Fréttablaðið - 17.09.2003, Síða 27
Leikkonan Helga Braga ætlarað gerast leiðbeinandi á nám-
skeiði sem hjálpar fólki að verða
ófullnægt á kynlífssviðinu. Hér
er um að ræða leikrit sem hefur
farið sigurför um allan heim. Hitt
með Helgu Brögu
verður frumsýnt
hér 1. október í
Ýmishúsinu.
Verkið bygg-
ir á kabarett-
námskeiði
austurríska
atferlisfræð-
ingsins Bernhards Ludwigs en í
sýningunni er blandað saman
staðreyndum og gríni, hóp-
þerapíu og kabarett. Helga Braga
sótti námskeiðið hjá Bernhard
Ludwig í Vínarborg og Amster-
dam og hún segist líta á sig sem
hjálpartæki ástarlífsins í þessari
sýningu.
MIÐVIKUDAGUR 17. september 2003 27
S‡nt í Tjarnarbíói vi› Tjarnargötu • sími: 561-0280
Fimmtudaginn 18. sept. kl. 20:00 • Föstudaginn 19. sept. kl. 23:30
Lokas‡ningar!! (í bili)
Gagnrýni Morgunblaðsins (stytt)
Bráðfyndnir kven-
mannsleysingjar
„Það er slegið á létta stren-
gi fyrst og fremst og verkið
er umfram allt bráðfyndið
og ferskt, en undir niðri
skín alltaf í þá nöturlegu
staðreynd að þeim félögun-
um tekst ekki að koma sér
upp úr farinu. Persónur Sig-
uringa eru ekki hinn út-
flatti meðalkarlmaður með
þær fyrirsjáanlegu vænting-
ar og viðhorf sem fjallað er
um í slíkum verkum.“
Gagnrýni DV (stytt)
Fiskar án reiðhjóls
„Á frumsýningunni í gær
heyrði ég einhvern segja að
Ráðalausir menn væru ís-
lensk útfærsla á Beðmálum
í borginni, snúið upp á karl-
menn. Textinn er lipur og
oft og tíðum meinfyndinn
og samtöl virka einstaklega
eðlileg.“
Ummæli
gagnr‡nenda
Japanskir silkisloppar
KIMONO
Meðlimir hljómsveitarinnar Kimono.
Hljómsveitin Kimono hefurvakið athygli nú í sumar. Í
vikunni kom út fyrsta plata sveit-
arinnar en hún ber nafnið Mineur-
aggressif: „Kimono nafnið er vís-
un í japanskan silkislopp sem er
hefðbundinn japanskur klæðnað-
ur. Okkur þótti það fínt nafn því
meðlimir hljómsveitarinnar eru
frá Íslandi og Kanada og við vild-
um sækja nafnið enn lengra,“ seg-
ir Gylfi Blöndal, gítarleikari
hjómsveitarinnar.
Kimono var stofnuð fyrir
tveimur árum en hljómsveitin
hefur unnið að plötunni nánast all-
an þann tíma: „Við tókum hana
upp síðasta sumar en vorum ekki
nógu ánægðir. Þess vegna ákváð-
um við að bíða með útgáfuna og
fengum Birgi Örn Thoroddsen til
liðs við okkur. Út af öllu þessu
brölti erum við í raun tilbúnir með
tvær plötur en sú seinni kemur
líklega út eftir hálft ár.“
Smekkleysa gefur út fyrstu
plötu þeirra Kimono-félaga en
tónlistin er í anda indie-rokksins:
„Platan er í rólegri kantinum.
Mineur-aggressif er heiti sem er
búið að fylgja okkur síðan við
byrjuðum en tónlistin er spiluð í
moll (minor) og þykir aggressíf á
köflum. Heitið rímar líka við man-
ic-depressive en það er kannski
besta lýsingin á plötunni.
Ármann Agnarsson hannar
umslagið á plötunni en það vekur
sérstaka athygli fyrir teikningar
eftir ungan íslenskan listamann:
„Hulli (Þórarinn Hugleikur Dags-
son) teiknaði fyrir okkur allt
saman. Á hverri opnu er lagatexti
og teikning eftir Hulla en teikn-
ingarnar eru túlkun hans á hverju
lagi fyrir sig. Við erum að reyna
að gera tónlistina myndrænni og
þess vegna sýnum við oft vídeó-
listaverk þegar við spilum á tón-
leikum.“
Áhugasömum er bent á heima-
síðuna www.mineur-
aggressif.com en þar er bæði
hægt að hlusta á brot af plötunni
og skoða skemmtilegar teikning-
ar. ■
M
yn
d/
Si
gr
ún
G
uð
m
un
ds
dó
tt
ir
■ TÓNLIST Fréttiraf fólki