Fréttablaðið - 17.09.2003, Side 23
23MIÐVIKUDAGUR 17. september 2003
hvað?hvar?hvenær?
14 15 16 17 18 19 20
SEPTEMBER
Miðvikudagur
LOKAÐ EFTIR HÁDEGI Á FÖSTUDAG
Borgartúni 21 105 Reykjavík Sími: 569 6900 - 800 6969 Fax: 569 6800 www.ils.is
Vegna skipulagsdags starfsfólks verður lokað hjá Íbúðalánasjóði kl. 12.00 föstudaginn 19. september.
Opnað verður aftur mánudaginn 22. september samkvæmt venjulegum opnunartíma.
Verið velkomin.
FÓTBOLTI „Þetta verður hörkuleik-
ur eins og allir leikir hjá þessum
liðum,“ segir Aðalsteinn Víg-
lundsson, þjálfari bikarmeistara
Fylkis, um leik KA og ÍA í undan-
úrslitum Visa-bikarkeppni karla.
Leikurinn fer fram á Laugardals-
velli í kvöld klukkan 19.40.
Leikir KA og ÍA í deildinni í ár
voru hörkuspennandi. Liðin
skildu jöfn, 1-
1, í fyrri um-
ferðinni en ÍA
hafði betur í
þeim síðari, 3-
2. Mikil bikar-
hefð hefur
skapast í her-
búðum ÍA og
KA. Bæði lið
féllu úr leik
fyrir bikar-
meisturum Fylkis – ÍA í átta liða
úrslitum en KA í undanúrslitum.
Árið á undan léku Fylkir og KA til
úrslita í bikarkeppninni og hafði
Árbæjarliðið betur. Fylkir sló þá
ÍA út í undanúrslitum.
Aðalsteinn segir sterka vörn
vera aðalsmerki KA. „Þeir eru
mjög grimmir á boltann og eru
klárir í að slást. Þeir hafa farið
langt á því. Það má segja það
sama um Skagaliðið og þetta eru
ekki ólík lið þó þau spili ekki
sama fótboltann.“
KA-menn hafa ekki náð að
skora mikið af mörkum í Lands-
bankadeildinni og telur Aðal-
steinn það einn helsta galla
þeirra. „Þeim hefur gengið erf-
iðlega að skapa sér færi. En KA
getur unnið hvaða lið sem er á
góðum degi en að sama skapi
getur það tapað fyrir hvaða liði
sem er á slæmum degi. Það hafa
verið miklar sveiflur hjá því.“
Skagamenn hafa verið á
miklu flugi undanfarið og unnið
fimm leiki í röð í deildinni. „Þeir
hafa unnið góða sigra og það er
bullandi sjálfstraust í gangi á
þeim bæ,“ segir Aðalsteinn.
„Það virðist sem þeir séu farnir
að trúa því að þeir geti unnið og
það er hægt að komast langt á
því.“
Aðalsteinn telur líklegt að
Skagamenn komist í úrslitaleik-
inn. „Ég tippa á það en það er
ekkert sjálfgefið í bikarleikjum
– langt frá því. Þetta verður bar-
áttuleikur. Ég á kannski ekki
von á markahrúgu en þetta eru
tvö bikarlið út í eitt og baráttan
verður eftir því.“ ■
IVAN DE LA PEÑA
Er kannski á leið til Celtic í Skotlandi.
Ivan de la Peña:
Íhugar tilboð
frá Celtic
FÓTBOLTI Ivan de la Peña, fyrrver-
andi landsliðsmaður Spánar,
íhugar nú tilboð frá skoska liðinu
Celtic. Hinn samningslausi de la
Peña, sem hóf ferilinn hjá
Barcelona og skipti svo yfir í
Lazio, þar sem hann fékk lítið að
spila, var á reynslusamningi hjá
Celtic í síðustu viku ásamt portú-
galska landsliðsmanninum Dani.
Hann fór til Katar þar sem hon-
um bauðst samningur en snerist
svo hugur og fór aftur til skoska
liðsins.
„Celtic hefur áhuga en sem
stendur bíðum við eftir ákvörðun
de la Peña,“ sagði Manuel Ferrer,
umboðsmaður leikmannsins. ■
BOX Bandaríski umboðsmaðurinn
Bob Arum segir að hnefaleikar
teljist varla lengur íþróttagrein í
kjölfar þess að Shane Mosley var
dæmdur sigur á Oscar de la Hoya
í Las Vegas um síðustu helgi.
„Eftir þessa skelfilegu niður-
stöðu er ég hættur afskiptum af
hnefaleikum,“ sagði hinn 72 ára
gamli Arum eftir bardagann.
Hnefaleikar eru ekki lengur
íþrótt.“
De la Hoya tapaði bardagan-
um á stigum við mikil mótmæli
áhorfenda. Dómararnir þrír
dæmdu allir Mosley í hag, 115-
113. ■
FÓTBOLTI Írski landsliðsmaðurinn
Damien Duff er ósáttur við að
vera skipt út af trekk í trekk í lok
hvers leiks. Duff, sem var keypt-
ur til Chelsea í sumar fyrir 17
milljónir punda og varð þar með
dýrasti leikmaður liðsins, hefur
verið skipt út af í öllum fimm
leikjum sumarsins.
„Ég er að aðlagast félaginu en
ég myndi gjarnan vilja fá að leika
heilar 90 mínútur,“ sagði Duff.
„Ég var ekki sáttur við að vera
tekinn af velli í hálfleik á móti
Blackburn. En það er knatt-
spyrnustjórinn sem ræður því og
hvað get ég gert?“
Claudio Ranieri, knattspyrnu-
stjóri Chelsea, hefur brugðist illa
við kvörtunum leikmanna.
„Óhamingjusamir leikmenn
geta eyðilagt andrúmsloftið og
þeir vita hvað gerist ef það er
ekki gott,“ sagði Ranieri. „Ég hef
rætt við leikmenn um þetta og
þeir skilja mig fullkomlega. Þeir
sem skilja þetta ekki verða að
fara.“ ■
17.50 Fjallað er um helstu íþrótta-
viðburði heima og erlendis í Olíssporti
á Sýn.
18.00 Ítarleg umfjöllun um ís-
lenskar akstursíþróttir í Mótorsporti á
Sýn. Umsjónarmaður er Birgir Þór
Bragason.
18.30 Bein útsending á Sýn frá
leik Arsenal og Inter Milan í Meistara-
deild Evrópu.
19.15 Breiðablik og FH eigast við
í suðurriðli Remax-deildar karla í hand-
bolta.
19.15 ÍBV og ÍR mætast í suður-
riðli Remax-deildar karla í handbolta.
19.40 KA og ÍA mætast í seinni
leik bikarúrslita Visa-bikarkeppni karla á
Laugardalsvelli. Leikurinn verður í beinni
útsendingu í Sjónvarpinu.
20.00 HK fær Selfoss í heimsókn
í suður-riðli Remax-deildar karla í hand-
bolta.
20.40 Útsending á Sýn frá leik
Bayern München og Glasgow Celtic í
Meistaradeild Evrópu.
22.30 Fjallað er um helstu íþrótta-
viðburði heima og erlendis í Olíssporti
á Sýn.
SVEKKTUR
De la Hoya íhugar að áfrýja niðurstöðu
dómnefndar sem dæmdi honum í óhag.
Bob Arum:
Hnefaleikar
ekki lengur
íþrótt
DAMIEN DUFF
Vill spila meira fyrir
Chelsea enda hefur honum
verið skipt út af í öllum
leikjunum fimm sem liðið
hefur leikið.
Damien Duff:
Vill spila meira
SKAGAMENN Í LEIK
Skagamenn hafa verið á miklu flugi und-
anfarið og unnið fimm deildarleiki í röð.
LEIÐ KA Í
UNDANÚRSLIT:
Selfoss - KA 4-5
KA - Fylkir 3-0
Víkingur - KA 0-1
LEIÐ ÍA Í
UNDANÚRSLIT:
Huginn - ÍA 0-6
ÍA - Keflavík 1-0
ÍA - Grindavík 1-0
Ekkert sjálfgefið
í bikarleikjum
KA og ÍA eigast við í seinni undanúrslitaleik Visa-bikarkeppni karla á Laugardalsvelli í kvöld.
Aðalsteinn Víglundsson, þjálfari Fylkis, býst við hörkuleik en spáir Skagamönnum sigri.