Fréttablaðið - 17.09.2003, Síða 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
STEINUNNAR
STEFÁNSDÓTTUR
Ljón eða kettir
í veginum
Hlutirnir hafa tilhneigingu til aðfara vel,“ sagði góður sam-
starfsmaður minn einu sinni þegar
ég var eitthvað að æðrast yfir sam-
eiginlegu verkefni okkar. Og það er
mikið til í því. Samt er eins og sumir
álíti þessu vera þveröfugt farið
þannig að hlutirnir fari yfirleitt illa
nema í undantekningartilvikum.
EIGINLEGA er hægt að leggja upp
í lífið með tvenns konar grundvallar-
sýn, jákvæða og neikvæða. Sá sem
hefur jákvæða sýn lítur á dagleg úr-
lausnarefni sem á vegi hans verða
sem verkefni til að leysa en hinn nei-
kvæði lítur á þau sem vandamál eða
hindranir í vegi hans. Þegar sá sem
hefur jákvæða sýn veikist einblínir
hann á batann og leiðina að batanum
meðan hinum sem hefur neikvæða
sýn er hætt við að einbeita sér að
sjúkdómnum og þeim miska sem
hann veldur. Sá sem hefur jákvæða
lífssýn gengur út frá því að náunginn
vilji honum vel þar til annað hefur
komið ítrekað og berlega í ljós með-
an hinn neikvæði reiknar með því að
annað fólk leggi stein í götu hans þar
til annað hefur sannast. Og þannig
mætti áfram telja.
EKKI ÞARF að fjölyrða um hvað
verkefni eru auðunnari og skemmti-
legri en vandamál. Og víst er að við-
horf hefur mikið að segja í bata
sjúklinga. Öruggt má svo telja að
þeir sem almennt séð lifa í sátt við
Guð og menn séu hamingjusamari
og öðlist meiri lífsfyllingu en hinir
sem stöðugt eru tortryggnir gagn-
vert samferðarmönnum sínum.
Hinn jákvæði lifir sem sagt bæði
innihaldsríkara og skemmtilegra lífi
en hinn neikvæði, auk þess sem
ljónin í veginum eru ekki nærri eins
mörg og stór.
RÉTT EINS og sjálfsagt þykir að
kenna börnum mannasiði ætti að
vera sjálfsagt að innræta þeim já-
kvæða sýn á lífið því jákvæðni er
eitthvert besta veganesti sem ungt
fólk getur fengið þegar það leggur
upp í ferðalagið til fullorðinsáranna.
Jákvæð lífssýn þýðir þó alls ekki að
ekki megi gagnrýna hluti eða hafa
skoðanir um það sem betur má fara.
Hún kemur sér einmitt hvað best
þegar unnið er að umbótum, hvort
sem er í persónulegu lífi eða stærra
samhengi.
Við notum eingöngu
Philips hágæða perur
sem gefa besta árangur
Grensásveg i 7
108 Reykjavík
Sími : 533 3350 - www.smar tsol . is
i i
ili