Fréttablaðið - 17.11.2003, Side 13
13MÁNUDAGUR 17. nóvember 2003
ÓK Á BRÚARHANDRIÐ Bíll fór
utan í brúarhandrið á Borgar-
fjarðarbrúnni um áttaleytið í
fyrrakvöld. Ökumaður slapp
ómeiddur en bíllinn er mikið
skemmdur. Lögreglan í Borgar-
nesi segir að rekja megi slysið til
þess að bíllinn var á sumardekkj-
um en mikil hálka var á vegum
þegar slysið varð.
EINN Á SJÚKRAHÚS Einn var
fluttur á sjúkrahús eftir árekstur
á mótum Reykjanesbrautar og
Stekks á þriðja tímanum í gær.
Sá var ekki talinn mikið meiddur
en fékk aðhlynningu. Slysið vildi
þannig til að ökumaður beygði í
veg fyrir annan þegar hann hugð-
ist beygja af Reykjanesbraut inn
á Stekk.
ISTANBÚL, AP Ísraelskir og tyrknesk-
ir sérfræðingar telja að sprengju-
árásirnar tvær sem voru gerðar í
Istanbúl á laugardagsmorgun hafi
verið vel skipulagðar sjálfs-
morðsárásir og líklega verk Al
Kaída eða annarra hryðjuverka-
samtaka.
Að minnsta kosti 23 manneskj-
ur fórust í sprengingunum og 303
særðust. Þar af eru um 70 manns
enn á sjúkrahúsi.
Silvar Shalom, utanríkisráðherra
Ísraels, flaug til Istanbúl í gær og
vottaði fjölskyldum fórnar-
lambanna samúð sína. „Þessar árás-
ir voru heigulsverk sem voru fram-
kvæmd af öfgamönnum sem vilja
ekki að þjóðir sameinist um lýð-
ræði, frelsi og lög,“ sagði Shalom.
Að minnsta kosti sex gyðingar
fórust í árásunum en hinir sem
fórust voru múslimar sem áttu leið
hjá bænahúsum gyðinga. Alls búa
um 25.000 gyðingar í Tyrklandi.
Talið er að um 400 kílógrömm
af sprengiefni hafi verið í hvorum
bílanna sem sprungu í Istanbúl. Að
öllum líkindum sprengdu sjálfs-
morðsárásarmenn sjálfa sig upp í
leiðinni. Reynt verður að bera leif-
ar sprengiefnisins saman við önn-
ur efni til að skera úr um hverjir
voru þarna að verki. ■
GRÁTUR
Ayfer Bostanoglu, eiginkona tyrknesks lögregluþjóns sem fórst í annarri sprengjuárásinni,
grét mikið þegar kista hans var borin til grafar í gær.
Sprengjuárásirnar í Istanbúl:
Al Kaída grunuð
um aðild
AP
/M
YN
D
■ Lögreglufréttir
isástandið ekki eins slæmt og á
svæði Bandaríkjamanna í mið-
hluta landsins. Hersveitir annarra
þjóða sem eru undir stjórn Breta í
suðurhluta landsins eru meðal
annars frá Ítalíu, Portúgal,
Hollandi, Rúmeníu, Tékklandi og
Nýja-Sjálandi.
Í herliði Ítala eru að minnsta
kosti 2.400 hermenn en þeir
misstu 16 hermenn í sprengju-
árásinni í Nasiriya í síðustu viku.
Portúgalar sendu fyrstu her-
mennina til Íraks í síðustu viku og
var þar um að ræða 128 herlög-
reglumenn sem í upphafi var ætl-
að að dvelja í Nasiriya, en vegna
árásarinnar voru þeir sendir til
Basra þar sem þeir starfa tíma-
bundið undir stjórn Breta.
Pólverjar með yfirstjórn
Meira en 2.000 pólskir her-
menn eru nú í Írak og fara þeir
með yfirstjórn 9.000 manna al-
þjóðlegs herliðs frá 21 landi í mið-
suðurhluta landsins á svæði sem
nær frá yfirráðasvæði Breta
norður að yfirráðasvæði Banda-
ríkjamanna suður af Bagdad.
Pólverjar hafa frá upphafi
stutt aðgerðir Bandaríkjamanna í
Írak en eru eina Mið-Evrópuþjóð-
in sem sendi herlið til landsins til
þátttöku í átökum á meðan á
stríðinu stóð. Undir stjórn Pól-
verja eru meðal annars hersveit-
ir frá Spáni, Úkraínu og Filipps-
eyjum og eru um þúsund her-
menn í liði Spánverja sem dyggi-
lega hafa stutt við hernaðar-
stefnu Bandaríkamanna frá upp-
hafi. Í liði Úkraínumanna eru
einnig þúsund hermenn en aðeins
178 í liði Filippseyinga sem aðal-
lega starfa við löggæslu, almenn
hjálparstörf og heilbrigðisþjón-
ustu. ■
ÁÆTLAÐUR HERAFLI Í ÍRAK
NÓVEMBER 2003
Herlið innrásarþjóðanna:
Bandaríkin 132.000
Bretland 10.000
Herlið annarra þjóða
sem aðallega kemur að hjálpar-
og uppbyggingarstarfi í Írak:
(Tölur óstaðfestar)
Albanía 100
Ástralía 1.000
Búlgaría 470
Danmörk 410
Dóminíska lýðv. 300
Eistland 50
El Salvador 360
Filippseyjar 178
Holland 1.100
Hondúras 370
Ítalía 2.400
Japan 41
Kasakstan 25
Lettland 36
Litháen 193
Makedónía 28
Mongólía 180
Nýja-Sjáland *
Nikaragúa 230
Noregur 104
Portúgal 128
Pólland 2.000
Rúmenía 400
Singapúr 192
Slóvakía 69
Spánn 1.250
Suður-Kórea 400
Taíland 400
Tékkland 706
Ungverjaland *
Úkraína 1.000
(* EKKI VITAÐ UM FJÖLDA)