Fréttablaðið - 17.09.2003, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 17.09.2003, Blaðsíða 13
13MIÐVIKUDAGUR 17. september 2003 Helgi Númason, endurskoðandiog fyrrum leikmaður Fram í knattspyrnu, er afmælisbarn dags- ins. „Ég á þrjár himneskar dætur sem ég á von á í kaffi með fjöl- skyldum sínum í tilefni dagsins,“ segir Helgi og bætir við að hann hafi allar götur frá því hann stofn- aði fjölskyldu haldið upp á daginn með því að bjóða fólkinu sínu heim á þessum degi. Helgi er mörgum yngri knatt- spyrnumanninum gleymdur en hann var í liði Fram fyrir 1970 og fram á áttunda áratuginn. Hann lék á vinstri kantinum og var eitt árið markakóngur deildarinnar. „Það var óskaplega gaman að spila fót- bolta en þetta hefur breyst mikið frá því ég var upp á mitt besta. Nú er fótboltinn mikið hraðari og hreyfanlegri. Það þekktist ekki að varnarmenn væru að færa sig neitt að ráði í sóknina og framlínumenn að sama skapi hjálpuðu ekki í vörn- inni,“ segir Helgi, sem man þó eftir að Terry Cooper var á þessum árum það sem kallað var „overlapp- ing“ og vakti mikla athygli áhuga- manna um fótbolta. „Það var að byrja þá en kostaði mikla yfirferð og úthald. Nú eru menn um allt á vellinum og hafa ótrúlegt þrek.“ Helgi er fæddur í Reykjavík en fluttist til Hafnarfjarðar þegar hann gerðist þar bæjarendurskoð- andi. „Ég varð eftir í Hafnarfirði þegar ég hætti og kann afskaplega vel við mig þar. Sæki vinnu til Reykjavíkur, sem ekki þykir til- tölumál. Annars hefur starf end- urskoðenda breyst mjög undan- farin ár eins og margra annarra sem byggja starf sitt á tölvunni. Nú geta menn meira verið heima og unnið þar ef þeir vilja.“ Helgi ver frítíma sínum mikið í sumarbústað austur við Dyrhólaey. Hann segir það stundum gott að taka tölvuna með og geta dvalið lengur og unnið. „Mér finnst unga fólkið mun tregara til að vinna mik- ið en við þeir eldri gerðum á sínum tíma. Það hugsar meira um fjöl- skylduna og að geta verið með börnum sínum og ekki nema gott eitt um það að segja,“ segir Helgi Númason, sem hættur er að sprikla með gömlum félögum í fótboltan- um enda 57 ára í dag. bergljot@frettabladid.is HELGI NÚMASON Reykvíkingur sem varð eftir í Hafnarfirði og sækir vinnu í höfuðborgina. Afmæli HELGI NÚMASON ■ Hann lék um árabil með fyrstudeild- arliði Fram í knattspyrnu og var marka- kóngur deildarinnar eitt sumarið. Markakóngur í gamla daga SIGURÐUR VALGEIRSSON BÓK- MENNTAFRÆÐINGUR Hann hefur nýlega stofnað fyrirtækið Bæj- arútgerðina og segist vera trillukarl í landi. ??? Hver? Bókmenntafræðingur og fjölmiðlamað- ur með lítið fyrirtæki sem heitir Bæjar- útgerðin og sinnir útgáfu og fjölmiðlun. Það má eiginlega segja að ég sé trillu- karl í landi. ??? Hvar? Á skrifstofu Bæjarútgerðarinnar, Tryggva- götu 16 í Reykjavík. ??? Hvaðan? Ég er fæddur á elliheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði, sem reyndar var fæðingar- deild um tíma. ??? Hvað? Ég er að skoða gamanefni sem gert hef- ur verið í Sjónvarpið og er að spá í út- gáfu á DVD-diski með úrvali úr því efni. ??? Hvernig? Ég býð upp á þjónustu á öllum sviðum sem ég hef unnið við, fyrir utan al- mannatengslin í bili. Er um þessar mundir með leikrit á ensku fyrir túrista eftir okkur Sveinbjörn I. Baldvinsson sem ég er að snurfusa áður en ég sýni það leikstjóra. Þá er ég að ljúka þremur þáttum fyrir sjónvarp sem sýndir verða á nýju ári í Sjónvarpinu. ??? Hvers vegna? Það blundar alltaf í mér einhver sjálf- stæðishvöt sem ég fæ svalað með því að reka smáfyrirtæki. ??? Hvenær? Ég stofnaði það með syni mínum Stef- áni Sigurðssyni en hann er nýfarinn í framhaldsnám í hagfræði við Kaup- mannahafnarháskóla. Ég geng ekki svo langt að halda því fram að Kaupmanna- hafnarangi Bæjarútgerðarinnar hafi ver- ið stofnaður en það er sjálfsagt stutt í það. ■ Persónan ■ Nýjar bækur HANK WILLIAMS Tónlistarmaðurinn Hank Williams fæddist á þessum degi í Alabama fyrir 80 árum en hann lést aðeins 30 ára gamall. Sonur hans, Hank Williams Jr., hefur ötull haldið minningu föður síns í kántríheimum á lífi. Nú eru Ensku rósirnar hennarMadonnu fáanlegar en í gær kom þessi margumtalaða barna- bók út hjá Máli og menningu. Bókin kemur út í yfir 100 lönd- um á sama tíma og er það í fyrs- ta sinn sem ein bók kemur út í svo mörgum löndum á sama deginum. Í fréttatilkynningu frá Máli og menningu segir að bókin sé um fjórar 11 ára vinkonur sem öfundast út í þá fimmtu.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.