Fréttablaðið - 17.11.2003, Side 24
FÓTBOLTI Argentínumenn unnu
Bólivíumenn 3-0 á laugardag í und-
ankeppni fyrir Heimsmeistara-
keppnina 2006. Andrés D’Al-
essandro, leikmaður Wolfsburg,
skoraði beint úr aukaspyrnu
snemma í seinni hálfleik en Hernán
Crespo og Pablo Aimar settu hin
mörkin.
Varamaðurinn Marcelo Romero
tryggði Úrúgvæ 2-1 sigur á Chile í
Montevideo með skallamarki
snemma í seinni hálfleik. Rodrigo
Melendez kom gestunum yfir
snemma leiks en Javier Chevanton
jafnaði fyrir Úrúgvæa með skoti
beint úr aukaspyrnu af 30 metra
færi.
Kólumbíumenn réðu gangi leiks-
ins gegn Venesúela í Baranquilla en
töpuðu samt. Heimamenn áttu
fimmtán markskot en Venesúelar
aðeins eitt og það dugði til að
krækja í öll stigin þrjú. Juan
Arango skoraði eina markið en
maður leiksins var markmaður
gestanna, Gilberto Angelucci.
Paragvæar unnu Ekvadora 2-1 í
Asunción. Roque Santa Cruz, leik-
maður Bayern München, og José
Saturnino Cardozo skoruðu fyrir
Paragvæa en Edison Méndez etti
mark gestanna.
Fjórða umferð keppninnar verð-
ur leikin á morgun og miðvikudag.
Hæst ber viðureign Brasilíumanna
og Úrúgvæa í Curitiba en Argent-
ínumenn keppa við Kólumbíumenn
í Baranquilla. ■
FÓTBOLTI Spánverjar báru sigur-
orð, 2-1, af Norðmönnum á Mest-
alla-leikvanginum í Valencia á
Spáni á laugardagskvöldið í fyrri
leik liðanna í umspili um sæti á
EM í Portúgal á næsta ár. Spán-
verjar voru mun sterkari aðilinn
í leiknum en Espen Johnsen,
markvörður Norðmanna, reynd-
ist þeim erfiður ljár í þúfu og
kom í veg fyrir að sigur spænska
liðsins yrði stærri. Liðin mætast í
seinni leiknum í Osló á miðviku-
daginn og nægir Norðmönnum að
vinna þann leik 1-0 til að komast
áfram þar sem mörk á útivelli
skera úr ef jafnt er eftir leikina.
Norðmenn komust yfir í
leiknum strax á 14. mínútu þeg-
ar Steffen Iversen, framherji
Wolves, skoraði með skalla eftir
fyrirgjöf frá Roar Strand. Spán-
verjar jöfnuðu metin sjö mínút-
um síðar og var þar að verki
„gulldrengurinn“ Raúl eftir góð-
an undirbúning frá Jose Antonio
Reyes en sá drengur er efstur á
óskalista Gerards Houlliers,
knattspyrnustjóra Liverpool, nú
um stundir.
Spánverjar sóttu án afláts það
sem eftir lifði leiks en hittu fyr-
ir Espen Johnsen í banastuði í
norska markinu. Hann gat þó
ekki komið í veg fyrir sigur-
mark Spánverja þegar fimm
mínútur voru til leiksloka. Þá
skoraði fyrirliði Norðmanna,
Henning Berg, sjálfsmark en
skot Rubens Barajas fór í Berg
og í netið. Sigur Spánverja stað-
reynd en þeir hefðu þó sennilega
viljað fara með betri forystu í
seinni leikinn í Osló á miðviku-
daginn.
Espen Johnsen, hetja Norð-
manna, vildi lítið gera úr eigin
frammistöðu í samtali við
norska netmiðilinn Nettavisen
eftir leikinn.
„Mér líður ótrúlega vel eftir
þennan leik þrátt fyrir tapið. Ég
held þó ekki að þetta hafi verið
besta frammistaða mín á ferlin-
um en það gekk vel hjá mér í
leiknum,“ sagði Johnsen.
Inaki Saez, þjálfari Spán-
verja, var daufur í dálkinn eftir
leikinn og sagði sína menn hafa
verðskuldað mun stærri sigur.
„Ég skil ekki hvernig við fór-
um að því að vinna ekki þennan
leik með í það minnsta þremur
mörkum. Við vorum mun betri
allan leikinn en norski mark-
vörðurinn var í banastuði. Við
verðum bara að vona að þessi
nauma forysta nægi okkur í
seinni leiknum á miðvikudag-
inn,“ sagði Saez. ■
24 17. nóvember 2003 MÁNUDAGURÍshokkí
Ragnar fór á kostum:
Skoraði tíu
mörk
HANDBOLTI Ragnar Óskarsson fór
mikinn þegar lið hans,
Dunkerque frá Frakklandi, bar
sigurorð af Dudelange frá Lúx-
emborg, 38-17, í seinni leik lið-
anna í Áskorendakeppni Evrópu
í handknattleik á laugardaginn.
Ragnar var besti maður
Dunkerque í leiknum og skoraði
tíu mörk. Dunkerque vann fyrri
leikinn, 28-16, og kemst því
áfram í næstu umferð. Það er
gleðilegt að Ragnar skuli vera í
fínu formi þessa dagana enda
næg verkefni fram undan hjá
íslenska handboltalandsliðinu á
næstu mánuðum. ■
Erfiður ljár í þúfu
Hetjuleg frammistaða norska markvarðarins Espens Johnsens var nálægt því að skila Norð-
mönnum jafntefli í Valencia.
FÓTBOLTI Lettneska landsliðið í
knattspyrnu heldur áfram að
koma á óvart. Það tryggði sér,
flestum að óvörum, sæti í umspil-
inu og á laugardaginn bar liðið
sigurorð af Tyrkjum, 1-0, í Riga í
fyrri leik liðanna í umspilinu um
sæti á EM í Portúgal.
Fyrir leikinn var einnar mín-
útu þögn til að minnast fórnar-
lambanna í hryðjuverkaáras í Ist-
anbúl fyrr um daginn. Flestir
bjuggust við auðveldum sigri
Tyrkja í leiknum en annað kom á
daginn. Lettar voru mjög frískir
og það var framherjinn Maris
Varpakovskis sem skoraði sigur-
markið þegar hálftími var liðinn
af leiknum. Tyrkir pressuðu stíft
undir lokin þrátt fyrir að vera ein-
um manni færri síðustu tíu mínút-
ur leiksins en Lettar héldu út og
tryggðu sér ágætt veganesti fyrir
seinni leikinn í Istanbúl á mið-
vikudaginn. Það verður þó senni-
lega erfiðari leikur fyrir Lettana
því Tyrkir eru gífurlega sterkir á
heimavelli. ■
1-0 sigur gegn Tyrkjum í Riga:
Óvænt hjá Lettum
SLEGIST Á SVELLINU
Markvörður Vancouver Canucks, Dan
Cloutier, slæst hér í hóp félaga sinna,
slagsmálahundanna Brendan Morrison og
Bryan Allen, þar sem þeir lumbra á Travis
Green, leikmanni Boston Bruins, í leik lið-
anna í NHL-deildinni aðfaranótt sunnu-
dagsins.
MIKILVÆGU MARKI FAGNAÐ
Norsku framherjarnir Steffen Iversen og Tore Andre Flo fagna hér marki þess fyrrnefnda í
leiknum gegn Spánverjum á laugardagskvöldið en það getur reynst dýrmætt í seinni
leiknum í Osló á miðvikudaginn.
ARGENTÍNA
Andres D’Alessandro fagnar marki sínu
gegn Bólivíu á laugardag.
Heimsmeistarakeppnin 2006:
Argentína á sigurbraut
hvað?hvar?hvenær?
14 15 16 17 18 19 20
NÓVEMBER
Mánudagur
15.00 Ameríski fótboltinn á Sýn.
Tampa Bay og Green Bay.
16.40 Helgarsport á RÚV.
17.30 Meistaradeild Evrópu í
handbolta á Sýn. Útsending
frá leik Hauka og Magdeburg
19.00 NFL-tilþrif á Sýn.
19.30 Jimmy White á Islandi á Sýn.
Bein útsending frá snóker-
keppni.
22.00 Olíssport á Sýn.
22.30 Forsetabikarinn á Sýn.