Fréttablaðið - 17.11.2003, Qupperneq 25
25MÁNUDAGUR 17. nóvember 2003
FÓTBOLTI Mark varamannsins Jon
Dahl Tomasson færði Dönum
3-2 sigur yfir Englendingum á
Old Trafford í gær. Þetta var
fyrsti sigur Dana á Englending-
um í tvo áratugi en þeir unnu
1-0 á Wembley í september 1983.
Englendingar náðu tvisvar
forystu á fyrstu níu mínútum
leiksins. Wayne Rooney skoraði
á fimmtu mínútu með skoti af
vítateigslínu en Martin Jørgen-
sen jafnaði þremur mínútum
síðar með skoti úr miðjum teig
eftir góða sókn Dana upp hægri
kantinn. Englendingar komust
yfir að nýju aðeins mínútu síðar
þegar Rooney lagði upp mark
fyrir Joe Cole.
Martin Jørgensen jafnaði
öðru sinni fyrir Dani eftir hálf-
tíma leik. Matthew Upson braut
á Jørgensen við markteiginn og
skoraði Daninn af miklu öryggi
úr vítaspyrnunni.
Bæði lið fengu góð færi til að
komast yfir í seinni hálfleik.
Varamaðurinn Kenneth Perez
fékk tvö dauðafæri en hitti ekki
markið í fyrra skiptið og Paul
Robinson varði frá honum í
seinna skiptið. Wayne Rooney
skaut í stöng á tíundu mínútu
hálfleiksins og Danny Murphy
skaut framhjá níu mínútum fyr-
ir leikslok.
Mínútu síðar náðu Danir
góðri sókn. Peter Løvenkrands
skaut að marki en Robinson
varði. Boltinn barst út úr teign-
um til Martin Jørgensen sem
skaut hörkuskoti að marki. Aftur
varði Robinson en missti boltann
frá sér til Jon Dahl Tomasson
sem setti boltann í netið. ■
England - Danmörk:
Tomasson tryggði Dönum sigur
Maraþonhlaupið í Tókíó:
Sigur eftir
endasprett
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR „Ég hélt mig við
áætlun mína og vann upp forskot
hennar jafnt og þétt og þegar ég sá
hana bætti ég í hraðann,“ sagði El-
fenesh Alemu frá Eþíópíu, sem sigr-
aði í maraþonhlaupinu í Tókíó í gær.
Alemu bar sigurorð af japanska
ólympíumeistaranum Naoko Taka-
hashi með góðum endaspretti. El-
fenesh Alemu hljóp á tveimur tím-
um, 24 mínútum og 47 sekúndum.
„Ég var orðin þreytt í fótunum
eftir 28 kílómetra. Ég fór hratt í
byrjun, eins og ég er vön, en hafði
ekki þróttinn í lokin,“ sagði Taka-
hashi, sem kom í mark tæpum 3
mínútum á eftir Alemu. ■
MARTIN JØRGENSEN
Daninn Martin Jørgensen fagnar öðru
marki sínu, sem hann skoraði úr
vítaspyrnu, í sigurleiknum gegn Englend-
ingum á Old Trafford í gær.
FRAKKAR FAGNA
Frakkar unnu Þjóðverja 3-0 á útivelli.
Franska landsliðið:
Þrettán
sigrar í röð
FÓTBOLTI Þjóðverjar töpuðu 3-0 fyr-
ir Evrópumeisturum Frakka í
Gelsenkirchen á laugardag.
Thierry Henry skoraði fyrsta
markið um miðjan fyrri hálfleik
eftir sendingu frá Bixente Lizar-
azu, leikmanni Bayern München.
David Trezeguet bætti tveimur
mörkum við í seinni hálfleik, því
fyrra eftir sendingu Thierry
Henry og því seinna eftir undir-
búning Zinedine Zidane.
Leikurinn fer í metabækur
Frakka þar sem þetta var þrettándi
sigurleikur þeirra í röð og þeir hafa
aldrei áður unnið Þjóðverja með
meira eins marks mun. ■
Evrópukeppni kvenna:
Pólverjar
burstaðir
FÓTBOLTI Frakkar unnu Pólverja
7-1 í 3. riðli undankeppni Evrópu-
keppni kvennaliða á laugardag.
Eftir sigurinn eru Frakkar í öðru
sæti riðilsins, einu stigi á eftir Ís-
lendingum.
Marinette Pichon skoraði
þrennu í leiknum og Elodie
Woock, Laëtitia Tonazzi, Corinne
Diacre og Hoda Lattaf eitt mark
hver. Liliana Gibek skoraði mark
Pólverja og minnkaði muninn í
7-1. Marinette Pichon er marka-
hæst í riðlinum ásamt Margréti
Láru Viðarsdóttur og Natalia Bar-
bachina með fimm mörk.
Næsti leikur í riðlinum verður
viðureign Frakka og Ungverja í
lok apríl en næsti leikur Íslendinga
verður í Ungverjalandi í lok maí. ■
Bikarkeppnin í sundi:
ÍRB vann af
öryggi annað
árið í röð
SUND ÍRB varð bikarmeistari í
sundi annað árið í röð í gær. Sigur-
inn var mjög öruggur og aðal-
spennan var um hvaða lið hreppti
annað sæti og skiptust SH og Ægir
á að hafa þar forustuna síðustu
greinarnar. ÍRB hlaut alls 29.300
stig, 2.529 stigum meira en SH
sem varð í öðru sæti með 26.771
stig. Ægir varð síðan í 3. sæti með
26.596, 175 stigum færra en SH.
KR varð í fjórða sæti, Breiðablik í
því fimmta og í sjötta sæti var
Sundfélagið Vestri frá Ísafirði. Í
annarri deild sigraði Sundfélag
Akraness og tekur það sæti
Vestra á næsta ári. ■