Fréttablaðið - 17.09.2003, Page 12
12 17. september 2003 MIÐVIKUDAGUR
■ Andlát
■ Jarðarfarir
Ranglega var farið með stað-reyndir í viðtali við Pétur
Gunnarsson í Fréttablaðinu í
fyrri viku. Hermt var að hann
væri framkvæmdastjóri þing-
flokks Framsóknarflokksins en
það rétta er að hann er skrif-
stofustjóri þingflokks framsókn-
armanna og forstöðumaður kynn-
ingarmála. Pétur og lesendur
blaðsins eru beðnir velvirðingar
á mistökunum.
New York búar sneru aftur tilvinnu á þessum degi fyrir
tveim árum. Þá voru liðnir 6 dagar
frá því heimurinn breyttist og
myndir af turnunum tveim skrif-
uðu sig að eilífu inn í minni al-
heimsins.
Á þessum tíma var tala látinna
talin eilítið hærri en þau tæpu 3.000
andlát sem fengust staðfest nokkru
síðar. En eins og alþjóð veit flugu
farþegavélar inn í Tvíburaturnana í
New York og ollu hruni þeirra. Það
voru hryðjuverkamenn sem rændu
vélunum. 6 dögum síðar vildi
starfsfólk sem vann í nágrenni við
turnana sýna umheiminum að lífið
héldi áfram í New York eins og ann-
ars staðar. Margir þeirra vöfðu sig
inn í ameríska fánann á leið sinni til
vinnu en aðrir voru með grímur til
að verjast rykinu sem enn þyrlaðist
up úr rústum World Trade Center.
Eyðileggingin minnti óneitan-
lega á vígvöll en fólk þóttist hvergi
bangið. „Þau búast við okkur á
hnjánum en við gefumst ekki upp,“
sagði einn þessara starfsmanna við
BBC.
Þennan dag 17. september var
heimurinn samt enn lamaður. Eng-
inn vissi í raun hvað myndi gerast
og leit stóð enn yfir að líkum í rúst-
um World Trade Center. ■
13.30 Dagbjört Sigurjónsdóttir verð-
ur jarðsungin frá Hafnarfjarðar-
kirkju.
15.00 Jósafat J. Líndal verður jarð-
sunginn frá Kópavogskirkju.
15.00 Magnea L. Þórarinsdóttir,
Grenimel 23, Reykjavík, verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni í
Reykjavík.
Árni Ásberg Alfreðsson, Stuðlabergi 76,
Hafnarfirði, er látinn.
María Margrét Sigurðardóttir, Hlað-
brekku 7, Kópavogi, lést föstudaginn 12.
september.
Edith Gerhardt Ásmundsson, frá Þýska-
landi, lést fimmtudaginn 11. september.
Jóna S. Kristófersdóttir, Kleppsvegi
120, lést sunnudaginn 7. september.
María Árnína Ísaksdóttir, dvalarheimil-
inu Hlíð, Akureyri, lést sunnudaginn 14.
september.
Margrét Elíasdóttir, frá Haugi, Gaul-
verjahreppi, lést sunnudaginn 14. sept-
ember.
Guðjón Baldur Valdimarsson, Hjarðar-
holti 15, Selfossi, lést föstudaginn 12.
september.
Elsa Árnadóttir lést fimmtudaginn 11.
september.
Þorbjörg Hallmannsdóttir frá Króki, Ölf-
usi, lést sunnudaginn 14. september.
Soffía Gísladóttir, frá Deild í Fljótshlíð,
lést sunnudaginn 14. september.
Þórarinn Sveinbjörnsson, Birkihlíð,
Stokkseyri, lést fimmtudaginn 11. sept-
ember.
■ Tilkynningar
Fréttablaðið býður lesendum aðsenda inn tilkynningar um dán-
arfregnir, jarðarfarir, afmæli eða
aðra stórviðburði. Tekið er á móti
tilkynningum á tölvupóstfangið:
tilkynningar@frettabladid.is.
Athugið að upplýsingar þurfa að
vera ítarlegar og helst tæmandi.
Ég held að langur tími líði þartil mér tekst að þvo af mér
fisklyktina,“ segir Friðrik Páls-
son, sem, lét af stjórnarmennsku
hjá SÍF í síðustu viku.
Hann segir það dálítið skond-
na tilfinningu að vera ekki bein-
línis á kafi í þeim málum og alls
ekki eins dramatískt og ætla
mætti. Hann hafi býsna margt
fyrir stafni og meira en nóg að
gera. „Ég datt inn í fiskinn alveg
óvart á sínum tíma. Ætlaði ekki
að vera nema nokkra mánuði en
það endaði með að verða þessi
tæplega þrjátíu ár,“ segir hann
og bendir á að fjögur ár séu síð-
an hann lét af störfum hjá SH.
Stjórnarmennskan hafi verið
verkefni og hann hafi starfað að
ýmsum öðrum málum undanfar-
in ár. „Fyrir nokkrum árum lenti
ég í ferðabransanum og það er
grein sem togar í mann þegar á
reynir. Ég hef komið að rekstri
Hótel Rangár og Háfjallamið-
stöðinni í Kerlingarfjöllum,“
segir hann og bendir á að Hótel
Rangá sé skemmtilegt fjögurra
stjarna lúxushótel á bökkum
Rangár.
Friðrik hefur auk þessa verið
að vinna að markaðssetningu á
ensími í fiski og með því haldið
fiskilyktinni á sér. Hann á jörð
austur í Fljótshlíð með fleirum
og þar dvelst hann mikið, eink-
um á sumrin. „Það eru nítján ár
síðan við keyptum hana og höf-
um byggt hana upp á þessum
árum. Fjölskyldan dvelst þar
löngum og þar er ég með hrossin
mín.
Hann neitar því að um mikla
ræktun sé að ræða, í það minnsta
myndu þeir sem eru í alvöru
hrossarækt seint kalla hans
hestamennsku því nafni. „Ég hef
haft miklu meiri tíma undanfar-
in ár til að sinna þessu áhugamáli
mínu. Fljótshlíðin er yndislegur
staður og tekur ekki langan tíma
að aka í þéttbýlið,“ segir Friðrik
Pálsson, sáttur við að bera fisk-
lyktina enn um sinn. ■
Tímamót
FRIÐRIK PÁLSSON
■ Hann segir það ekki eins dramatískt
og ætla mætti að vera ekki lengur á kafi í
fiski.
FRIÐRIK PÁLSSON
Hann hefur skipt um starfsvettvang og á
nú ferðamennskan hug hans allan.
Langt þar til mér tekst að
þvo af mér fisklyktina
Þessi titill hefur mikla þýðingufyrir mig, ég er mjög stoltur
af sjálfum mér að hafa náð svona
langt,“ segir Ólafur Helgi Ólafs-
son um titilinn Dragdrottning Ís-
lands 2003, sem hann hreppti á
dragkeppninni á NASA síðastlið-
ið laugardagskvöld. „Ég var í
gervi Starínu, sem er karakter-
inn minn. Starína kom fyrst fram
í febrúar á gay balli á Broadway
og ég hef brugðið mér í dragið
nokkrum sinnum síðan þá,“ segir
Óli, sem sló eftirminnilega í gegn
sem Starína í Gay Pride göng-
unni í ár.
Ólafur segist ekki vita hvað
réði úrslitum í keppninni: „Ég tók
lag með Kylie Minogue sem heit-
ir Your Disco Needs You. Ég
stúderaði Kylie ekki neitt, kom
bara fram sem Starína og samdi
sporin sjálfur. Ég hannaði bún-
inginn á Starínu en vinkona mín
hjálpaði mér mjög mikið,“ segir
Ólafur, sem er nemandi á textíl-
og handmenntabraut í Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti.
„Ég sagði við vinkonu mína
fyrir löngu að ef ég skyldi ein-
hvern tíma vinna þessa keppni þá
myndi ég lofa henni því að hætta
að röfla um útlitið mitt. Ég er
sjálfur öryrki en annað herða-
blaðið er stærra en hitt og þetta
hefur farið ógeðslega í taugarnar
á mér. Hún minnti mig á þetta um
helgina þannig að ég má ekki
röfla um þetta meir,“ segir Ólaf-
ur, sem kom, sá og sigraði í glam-
úrnum á laugardagskvöldið.
„Þetta sýndi mér virkilega að
þrátt fyrir gallana á maður alveg
möguleika rétt eins og aðrir
þannig að mér fannst þetta stórt
skref og þegar ég steig út af svið-
inu eftir keppnina brosti ég í
gegnum tárin.“ ■
Dragdrottning
ÓLAFUR HELGI ÓLAFSSON
■ Síðastliðið laugardagskvöld kom Ólaf-
ur Helgi Ólafsson fram í draginu Starína
og vann titilinn Dragdrottning Íslands
2003.
ÓLAFUR HELGI ÓLAFSSON
Kom, sá og sigraði sem dragdrottningin
Starina og er nú búinn að lofa vinkonu
sinni að hætta að kvarta yfir útlitinu.
ANNE BANCROFT
Fékk bæði Óskars- og Tony-verðlaunin. Lék
í myndum eins og the Graduate, Agnes of
God, Malice og The Elephant Man en hér
sést hún í hlutverki sínu í The Pumpkin
Eater. Anne er gift Mel Brooks og lék í
mynd hans To Be or Not to Be.
17. september
■ Þetta gerðist
1951 Because of You með Tony Benn-
ett er á toppi bandaríska listans.
1956 Heimsmetið í hraðasiglingum
sett þegar bátur náði 126 kíló-
metra hraða.
1967 Mission Impossible er frumsýnt
á CBS-TV.
1972 M*A*S*H er frumsýnt í sjónvarpi.
1989 Fellibylurinn Húgó byrjar á 4
daga ferðalagi sínu um
Karíbahaf og drepur 65 manns.
1976 Ringo Starr sendir plötuna
Ringo’s Rotogravure frá sér.
1982 Fjöldamorðum sem málaliðar
Ísraela hófu deginum áður í
flóttamannabúðum í Beirút
lýkur. 1000 Palestínumenn lágu í
valnum.
MINNING HINNA LÁTNU
Minningarnar voru margar þegar fólk snéri
aftur til vinnu, 6 dögum eftir 11. septem-
ber, á Wall Street fyrir tveimur árum.
Wall Street opnar á ný
WALL STREET
■ Á þessum degi fyrir tveim árum sneri
starfsfólk Wall Street aftur til vinnu sinnar
eftir 11. september.
17. september
2001
■ Leiðrétting
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Brosti
gegnum
tárin