin, Nutreco,
Pan Fish og Fjord Seafood, töpuðu
samtals um 430 milljónum evra, um
36 milljörðum íslenskra króna, á
fyrri helmingi ársins. Tapið hefur
þó ekki fælt frá alla fjárfesta því
hækkanir á verði á eldislaxi hafa
haft í för með sér öra hækkun á
hlutabréfum þessara félaga. Til
dæmis hefur gengið á bréfum nors-
ka fyrirtækisins Fjord Seafood tvö-
faldast á skömmum tíma. Samherji
hf. keypti 2,6% eignarhlut í Fjord
Seafood í janúar 2003. Greiningar-
deild Kaupþings Búnaðarbanka
áætlar að virði hlutarins hafi hækk-
að um rúmar 200 milljónir króna á
nokkrum vikum. ■
BERLÍN, AP Hubertus Bikker, 88
ára hollenskættaður Þjóðverji
og fyrrverandi foringi í SS-
sveitum Hitlers, hefur verið
ákærður af þýskum dómstólum
fyrir stríðsglæpi sem hann
framdi í síðari heimsstyrjöld-
inni. Bikker er meðal annars
ákærður fyrir morðið á Jan
Houtman, leiðtoga hollensku
andspyrnuhreyfingarinnar,
árið 1944. Samkvæmt ákæru-
skjali reyndi Houtman, þá 27
ára, að flýja úr vinnubúðum í
Hollandi og faldi sig í hlöðu.
Houtman særðist á flóttanum
og komst ekki lengra. Nasista-
foringinn Bikker elti hann uppi
og skaut hann með köldu blóði.
Hollenskir dómstólar sak-
felldu Bikker eftir síðari
heimsstyrjöldina fyrir stríðs-
glæpi, pyntingar og landráð og
dæmdu hann í lífstíðarfangelsi.
Bikker tókst hins vegar að flýja
til Þýskalands í desember árið
1952 og þar hefur hann búið
óáreittur þar til nú.
Bikker fékk þýskt ríkisfang í
stríðinu fyrir þjónustu við
Hitler og því mátti ekki fram-
selja hann. Hollensk yfirvöld
hafa aðstoðað þýska saksókn-
ara við málatilbúnað á hendur
Bikker. Réttarhöld hefjast yfir
honum á miðvikudag. ■
Hlí›asmára 15 Sími 535 2100
D
ub
lin
D
ub
lin
Ekki
missa
af
október
og nóvember
Ver›dæmi í nóvember:
32.020 kr.
40.420 kr.
Flugsæti
Flug og gisting
á mann. Innifalið er flug
og flugvallarskattar.
á mann. Innifalið er flug,
gisting í 3 nætur á Ormond Quay
og flugvallarskattar.
SÍLD LANDAÐ
Síldarkvótinn nam 130.000 tonnum. Innan við 100.000 tonn veiddust.
„Ljóst sé að
veðið var ein-
skis virði við
útgáfu
skuldabréf-
anna.
HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR
Héraðsdómur Reykjavíkur segir Guðmund Franklín Jónsson hafa tekið á sig miklar per-
sónulegar skuldbindingar þegar hann keypti Handsal. Það stangist á við þá staðhæfingu
hans að ljóst hefði verið að veð í hlutabréfunum í Handsali væri einskis virði frá upphafi.
ENGA MISKUNN
Tæplega áttræður mótmælandi bar skilti
fyrir utan dómshús í Norður-Þýskalandi. Á
skiltinu stendur: „Enga miskunn fyrir nas-
istann Bikker, morðingja Jan Houtman“.
Bikker myrti Houtman, forystumann hol-
lensku andspyrnuhreyfingarinnar, í þýsk-
um fangabúðum árið 1944.
Níræður nasisti dreginn fyrir þýska dómstóla:
Myrti leiðtoga hollensku
andspyrnunnar