Fréttablaðið - 17.09.2003, Side 19
Íslenska Kristskirkjan hefur tíusinnum haldið svokölluð Alfa-
námskeið. Í næstu viku hefst það
ellefta en að sögn Friðriks Schram
safnaðarprests eru Alfa-námskeið-
in vinsælustu námskeið um
kristna trú sem bjóðast. „Nám-
skeiðin gefa fólki grundvallarsvör
um kristna trú,“ segir Friðrik.
„Nútímamaðurinn er leitandi og
áhugasamur um andleg málefni og
á námskeiðunum er leitast við að
gefa svör við alls konar spurning-
um sem tengjast grundvallaratrið-
um kristinnar trúar.“
Alfa-námskeiðin áttu upptök sín
í London fyrir 20 árum en hafa
breiðst út og eru nú kennd víða um
heim. Námskeiðin eru byggð
þannig upp að fyrst borðar fólk
saman, svo er farið í kennslu og
fyrirspurnir, þá tekið kaffihlé og
að lokum eru umræður í smærri
hópum. „Í þeim ræðir fólk alls kon-
ar málefni. Þau geta tengst degin-
um og daglega lífinu,“ segir Frið-
rik. Að lokum er stutt helgistund.
Íslenska Kristskirkjan er lút-
erskur fríkirkjusöfnuður sem er
til húsa að Bíldshöfða 10.
Námskeiðin eru opin fyrir
alla, sama í hvaða söfnuði fólk
er, og þeim fylgja engar skuld-
bindingar. Námskeiðið hefst 23.
september kl. 19 og er kennt í
tíu skipti. ■
19MIÐVIKUDAGUR 17. september 2003
Öldungadeild Menntaskólansvið Hamrahlíð er elsta öld-
ungadeild landsins og varð 30 ára
á síðasta ári. Björn Bergsson, sem
er í forsvari fyrir deildina, segir
að upphaflega hafi hugmyndin
komið frá Bandaríkjunum og hafi
Guðmundur Arnlaugsson, þáver-
andi rektor, hugsað sér að leysa
uppsafnaðan vanda fólks sem
dottið hafði út úr skólakerfinu.
Talað var um námskeið og gert
ráð fyrir að þau yrðu haldin í
nokkur skipti. Reyndin hefur orð-
ið önnur og nú er námið orðið fast
í sessi. Fljótlega varð aldurshóp-
urinn 20 til 40 ára uppistaða nem-
endanna og segir Björn það
skondið að nafnið skuli samt hafa
loðað við deildina. Sumir eru að
koma inn eftir lagt hlé en einnig
er nokkuð um það að ungmenni í
dagskóla taki áfanga í öldunga-
deild, til dæmis til að bjarga mál-
um þegar eitthvað fer úrskeiðis.
Um 450 manns stunda nám við
deildina á hverri önn. Á síðustu
vorönn hófu nokkrir kennarar til-
raun með dreifnám sem er nokk-
urs konar sambland af fjarnámi
og hefðbundnu námi. „Við stigum
ákveðin skref á þessari önn,“
segir Björn. „Við buðum upp á
um 70 áfanga og af þeim voru 14
í dreifnámi. Reyndar er það svo
að þriðjungur öldunga á þessari
önn er í einum eða fleiri dreif-
námsáföngum,“ segir Björn. „Ég
tel að dreifmenntafyrirkomulag-
ið henti okkur vel. Þannig er
hægt að koma til móts við fólk
þegar eitthvað kemur upp á í
vinnu eða fjölskyldulífi og bjarga
málum með aðstoð tölvukerfis-
ins.“ ■
Enskunám:
Dúndurferð
til Suður-Englands
Hallveig Finnbogadóttir hjúkr-unarfræðingur og maðurinn
hennar, Ásmundur Sveinsson
stýrimaður, eru nýlega komin
heim frá Bournemouth í Suður-
Englandi þar sem þau voru í
enskuskóla í fimm vikur. Það
hafði lengið staðið til hjá Hall-
veigu að bæta enskukunnáttuna.
„Það er nú þannig með þessa
blessaða ensku að maður lærði
hana takmarkað og ég hef aldrei
búið í enskumælandi landi. Vinn-
an mín er þannig að maður þarf að
geta tjáð sig á ensku og lesið,“
segir hún. „Mig langaði alltaf að
læra tungumálið, fara í ensku-
skóla og það blundaði í mér að fá
mér vinnu erlendis í eitt ár.“
Hallveig fékk ársleyfi frá störf-
um í Miðstöð heilsuverndar barna
og þau hjónin ákváðu að nýta tím-
ann vel.
„Við pöntuðum skóla í gegnum
Úrval-Útsýn, fórum á ferðaskrif-
stofuna og skoðum möguleikana,
hvað væri í boði og hvar.“ Þau
hjónin völdu King School of Engl-
ish. „Við ákváðum áður en við fór-
um út að vera bara í 20 tímum á
viku af því að við ætluðum líka að
vera í sumarfríi. Við vorum í skól-
anum frá 9-12.30 en sumir voru
hins vegar allan daginn. Mér
fannst ég læra mjög mikið en það
er bannað að tala annað tungumál
í skólanum en ensku. Við vorum í
heimagistingu og vorum mjög
heppin þar. Við lentum hjá hjón-
um sem höfðu verið með nemend-
ur í enskuskólum í yfir tuttugu ár.
Þau voru mjög góð í ensku og við
lærðum mikið af þeim því þau
voru alltaf að leiðrétta okkur.“
„Við flugum með Iceland Ex-
press en verðið fram og til baka
var í kringum fimmtán þúsund
krónur. Skólinn, gistingin, morg-
unmatur og kvöldmatur í fimm
vikur kostuðu í kringum 150 þús-
und á mann þannig að þetta var
ódýrt,“ segir Hallveig og bætir
við að ferðin hafi verið vel heppn-
uð í alla staði: „Við vorum líka á
fullu í líkamsrækt allan tímann,
þannig að þetta var alveg
dúndurferð.“ ■
FRIÐRIK SCHRAM
Alfa-námskeiðin urðu til í London fyrir 20
árum og hafa breiðst út.
HVAÐ ER KENNT
Á NÁMSKEIÐINU?
Hver er Jesús?
Hvers vegna dó Jesús?
Hver er Guð faðir, skapari okkar?
Hvernig getum við verið viss í trúnni?
Hvers vegna og hvernig á að biðja?
Hvers vegna og hvernig á að lesa Biblí-
una?
Hver er Heilagur andi og hvernig starfar
hann?
Hvernig stöndum við gegn hinu illa?
Hvernig getum við talað við aðra um
trúna?
Hvernig leiðbeinir Guð okkur?
Hvernig læknar Guð?
Hvernig get ég ræktað trú mína?
Hvernig get ég lifað sem bestu lífi?
Alfa námskeið:
Vinsælustu námskeiðin um kristni
HALLVEIG FINNBOGADÓTTIR
Á ströndinni í Bournemouth með skólabækurnar.
MENNTASKÓLINN VIÐ HAMRAHLÍÐ
Þar er elsta öldungadeild landsins.
Öldungadeild MH:
Þriðjungur í dreifnámi