Fréttablaðið - 17.09.2003, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 17.09.2003, Blaðsíða 16
Árleg jeppaferð Land Rovereigenda var farin síðastliðinn laugardag og var ferðinni heitið í Kerlingarfjöll. Um 180 til 200 manns tóku þátt í ferðinni og óku af stað á 65 til 70 jeppum og jepp- lingum. Arnar Einarsson fararstjóri segir að ferðin hafi heppnast mjög vel: „Fólk var mjög ánægt en veðrið hefði reyndar mátt vera aðeins betra. Það hafði samt lítil áhrif á þá sem mættu.“ Jeppalestin ók í heilu lagi í gegnum Mosfellsbæ og síðan um Þingvelli og Laugarvatn. Því næst var stoppað við Geysi og þar skiptist hópurinn upp. Stærri bílarnir fóru Hruna- mannaafrétt, sem er leið austan við Hvítá. Minni bílarnir fóru aftur á móti Haukadalsleið og inn á Kjalveg. Síðan hittust jeppalestirnar tvær í Kerlingar- fjöllum þar sem B&L bauð upp á ljúffengan grillmat. ■ 17. september 2003 MIÐVIKUDAGUR Margrét Eir Hjartardóttir, söng-og leikkona, hefur lengi ekið um á hvítri Toyota Corolla. Hug- mynd hennar um draumabílinn er hins vegar nokkuð fastmótuð: „Ef mig langaði virkilega í nýjan bíl og peningar væru ekki vandamál væri ég til í að fá mér gæðabíl eins og svartan Jagúar. Þetta eru vandaðir bílar og svo finnst mér nafnið „kúl“. Ég er ljón og er því svolítið kisuleg og myndi keyra um á stórri kisu.“ Margrét segist einnig vel geta hugsað sér að aka um á góðri bjöllu: „Ég rokka svolítið á milli þess að vera klassapía og jaðarlistamaður og finnst gaman að vera í báðum hlutverkum. Ég væri til í að hafa bjölluna í hamingjusömum lit, kannski rauða eða bláa. Síðan er mikið atriði að hafa góðar græjur í bílnum.“ Margrét segist lítið gefin fyrir jeppa: „Þeir taka bara svo mikið pláss. Það er þegar búið að keyra einu sinni á mig, það var jeppi sem stakk svo af þannig að mér ekkert rosalega hlýtt til þeirra þessa dag- ana. Mér finnst líka svolítið mikið af þeim.“ Margrét telur að bíladraumórar sínir gætu vel ræst í fjarlægri framtíð: „Ég held ég hafi aldrei sest upp í Jagúar en ég veit samt að þetta er ekkert það fjarlægur draumur þó hann sé það kannski í dag. Eftir svona 20 ár verður maður kannski kominn á svona bíl.“ ■ Ráðstefna Bindindisfélags ökumanna: Konur valda jafnmörg- um slysum og karlar Bindindisfélag ökumannafagnar 50 ára afmæli á þessu ári. Af því tilefni efndi félagið til norrænnar ráðstefnu þar sem flutt voru erindi um umferðarör- yggi, atferli manna í umferðinni og ölvunarakstur. Dr. Valdimar Briem sálfræð- ingur flutti þar fyrirlestur sem fjallaði um sálræna þætti í atferli ökumanna. „Þetta er rannsóknar- verkefni sem ég hef verið að vinna að með tveimur íslenskum sálfræðingum,“ segir Valdimar. „Í fyrri hluta fyrirlestursins tók ég saman slysaskýrslur síðustu 10 ára, hvenær dagsins slysin urðu og bar þær saman við hve margir væru úti að aka á þessum tímum. Í síðari hlutanum kannaði ég sálræna þætti í atferli ungra ökumanna. Þar kom í ljós að ung- ir ökumenn á aldrinum 17 til 24 ára mismeta oft aksturshæfni sína og lenda fyrir vikið í fleiri slysum en aðrir. Þar eru karlar í örlitlum meirihluta.“ Að sögn Valdimars lenda karl- ar og konur eldri en 24 ára hins vegar hlutfallslega jafn oft í um- ferðarslysum þó að umferðar- brot karla séu helmingi fleiri. Ástæðan er sú að þarna er tekið með í reikninginn að karlar eru tvisvar sinnum oftar í umferð- inni en konur. „Þá er það spurn- ingin um ástæðuna fyrir því,“ segir Valdimar. „Karlar virðast vilja upplifa meiri spennu og taka meiri áhættu en konurnar. Þeir nota bílinn til þess að fá út- rás. Þeir vilja oft sýna hvað þeir eru klárir.“ Valdimar og félagar rannsök- uðu tilurð smáóhappa og stærri óhappa í umferðinni í tengslum við persónuleika ökumanna. Til- tölulega lítil tengsl voru á milli smáóhappa og persónuleika. Mest voru þó tengslin hjá konun- um. Samkvæmt niðurstöðum úr 500 manna úrtaki Valdimars er helsta ástæðan sú að konum þyk- ir síður gaman að aka bíl. Fyrir vikið eru þær sennilega ekki með hugann við aksturinn og aka oft hægar og það getur hugsanlega valdið smáóhöppum. Hvað varðar stærri óhöpp er spennusókn og reiði ökumanna talin helsta ástæðan. Meiri til- hneiging er til að karlar lendi í slíkum slysum. Margir þeirra sem lenda í slíkum óhöppum hafa einnig lent í þeim áður og afleið- ingin gæti orðið sú að þeim finn- ist ekki eins gaman að aka bíl. Einnig eru konur sem hafa lent í alvarlegum óhöppum gagnrýnni á eigin aksturshæfni en karlar og getur það haft áhrif á einbeitingu þeirra í akstri. freyr@frettabladid.is Jeppaferð á Kerlingarfjöll: Heppnaðist mjög vel Draumabíllinn: Vill keyra á stórri kisu UMFERÐ Lítil tengsl eru milli smáóhappa og persónuleika fólks. M YN D /G O LL I BÍLALEST Land Rover-bílalestin var löng enda voru 65 til 70 jeppar í ferðinni. Saab 95 03/98 blár ssk. ek. 71 þ. km V. kr. 1.790.000 Tilboð kr. 1.590.000 stgr. Til sýnis og sölu á Bílasölu Reykjavíkur Bíldshöfða 10 • 110 Reykjavík • S. 587-8888 www.bilasalarvk.is Jeep Grand Cherokee LTD 06/95 ssk. svartur ek. 110 þ. km V. kr 1.350.000 Tilboð kr 1.200.000 stgr. Til sýnis og sölu á Bílasölu Reykjavíkur Bíldshöfða 10 • 110 Reykjavík • S. 587-8888 www.bilasalarvk.is DR. VALDI- MAR BRIEM Flutti áhuga- verðan fyrir- lestur um síð- ustu helgi um sálræna þætti í atferli öku- manna. SPORTLEGUR BENZ Þessi nýi Mercedes-Benz SLR McLaren sportbíll var til sýnis á bílasýningu í Frank- furt fyrir skömmu. Vakti hann mikla athygli fjölmiðla fyrir glæsilegt útlit. MARGRÉT VIÐ BÍLINN SINN Hefur keyrt lengi um á hvítri Toyota Corolla en draumurinn er að aka um á svörtum Jagúar. VOLKSWAGEN RÚGBRAUÐ Starfsmaður setur saman „rúgbrauðið“. Volkswagen „rúgbrauð“: Frá Brasilíu BRASILÍA, AP Engin háþróuð vél- menni eða tæki setja saman eða gera lokaprófun á nýjustu Volkswagen „rúgbrauðs“-bílunum í verksmiðju fyrirtækisins í Sao Paulo í Brasilíu. Starfsmennirnir sjálfir prófa bílana með því að skella hurðunum og fara vandlega yfir þá með höndunum. Brasilía er eini staðurinn þar sem þessir fornfrægu bílar eru framleiddir en 1.200 slíkir eru framleiddir þar ár hvert. ■ AP /M YN D

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.